Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.11.1938, Blaðsíða 7

Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.11.1938, Blaðsíða 7
Tímarit Tónlistarf élagsins sem talinn er í fremstu röð enskra píanóleikara og er auk þess tónskáld, er hefir samið fjölda tónverka. Einnig lagði hún stund á að kynnast aðferðum við tónlistarkennslu og tónlistarlegt uppeldi. Margrét var meðal þeirra fyrstu, sem tóku burtfararpróf við Tónlistarskólann hér, en stundaði svo framhaldsnám við hann í tvo vetur áður en hún fór utan. Nú hefir hún hug á aö komast út aftur eftir jól til frekari fullkomnunar í píanóleik og undirbúnings undir kennslustörf. Er vonandi að henni takist það, því mikils má af henni vænta í þeim efnum. vegna ótvíræðra hæfi- leika og áhuga fyrir að afla sér sem beztrar menntunar. Dr. Franz Mixa hefir nú látið af störfum við Tónlistarskólann og horfið aftur heim til ætt- lands síns. Dr. Mixa kom fyrst hingað til að starfa að undirbúningi tónlistar- flutnings á Alþingishátíð- inni 1930 og hefir dvalið hér alla vetur síðan, að einum undanteknum, Þeg- ar Tónlistarskólinn var settur á stofn, var hann ráðinn kennari í píanóleik og hljómfræöi við hann og einnig til að æfa og stjórna hljómsveitinni. Varð hann brátt vinsæll meðal nem- enda sinna og annarra er við þessi störf voru riðnir. Hljóm- fræði vill sennilega verða hjá mörgum kennurum þurr og strembin námsgrein, sem nemandinn kærir sig lítið um til lengdar, en hjá dr. Mixa varð hún lifandi og aö- 55

x

Tímarit Tónlistarfélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Tónlistarfélagsins
https://timarit.is/publication/723

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.