Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.11.1938, Blaðsíða 16

Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.11.1938, Blaðsíða 16
Tímarit T ó n 1 i s t a r f é I a g s i n s að semja verk fyrir hljómsveit eða kammermúsik, hafa ekki átt þess kost að koma slíkum verkum á framfæri hér heima, má það vera nokkurt undrunarefni, að til hafi verið nægilegt efni til þátttöku í slíkri hátíð, sem þessari. Meðan ekki er til sæmilega fullkomin hljómsveit hér í höfuðborginni, er ekki hægt að gera sér vonir um mikil afköst íslenzkra tónskálda hvað stærri tónsmíðar snertir. En það væri heldur ekki nægilegt, að slík hljómsveit væri starfandi, nema hún hefði tilverurétt, þannig, að starfi hennar væri sá sómi sýndur af öllum almenningi, sem nauðsynlegur væri, en um það mun sennilega óþarfi að efast. Þetta málefni þyrfti að vera komiö á betri rekspöl áður en næst kemur að þátttöku íslenzkra tónskálda í norrænni tónlistarhátíð, svo jafnaöur væri mesti aðstöðu- munur þeirra við erlendu tónskáldin. Á íslenzka aðalhljómleiknum í Kaupmannahöfn voru flutt hljómsveitarverk eftir Jón Leifs, Pál* ísólfsson og Sigurð Þórðarson, undir stjórn tveggja hinna fyrnefndu. Ennfremur þrjú þjóðlög í raddfærslu Karls Ó. Runólfs- sonar og þjóðlag eftir Sigfús Einarsson, en raddfært af dönskum manni. Auk þess þrjú sönglög eftir Þórarinn Jónsson, Markús Kristjánsson og Sigfús Einarsson, sungin af Maríu Markan. Á kammermúsik-hljómleikunum sungu þau Stefán Guðmundsson og Elsa Sigfúss hvort um sig nokkur lög og loks lék Haraldur Sigurðsson Sónötu eftir Hallgrím Helgason. Því miður hefi ég ekki séð nema ummæli tveggja danskra blaða og hættir öðru þeirra yfirleitt við að birta nokkuð stranga dóma. Þvi verður ekki neitað, að sumt af því, sem skrifað var um íslenzku tónsmíðarnar, hafi verði fjarri því að vera lofsamlegt, en ekki er ætlunin að rekja það hér. Það er ánægjulegt að vera boðinn til hátíðar, en nauðsyn- legt er að vera vel undir slík boö búinn. Bezti undirbún- ingurinn er sá, að vinna að bættum skilyrðum fyrir þróun lifandi tónlistar og almennri tónlistarmenningu. 64

x

Tímarit Tónlistarfélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Tónlistarfélagsins
https://timarit.is/publication/723

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.