Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Side 25

Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Side 25
Blaðalestur og bóka Úr erindi Sveins Asgeirssonnr, ■^r hagfræðings: Um daginn og ★ veginn ÞAÐ ER SAGT, að útvarpið, hafi dregið mjög úr lestri almennings.Við íslendingar höfum lengi gumað af alþýðumenningu og stært okkur af því að vera mjög bókhneigð þjóð. En erum við það í raun og veru? Og hver er sönnunin? Jú, að við kaupúm svo og svo mikið af bókum árlega. Og að það sé svo og svo miklu meira en hjá öðr- um þjóðum — miðað við fólksfjölda. En sannar þetta nokkuð um bókhneigð? Nei, það gefur að-. eins líkur fyrir lienni. Með bókhneigð er átt við hneigð til að lesa bækur, en ekki til að eiga þær í bókaskápum. Til þess að kanna liina raunveru- legu bóklmeigð þyrfti að rannsaka margt annað en bókakaup: hversu mikil eru útlán bókasafna? Menn gera sér það ekki tif augnayndis að fá k'maðar bækur á bókasöfnum. Aftur á móti kaupa menn bækur mjög oft í öðrum tilgangi en að lesa þær. Þeir gefa þær til dæmis. Bækur þykja góðar gjafir á íslandi, og svo er þægilegt að velja þær, sérstaklega þegar ekkert annað er til til að gefa, og svo getur maður skipt, ef nraður fær tvær af sömu — eða þá gefið liana öðrum. Þá þyrfti einnig að hafa einhvers konar skoðanakönnun á því, hvað menn hafa lesið um fugla, sem þeir sjá — jafnt óæta sem æta. Bænd- l>r ættu að hafa leyfi til að skjóta lappirnar und- :>n slíkum ferðalöngum. Þeir myndu þá kannske eftir að skilja við sig byssuna, næst þegar þeir færu á stjá. — Og til lítills höfurn við átt Þorstein Erlingsson og Guðmund Friðjónsson, þegar snjó- tittlingarnir á hjarninu hafa ekki lengur frið fyr- ir högglum slíkra „veiðimanna“. Oskastundin hans Gröndals er ósköp pervisin °g oftast óskenuntifeg. Pétur, með sitt „Sitt af kverju tagi“ var mun betri, en hefur nú víst dottið uppfyrir. Ekki fer fram hjá hlustendum þegar eitthvað er vel gert í útvarpinu; því lofa nú allir passíu- sálmalestur Magnúsar frá Skörðum. — B. Sk. dagana og reyna þá að komast að hinu rétta með ýmsum ráðum, því að hér vilja flestir flest lesið hafa. Og það þyrfti að kanna þetta meðal allra stétta og ekki sízt — allra aldursflokka. Og til þess að vita, hvert stefndi, þyrfti að athuga, að hve miklu leyti bókakaup landsmanna hafi aukizt í ldutfafli við aukna velmegun þeirra. Fyrr en þetta hefur verið gert, getum við ekki fullyrt neitt um bókhneigð þjóðarinnar nú á tímum, en það er hún, sem máli skiptir, ekki bókakaupin. Það er víst um það, að við íslendingar lesum mikið blöð, en þó efast ég um það, að það sé neitt meira en t. d. Norðurálfumenn yfirleitt. En dagblöðin eru mikilsverður þáttur í lífi nútíma- mannsins, og þá aðallega borgarbúans. Iivort sem okkur likar betur eða verr, og livað sem við segjum og ætlum okkur, þá verjum við miklum tíma til þess dag hvem að lesa blöð. Svo fastur er sá vani. Ilvað skyldum við eyða mörgum dögum á ári við blaðalestur? Þeir sem miðla okkur þeirri andlegu fæðu og knýja okkur að talsverðu leyti til að lesa það, sem þeir skrifa, gegna því rnjög ábyrgðarmiklu hlutverki i þjóð- félaginu. Þeir ha'fa meiri og minni áhrif á skap okkar daglega og á skoðanir okkar. Þess vegna ætla ég að fara nokkrum orðum um íslenzk blöð. Um nokkurra ára skeið vom Norðurlanda- blöð daglegur lestur minn með morgunkaffinu, og mér er þvi næst að taka þau til samanburð- ar. I blöðum hinna Norðurlandanna er liægt að ÚTVARPSTÍÐINDI 25

x

Útvarpstíðindi : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/727

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.