Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Síða 4

Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Síða 4
Hóiíit med hflus- kúpuiwi' EINHVER dvrasta bókin í heimi er J utgáfa af verkum rómverska skáldsins Hórazar. Árið 1574 var bókin prentuð í Leyden á Hollandi, þegar Spánverjar sátu um borgina. Hver prentarinn af öðr- um varð að fórna lífi sínu á múrum borg- arinnar, og blýið úr prentsmiðjunni var tekið til kúlugerðar. En yfirprentarinn, sem loks var einn eftir í prentsmiðjunni, gerði sitt ýtrasta til að fá lokið prentun bókarinnar. Hann hafði síðast dregið undan svo marga stafi,, að hann með naumindum gat sett titilblaðið. En fyrsta örk bókarinnar er jafnan prentuð síðast. Undir staðarnafnið Leyden og árið 1574, setti hann litla mynd af hauskúpu. Geng- ur útgáfan síðan undir nafninu: „Hóraz með hauskúpunni". Þegar hann hafði prentað fáein eintök af titilblaðinu, þverr- uðu kraftar hans og hann dó við starf sitt. — Á sama degi hljómuðu kirkju- klukkurnar í Leyden yfir frelsi borgar- innar. Til minningar um yfirprentarann voru prentuð 99 eintök af titilblaðinu með hauskúpunni, en hitt upplagið án hennar. — „Hóraz með hauskúpunni" Varð þeg- ar mjög fágæt bók. Hún gekk aðeins milli höfðingja sem gjöf og er nú aðeins til á konunglegu bókasöfnunum í Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Englandi. Oslóar-ein- takið er að því leyti merkilegra en liin, að Gústaf Adolf hafði það alltaf með sér í tjaldi sínu á herferðum sínum. Hátt gnæiir Sís á Sölvhóls rúst; siglingar ekki greiðar; kveSa þar Eimskip keppnisbrag Keavættirnar gleiSar, iríS er í draumi dalakarls dagsláttan sunnan heiSar, þá lögS er í skára gata og grund írá Granda til HerSubreiSar. Steypist um rúntinn stelpuilóS, stuttar platspjarir ílaka; drossíuljós í langri röS viS löngunum holdsins stjaka; hjólfjaSrir skjália og hrikta viS; hljóSlega sætin braka; víSa er búin breyskri öld beSur án kodda og laka. Heyrt hef ég lærSa taka tón meS trillum, sem þröst í garSi; utaníör, styrk og aSra virkt útbýtingsneínd ei sparSi; eSlilegri mér alltaí finnst öskurrómurinn harSi drynjandi þar, sem DauSatljót dynur úr RíkisskarSi. ★ KVÆÐI Lofts Guðmundssonar úr Óöldinni okkar er síðasta kvæði bókarinnar og heitir Stoppistöðvar, er það nokkurskonar Aldarháttur, og er hermt að hætti og formi eftir Áföngum, einhverju snjallasta kvæði, sem ort hefur verið á síðari áratugum. <Það má kannski kalla helgi' spjöll — og þó ekki, þegar vel er gert sem hér. 4 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/727

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.