Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.11.1938, Side 1
Tímarit
Tónlistarfélagsins
Útgefandi: Tónlistarfélagið, Reykjavík
Ritstjóri: Kr. Sigurðsson
1. árg. 4. hefti - Reykjavík í nóv 1938
r
Þegar Tónlistarfélagið ákvað að gangast fyrir því, að
koma hér upp árlega ákveðnum fjölda hljómleika, þar sem
fastir styrktarmenn einir fengju aðgang, var það vitan-
lega að nokkru leyti hugsað sem ný árás á pyngju þeirra,
sem undanfarin ár hafa borið uppi starfsemi félagsins
fjárhagslega og stutt hana á annan hátt. Augljóst var,
að' mánaðarlegir hljómleikar, sem hver kosta 11—1200
krónur, gátu ekki borið sig nema með beinum stuðningi
einhverstaðar frá. Ýmsir hafa fundið að þessari ráðstöfun
og talið hana óheppilega, þar sem fjöldi manna verði nú að
hverfa frá í hvert sinn, sem góðir hljómleikar eru haldnir.
En þvi einu er þar til að svara, að styrktarmenn félagsins
bera að mestu leyti kostnað af hljómleikunum með styrkj-
um sínum og því eölilegt að þeir hafi forgangsrétt aö
þessum hljómleikum félagsins, sem ókleift hefði verið að
halda án þeirra. Það sem fyrst og fremst vakir fyrir Tón-
listarfélaginu með þessum hljómleikum fyrir styrktar-
menn sína, er að safna saman sem mestu af þvi fólki, sem
beint og óbeint hefir stutt alla viðleitni þess, að halda
uppi heilbrigðu músiklífi hér i bænum og reyna með
samstarfi þess og félagsins, að koma tónlistarlífi bæjarins
49