Útvarpstíðindi - 23.07.1945, Blaðsíða 3
ÚTVARPSTÍÐINDI
147
ÚTVARPSHÖLLIN NÝJA
Utvarpsstjóri með sérfræðingum í Bandaríkjunum
Jónas Þorbergsson útvarpsstjóri,
ásamt þeim Gunnlaugi Briem verk-
fræðingi útvarpsins og Agúst Pálssyni
arkitekt dvelja nú í Bandaríkjunum í
erindum Ríkisútvarpsins.
Útvarpsstjóri og starfsmenn hans
eru að athuga möguleika fyrir hina
nýju útvarpshöll, sem á að rísa í
Reykjavík, en fyrirhugað er að hún
verði ekki að eins eitt veglegasta hús
landsins heldur og búin á allan hátt
fullkomnustu gæðum á borð við út-
varpshallir annara þjóða.
Útvarpsstjóri hefur staðið í sam-
bandi við heimsfrægan bandarískan
arkitekt sem hefur getið sér sérstakt
orð fyrir teikningar slíkra húsa og
mun hann ásamt Ágústi Pálssyni vinna
að teikningum hallarinnar. Eins og að
líkum lætur kcmur margt til greina
við gerð og útbúnað slíkra húsa
sem ekki þarf að taka tiiiu iil við gerð
annara húsa. Skyldi sá, er þetta ritar
það bezt er hann skoðaði hið glæsi-
lega Rad'chus í Kaupmannahöfn, en
þac er eitt af glæsilegustu byggingum
Kaupmannahafnar frá hinum nýja
tíma. En grein um það og útvarps-
rekstur Dana, eftir Per Björnsson
Soot, sem strrfar við r,''"ska útvarpið
kemur innan skamms f itinu.
Jónas Þorbergsson hefur alllengi
unnið að undirbúningi útvarpshallar-
innar og mun hafa fengið loforð fyrir
lóð undir hana, á Melunum, en þar
eiga að rfsa í nálægð mörg glæsileg
stórhýsi, meðal annara Neskirkja og
bygging fornminjasafnsins. — Gunn-
laugur Briem verkfræðingur fór með
útvarpsstjóra vestur um haf vegna
verkfræðilegs útbúnaðar hallarinnar.
Útvarpsstjóri óskaði ekki að skýra
lesendum Útvarpstíðinda nánar frá
ætlunarverki sínu vestan hafs, en lof-
aði að hann skyldi gefa blaðinu upp-
lýsingar um allt þetta mál, þegar hann
kæmi heim og vitað væri um árangur,
en hann kvaðst vona að hann þyrfti
ekki að dvelja vestra nema mánaðar-
tíma.
Munu allir útvarpshlustendur óska
þess eindregið að ferð þeirra félaga
gangi scm bezt. Við höfum mjög
mikla þörf fyrir hina nýju byggingu,
því að allur aöbúnaður útvarpsins og
starfsfólks þess í Landsímahúsinu er
mjög bágborinn og stendur stofnun-
inni fyrir þrifum.
EINUM ÞORPARA FÆRRA.
Geröu sjál.'. n þig að heiðarlegum.
manni, og þá getur þú glaðst yfir þvi,
að í heiminum sé einum þorpara
fœrra. Carlyle.