Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.11.1938, Page 12
Timarit Tónlistarfélagsins
Dagskrá útvarpsins
Útvarpið hefir nú um mörg ár látið prenta dagskrár
hverrar viku. Dagblöðin birta svo venjulega dagskrá hvers
dags, eða það sem breytist, en ýmsir liðir eru hinir sömu á
sama tíma dag hvern. Þessi dagskrái'útgáfa útvarpsins hefir
ávalt verið i sama formi og mun því ekki hafa fundist
ástæða til að gera neinar bi’eytingar á henni.
Mikill hluti dagski-ái'tímans fer í tónlistarflutning, en
yfirgnæfandi meiri hlutinn er af hljómplötum, en það
kemur tæplega fyrir, að nefnd séu nöfn verkefnanna, sem
flutt ex-u. Séu einhver nefnd þá eru það helzt nöfn ýmsi'a
stórra verka, sem leikin ei’u af hljómplötum, en það mun
ekki hafa verið venja mjög lengi, að viðfangsefni þeiri'a
lifandi listamanna, sem láta til sín heyra í útvarpinu, séu
tilgreind, ekki einu sinni þegar dagskrá næsta dags er lesin,
en hlustendum mun einmitt sérstaklega vera forvitni á,
að vita um þau. Hljómplötunum er nú farið að í’aða i
flokka, eftir efni, hljóðfærum o. s. frv. „Andleg tónlist“,
„létt lög“, píanólög", „lög leikin á ýms hljóðfæri“ o. fl.
Þetta eru reyndar ekki sérstaklega nákvæmar upplýsingar,
en skiptir máske ekki miklu máli. Þó er það t. d. óþarf-
lega ónákvæm flokkun, að tilkynna „lög fyrir fiðlu og
celló“, sem reynast að vera lög fyrir fiðlu eða celló með
píanóundirleik.
Erlendis birta útvarpsstöðvarnar, og síðan ýms blöð sem
æltuð eru hlustendum, nöfn allra laga, sem flutt eru. Hér
yrði slík upptalning sennilega of umfangsmikil, en ekki
ætti að reynast ókleift að fara einvei’n meðalveg og þá
sérstaklega að tilgi’eina vei’kefni lifandi tónlistarflytjenda,
enda ætti þeim ekki að vera vorkun að ákveða þau með
nægum fyrirvara.
60