Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Qupperneq 6

Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Qupperneq 6
maður eða ókunnur, sent Árnasafni gjöf. Og þó verður Árnasafn á Islandi jafnan minnisvarði hins ókunna Islendings, Is- lendings þáttur hins sögufróða, minnis- merkið um hinn ónafngreinda höfund íslenzkra snilldarverka. Ekki ætti allri þjóðinni að vera það ofvaxið að koma upp þessu húsi með frjálsum framlögum. Hús yfir væntan- legt Árnasafn þarf ekki að vera öllu stærra en venjulegt íbúðarhús. Mundi ekki bygging þess tryggð, ef hver íslend- ingur leggði fram sem svarar tíu krón- um? Því samskot sem þessi þurfa að taka til allrar þjóðarinnar. Það er hinn almenni og eindregni þjóðarvilji, sem öllu öðru framar á að sanna heiminum hinn sið- ferðilega rétt vorn til hinna fornu og ein- stæðu menningarverðmæta, og þess vegna varðar það mestu, að þjóðin öll, helzt hver einasti einstaklingur hennar, votti hug sinn til þessa máls með því að leggja sinn skerf, stóran eða smáan, til þeirrar byggingar sem á að verða tal- andi tákn um menningarlegan samhug og menningarvirðingu þjóðarinnar. En hvers vegna er þetta þá ekki gert? Mundi svarið ekki vera það, að Islendingar séu einatt seinir til viðbragðs og þurfi oft að láta ítreka við sig sjálfsagða hluti, áð- ur en þeir hefjast handa? Um vilja þjóð- arinnar til að leggja nokkuð á sig í þessu máli þarf enginn maður að efast. Stúdentafélagið hefur áður látið sig handritamálið skipta. Nú vill það einnig leggja þessum þætti málsins lið og skor- ar á alla þjóðina að gera slíkt hið sama. Og hér ætti að vera hægt um viðbúnað. Hinn ókunni gefandi, sem lagði til fyrsta skerfinn, valdi þjóðminjavörð til þess að taka við framlaginu og hafa á hendi vörzlu þess, og á sama hátt mun öðrum gefendum óhætt að trúa þeim ágæta manni fyrir framlögum sínum. Á sumar- daginn fyrsta ákvað stjórn Stúdentafé- lagsins að verja 1000 kr. úr félagssjóði í þessu skyni og hefur þessi upphæð ver- ið send þjóðminjaverði. Er það trúa vor að eigi muni á löngu líða áður en nægi- legt fé hefur safnast í byggingarsjóðinn. Hefjumst því handa, góðir Islending- ar. Leggjumst allir á eitt. Byggjum hús vfir Árnasafn, hús íslenzkrar sögu, sem standi tilbúið að taka á móti hinum fornu þjóðardýrgripum. í þessu máli er- um vér allir samhuga. Sýnum það íverki. ÚR HORNI RITSTJÓRANS .... (Framhald af síðu 2) eru góðir eða vondir, skjóta öngurn í hug þeirra og leika þar sitt liljóða ósýnilega hlutverk. En auðvitað bregðast menn misjafnlega við persónulegri gagnrýni. Ef ég t. d. veittist að fvrirlesara fyrir aumlegt efnisval, framsetningu eða fluttning í útvarpi, getur lians fyrsta við- bragð orðið, að flýta sér niður til útvarpsráðs með annað erindi eða sögukorn. Getur það ver- ið í tvennum tilgangi gert: Til að sanna mér og sér að útvarpsráð taki ekki mark á dómi mínum, eða til að láta sér takast betur. Svo getur það farið í nokkur skipti. En ef gagnrýni mín hefur ekki verið út í hött, einungs smekksatriði, hef- ur dómur minn síðarmeir, þegar hann er e. t. v. gleymdur, þau áhrif að fyrirlesarinn vandar sig betur og útvarpsráðið val sitt. Oll gagnrýni, sem borin eru fram af viti, vinnur á í hljóði og kemur fram í annarra manna verkum og skoðunum, án þess að þeir sjálfir eða gagnrýnandinn fái nokkurn tíma um það að vita. Þetta er lögmál allrar skoðanaboðunar, orðið er hið mikla sæði hugsunarinnar, allt ber nokkurn ávöxt, illan eða góðan eftir atvikuni. 6 ÚTVABPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi : nýr flokkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/727

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.