Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Blaðsíða 20

Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Blaðsíða 20
tána. Það voru hreint þeir fegurstu fætur. sem hann hafði séð. Oli Pá tók upp rauðan vasaklútinn og þurrkaði svitann af hálsinum. — En hvað vatnið er svalt og gott, sagði konan og tók annan fótinn undan bununni og rétti hann beint fram. Oli Pá kingdi munnvatni sínu og horfði á fótinn. Hann sagði: — Já, þetta er sæmilegt vatnsból sem við höfum. Hann fann að hún hlustaði ekki á hann. — Það er svo gott að fá sér fótabað, sagði konan og setti fótinn aftur undir bununa. — Já„ maður liressist á því í hitanum, sagði Óli Pá. — Og svo er það hollt fyrir taugarnar, sagði konan. — Já, svo er það svo hollt. — Af liverju seztu ekki hjá mér? sagði konan. — Það er náttúrlega sama. Ekki get ég vökvað, fyrr en ég fæ vatnið, sagði Óli Pá og færði sig frá húshorninu og sett- ist á grasbekkinn hjá konunni. — Þarftu ekki annars að fara að fá vatnið aftur, sagði konan. — Nei, mér liggur ekki svo mikið á. Taktu bara þinn tíma. — En mér finnst alveg synd að tefja fyrir þér. — Uss, þú tefur ekki hið minnsta. Honum fannst gott að sitja hjá henni. Innan stundar hætti konan að baða á sér fæturna og hún dró þær undan bununni og setti á sig hvíta strigaskó. Óli Pá sá að hné hennar voru hvít og falleg, þegar hún fór í skóna og hann fór að hugsa um það. Konan stóð upp af grasbekknum og sagði: 20 ÚTVARPSTÍÐINDI — Heyrðu annars, þú ættir nú að lána mér eitthvað að lesa. Óli Pá leit á hana og undraðist að hún skildi biðja hann þess. Auðvitað vissi hún hvar bókaskápurinn var. Hún hafði geng- ið í hann og tekið sér bók úr honum hve- nær sem hana lysti. — Við skulum þá koma snöggvast, sagði Óli Pá og þau gengu heim hlaðið og inn í húsið. ÓIi Pá gekk niður hlaðið og fann enn- þá bragðið af vörum sumargestsins í munni sér. Og er hann kom í pökkunar- skúrinn, brá hann rauðum vasaklútnum á hálsinn og þurrkaði svitann. Björg stóð inn við bekkinn og strauk af túmötunum með hvítum klút, og það var svo skuggsýnt inn í skúrnum, að hann sá hana ekki alveg strax. — Er ekki allt í lagi með þá, sagði Óli Pá, er hann hafði vanizt dimmunni. Það umlaði í Björgu og hann gerði ekki aðra tilraun til að yrða á hana. Hann gekk yfir að kassastæðunni og tók tvo ofan af og setti þá á bekkinn við hliðina á túmat- hrúgunni. Og er hann hafði lagt pappú' í annan kassann, tók hann til við að raða ofan í hann. Björg missti túmat í gólfið. Hún tók túmatinn upp og strauk af honum og sagði: — Þú mátt prísa þig sælan, ef ekki myglar allt í húsinu. Húu sá að túmatínn hafði marizt, og hún beit í hann og dró safann úr bitinu, áður en hún kyngdi, svo stakk hún því sem eftir var upp í sig og tuggði. Óli Pá horfði á hana á meðan hún var að þessu-, og liann ságði: — Hver veit nema þú gætir fitnað, ef þú ætir meira af túmötum. Björg leit á Óla Pá og vissi að hann

x

Útvarpstíðindi : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/727

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.