Jazz - 01.03.1947, Side 4
hafa á hinn hvíta jazz er enn ekki hægt að
segja um, en hún lítur út fyrir að valda
byltingu bæði á útsetningunni og hljómsveit-
arsamsetningunni. Mikill hluti af útsetning-
um Woody’s eru hinar svo nefndu „Head
Arrangements", þ. e. a. s. að útsetningarnar
verða til í höfði hljómlistarmannanna.
Negrahljómsveitirnar og sérstaklega hljóm-
sveit Ellingtons og Basie nota þessa aðferð,
en það er nýtt að hvftar hljómsveitir noti
hana.
Utsetjari hljómsveitarinnar er hinn 23 ára
pínóleikari, Ralph Burns, einn af færustu út-
setjurum Bandaríkjanna. Hann fer sínar eig-
in götur, en játar að hann sé mikið undir
áhrifum Stravinskys og Ravels, bæði sem tón-
skáld og útsetjari.
Af jazzhljómsveitum heldur hann mest
upp á Duke Ellington. Útsetningar hans eru
alltaf sérkennilegar, og hann biðlar ekki til
áheyrenda með hinum svo nefndu „Cheap
Arrangements", og þar af leiðir að hljóm-
sveit Woody’s er í sérflokki.
Hljómsveit Woody’s er í dag: 5 saxófónar
(sex þegar Woody spilar með) 4 trompetar,
3 trombónar, píanó, bassi og tromma auk
söngkonunnar Frances Wayne.
Hljómsveitarmeðlimirnir eru allir um tvít-
ugt og það hlýtur að vekja undrun, hve
góða „teknik“ þeir hafa. Þeir hafa allir full-
komna stjórn á hljóðfærum sínum en þeir
nota aldrei „teknik“ sína til smekklausra
„akróbatiskra“ sólóa, eins og mörgum dug-
legum hljómlistarmönnum hættir til, svo sem
Harry James.
Stravinsky hefur fullgert fyrstu hljómkviðu
sína fyrir jazzhljómsveit og heitir hún „Ebony
hljómkviðan“ og er tileinkuð hljómsveit
Woody’s, er spilaði hana í Carnegie Hall i
New York, þar sem jazzinn fær sjaldan að-
gang.
4 jazz