Útvarpstíðindi - 23.07.1945, Blaðsíða 2
146
ÚTVARPSTIÐINDI
GIN I GIN.
Eftirfarandi visu orti Ágúst L. Pét-
ursson, er kunningi hans hressti upp
á hann og gaf honum að drekka gin:
— Tíðum hressir vinur vin
ó víni ýmiskonar.
Jón, hann helti gin í gin
Gústa Péturssonar.
Og morgunin eftir varð þessí vísa til:
—- Mjaðar hiklaust döggin draup
í drengja hvilcum solli.
Ailt of mikið á ég saup,
er því ryk í kolli.
HANN SA BETUR TIL.
Það var að kvöldiagi og skuggsýnt
var á götum úti. Við eitt götuljósið, sá
lögregluþjónn mann, sem skreið ó fjór-
um fótum á götunni. Lögregluþjónin-
Uin þótti maðurinn grunsamlegur, gekk
til hans og spurði hvað að honum væri.
Maðurinn leit upp og var all rykaður.
Ég varð fyrir því óhappi að týna 10
krónum, sagði hann. — og haldið þér,
að þér hafið týnt þeim nákvæmlega á
þessum stað? spurði lögregluþjónninn.
— Nei, nei, ég týndi þeim hinumegin á
götunni, svaraði maður. — Og því eruð
þér þá að leita hér? spurði lögreglu-
þjónninn hvatskeitslega. — Maðurinn
varð hissa á svo fávíslegri spurningu
og svaraði um leið og hann hélt leitinni
áfram: — Það er svo miklu betri birta
hérna megin á götunni, eins og þér
hljótið að sjá.
koma út liálfsmánaCarlega. Árgangur-
inn kostar kr. 25.00 og greiðist fjrrir-
fram. Afgreiðsla Hverfisg. 4. Sími
5046. Útgefandi h. f. Hlustandinn.
Prentað í preritsmiðjunni „Fróði“
Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Vilhj.
S. Vilhjálmsson, Þorsteinn Jósepsson.
BÆN TIL GIJÐS.
Eftirfarandi vísa er ort af B. J.
nokkru fyrir ófriðarlokin í Evrópu.
Leyfa Útvarpstíðindi sér að taka hana
upp, enda þótt nokkuð sé frá liðið og
höfundur búinn að fá bænheyrslu,
minnstakosti að nokkrum hluta hennar:
— Láttu enda ófriðinn,
efldu bræðralagið.
Dreptu Hitler, Drottinn minn
og djöflinum gefðu bræið.
CHURGHILL BAÐ EKKI UM
MIKIÐ.
Churchill, Stalin og Hitler voru allir
staddir við hliðið hjá Lykla-Pétri. —
Pétur vék sér að þeim og spurði þá
hvers þeir óskuðu sér. Hitler varð fyrst-
ur fyrir svörum, lítur hornauga til Stal-
ins og segir: Ég óska mér, að allir Rúss-
ar væru dauðir. Næstur kom Stalin og
kvaðst óska að allir Þjóðverjar væru
dauðir. — En livers óskar þú, herra
minn, mælti Pétur til Churchills. •—
Viljið þér ekki uppfylla óskir hinna
fyrst. Síðan þætti rnér vænt um ef ég
fengi vindil og góðan sjúss.
LITIL SAMKEPPNI.
Sumir halda því fram, að það sé auð-
velt að koma sér áfram í heiminum á
heiðarlegan hátt, því á því sviði sé
samkeppnin svo sára lítil.