Útvarpstíðindi - 23.07.1945, Síða 4
148
ÚTVARPSTÍÐINDI
STEINDÓR SIGURÐSSON:
FERSKEYTLAN
Af tilefni vísna-verSlaunasamkeppninnar sendir Steindór skáld
Sigurðsson eftirfarandj stökur um ferskeytluna.
Þegar allt vill angra mann,
ylinn færa í bæinn,
er það stakan ein sem kann
eins og fyrri daginn.
Vertu ávalt, vísan mín,
vinurinn allra bezti,
oft hefur verið ást til þín
allt mitt veganesti.
Finn ég streyma yl og óm
opnist Bragalundir,
rennur allt í rím og hljóm
raular stakan undir.
Fram í hugann fljúga að
fornu minningarnar.
Léttan þeysa heim í hlað
horfnu kynningarnar.
Allt um stund fær aftur róm,
inst í brjósti hljóðu.
Gamalt sólskin, blað og blóm
blíkjar gullinmóðu.
Þegar bítur brjóstið stál
beiskra hugrenninga,
vaka eins og vor í sál
vísur íslendinga.
En á vörum alþjóðar
yndislegust var hún.
Gegnum aldir áþjánar
uppi málið bar hún.
Ferskeytlan sinn óm og yl
óf í þeirra drunga,
og svo glæst, að enn er til
íslenzk þjóð og tunga.
Gegnum aldir, yfir höf,
inn til dala og fjalla,
íslendinga göngu ao gröl
glitaði hún alla.
Steindór Sigurðsson.