Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Page 19

Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Page 19
— Snlí í Uvikiiimi Framhald af bls. 10. á milli raðanna og lét flæða úr slöngunni á moldina í kringum grösin. Og hann fékk sér ungan grip: kvígu, kvígu, kvígu. Óli Pá vissi ekki fyrr en hann var bú- inn að söngla þetta og það varð ekki aft- ur tekið. Allt í einu liætti vatnið að renna úr slöngunni og hann bölvaði hljóðlega vf- ir þessari truflun. Hann vissi að þetta var sumargesturinn. Enginn nema hún var svo kærulaus að rífa slönguna úr sambandi til að fá sér fótabað undir bun- unni. Og nú gæfist honum gott tækifæri til að tala við hana og láta hana skilja, að sér fyndist meir áríðandi að vökva í hús- inu, heldur en baða á sér fæturna. Láta hana skilja að það væri annað að gera í sveit, en baða á sér fæturna. Hvort hann skyldi ekki láta henni skiljast það. Og hann snaraði sér út og fram með húsinu og suðurfyrir. Og þegar hann kom að horninu var hann búinn að opna munninn og fylla sig allan af lofti, líkast því að hann ætlaði sér að halda langa i'æðu, án þess að draga andann. Kaldavatnspípan var grafin niður í af- Hðandi hlaðvarpann og kom fram úr hon- um rétt fyrir ofan gróðurhúsið. Pípan lá síðan í lausu lofti, allt fyrir stafninn, en þar, undir bláenda hennar, stóð gamall kexkassi til stuðnings, og einnig til að bunan úr pípunni væri það há, að hæy væri að skola ýmislegt undir henni, bæði mjólkurfötur og annað. Og þegar Óli Pá kom fyrir hornið. sá bann að sumargesturinn var í mestu mal mdum að baða á sér fæturna. Þegar konan sá Óla Pá, ók hún sér ofurlítið i sætinu og hagræddi fótunum betur undir bununni. — En hvað þetta er gott, sagði hún og horfði á hann og augnaráð hennar lenti svolítið á ská, vegna þess hvernig hún sat. Óli Pá féll allur saman. Hann þagði og fann hvernig heitt tillit liennar streymdi um hann allan og hvernig berir og votir og gljáandi fótleggir hennar gripu augu hans og héldu þeim kyrrum. — Býst við að það sé ekki sem verst, sagði hann svo. — Kannski ég hafi ekki mátt tak: slönguna úr sambandi? sagði konan og horfði enn á hann á ská, og brosti, sv að mjúkar varir hennar lögðust þétt r. hvítum tönnunum. — Jú jú, sagði Óli Pá og þrástarði á vota fætur hennar. — Alveg er yndislegt að vera út í sveit í svona veðri, sagði konan og bretti tán- um undir tærri bununni. Og drengurinn, þú ættir að sjá strákinn. Hann er orð- inn bökkbrúnn af sólinni. Svo þagði hún við, líkast því að hún væri að íhuga, hve drengurinn væri brúnn, og sagði síð- an: — Hann er alveg gasalega brúnn. — Hann er liraustlegur, sagði Óli Pá af hinni mestu hægð. Konan sendi honum aftur þetta voð- fellda bros með mjúkum vörunum. — Alveg er það dásamlegt að búa í sveit, sagði konan. — Heldurðu það, sagði Óli Pá og var að hugsa um hve fætur hennar væru vel skapaðir. Þeir voru hreint þeir fegurstu fætur sem liann hafði séð. Þeir voru ával- ir að framan og það mótaði varla fyrir leggnum. Og kálfinn var stinnur og vöðv- inn hnykklaðist örlítið, ef hún steig í ÚTVARPSTÍÐINDI 19

x

Útvarpstíðindi : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/727

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.