Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Qupperneq 15
fera þær inn á skýrslur og lesa þær í
útvarpið.
Stúlkurnar heita: Ragnheiður Guð-
mundsdóttir, Herdís Ásgeirsdóttir og
Magnea Sigfúsdóttir. Þær eru allar úr
Reykjavík. Ragnheiður hefur verið í þjón-
ustu veðurstofunnar í sex ár, Magnea
nokkru skernur. Herdís í rúm þrjú ár.
(Hér eru leiðbeiningar fyrir loftskevta-
manninn). Þær fyrrnefndu eru gagnfræð-
ingar úr Reykjavíkurskólum, Herdís er
úr Kvennaskólanum í Reykjavík.
Þegar ég sagði þeim frá óskinni af
sjónum, og kveðjunum þaðan, báðu þær
fyrir beztu heilsun til baka: Oft langar
okkur til að segja fleira en að þylja mis-
jafnlega góðar veðurfréttir, en við verð-
um að láta okkur nægja hlýlegar hugs-
anir til sjómannanna okkar, því ef við
féllum í freistni og segðum við þá nokkur
vel valin orð frá eigin brjósti, myndum
við eflaust fá litlar þakkir fyrir það á
æðri stöðum.
------D--------
Þflettif/ sem fá fivíW
í VETUR hefur að margra áliti verið
léttara yfir dagskrá útýarpsins en oft áð-
ur, og er það vissulega þarft og þakkar-
vert. Þó hefur aðeins einu sinni eða tvisv-
ar síðan um áramót heyrst í Pétri Péturs-
syni og hans liði með Sitt af hverju tagi.
Nú hefur Pétur tjáð okkur að framhald
muni ekki verða á þeim dagskrárlið. Or-
sakir kunnum við ekki að rekja til hlýt-
ar, en Pétur kveður undirbúning þessara
þátta svo tímafrekan að í það fari allar
tomstundir sínar, og vill hann ekki sem
vonlegt er, við það búa til lengdar, kveðst
enda ekki hafa lofað útvarpsráði að sjá
Á Uppstigningardag verfíur útvarp-
að tónleikum Jóns Nordal, sjá Dag-
skrá. Jón hefur hlotið mjög góða
dóma fyrir leik sinn. — Iiann er
og kunnur fyrir tónsmíSar.
um þáttinn lengur en fram til áramóta.
Þá mun mörgum hafa'brugðið í brún
er Björn R. Einarsson tilkynnti það fvr-
irvaralaust í síðasta þætti sínum „Óska-
lög sjúklinga", að útvarpsráð hefði ákveð-
ið að leggja þáttinn niður. Þessi ráðstöf-
un hvgg ég að orki mjög tvímælis, svo
ekki sé meira sagt. Björn hefur rækt
starfa sinn af kostgæfni og alúð, rödd
hans og látbragð er mjög geðfellt og er
ég viss um það að þættir hans hafa liaft
heilsubætandi áhrif á sjúklingana. Mér
er kunnugt um það, að þeir biðu tímanna
hans með óþreyju og þeir urðu fyrir
miklum vonbrigðum, er hann kvaddi.
Utvarpsráð mun nú hafa ákveðið að
halda áfram með þáttinn, en hvort Björn
R. Einarsson annast hann er óráðið.
ÚTVABPSTÍÐINDI 15