Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Side 7

Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Side 7
Indriði G. Þorsteinsson Salt i kvikunni í MORGUNSÓL glampaði á hvítar stofuþiljur prestssetursins handan árinnar Þegar kvöldaði lenti setrið í skugga hjúks- ins, en þá tók sólin að endurkastast af glerjum gróðurhúsa Óla Pá, og túmatar hans roðnuðu bezt á kvöldin. Gufurnar upp úr heitu lækjunum í kringum gróðurhúsin stigu hátt til lofts í kyrrum veðrum og kýrnar frá bæjunum í kring sóttu í grænkuna á bökkum heitu lækjanna og þær slógu hölunum í flugna- mergðina og slöfruðu upp í sig grasið og mjólk þeirra þykknaði og varð fitu- meiri. Óli Pá amaðist ekki við kúnum, fyrr en þær tóku að ásælast rófnaflagið lians, en þá var úti um friðinn. Vorið, sem bretinn kafsigldi vélbátinn úti á sundunum, kom Björg til Óla Pá, og það sumar var slysið henni í fersku minni,, af því pilturinn hennar sökk með bátnum. Og því var, þetta fyrsta vor henn ar við gróðurhúsin, vor mikillar sorgar, allt framundir haust. En Björg var af sterkum efnivið gjörð, og um haustið hafði hún tekið gleði sína á ný, enda armlög hins eina og bezta, sem horfinn var um tíma og eilífð, farin að fyrnast. Og þarna um haustið hafði hún farið að sænga hjá Óla Pá, og hún liafði verið hjá honum um kyrrt um veturinn, þó svo hefði ekki verið um talað. Það hafði allt verið svo afgerandi. Eitt kvöldið liafði hann komið til hennar og minnzt á þetta við hana. Hann hafði talað um þetta, eins og hann væri að kaupa áburð í gróður- húsin. Hann hafði sagt að sig vantaði konu. Ekki eiginkonu frekar en verkast vildi, en konu, sem gæti séð um heimil- ið og hugsað um gróðurhúsin með hon- um. Og Björg liafði hugsað um þetta á meðan hann talaði við hana, og hún komst að þeirri niðurstöðu að hún hefði að engu að hverfa, færi liún frá Óla Pá. Og fyrst hun gæfi sig í það á annað borð, þá að gera það með festu og alvöru. Og því varð það, eitt sinn um haustið, þegar morgunsólin glampaði á stofuþiljum prestssetursins, handan árinnar, að Björg og Óli Pá stigu úr sömu rekkju. Og þannig hafði það gengið til í sex ár. Það var heitur dagur og hitinn í gróð- urhúsunum var lítt þolandi. Túmatgras- ið var orðið svo hátt að hvergi sá út um glerið,, og eini svali staðurinn þar í kring var pökkunarskúrinn. Inni í austasta húsinu bograði Björg yfir vatnsslöngunni og lét flæða inn að rótum grasanna, öðru hverju kleip hún sprota af stönglunum og færði sig á milli raða. Og henni varð hugsað til sumargests- ins, og henni fannst, sem sú kvenmanns- tjása væri að gera sér dælt á heimilinu. Hún hafði verið í fyrra og var komin aftur. Og Óli Pá var afgerandi maður og hver vissi livar þetta gat endað. Þessi kvenmannstjása var með sífelldar augna- ÚTVARPSTÍÐINDI 7

x

Útvarpstíðindi : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/727

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.