Útvarpstíðindi - 23.07.1945, Side 6

Útvarpstíðindi - 23.07.1945, Side 6
150 ÚTVARPSTÍÐINDI ur og las óhemju mikið utan náms- greina sinna, einkum skáldskap og fagurfræði. A stúdentsárunum las hann einkum rit Heines og danska trú- spekingsins Sören Kirkegaards og er engum blöðum um það að fletta, að Kirkegaard hefur haft djúpstæð áhrif á stíl hans og alla lífsskoðun. Einkum varð hann snortinn af hinni sárbeittu gagnrýni Kirkegaards á ríkiskirkjunni, þjóðkirkjunni, trúleysi hennar, and- leysi, hræsni og skinhelgi. Hann bar aftur á móti djúpa lotningu fyrir fylgjendum Hans Nielsons Hauge, hins mikla alþýðlega trúvakningamanns, hinum lifandi trúaranda, sem meðal þeirra ríkti, auðmýkt þeirra, kærleika og þegnskap. í skáldsögunni Worse skipstjóri tefl- ir hann þeim beinlínis fram gegn glamuryrða guðfræði og skinhelgivillu ríkiskirkju prestanna og gerir þeirra hlut hinn ömurlegasta og broslegasta. Árið 1872 kvæntist Kielland og keypti sama ár tígulsteinaverksmiðju f Stavanger, sem hann rak til 1881. En samtímis sökkti hann sér niður í lestur og skáldskapariðkanir, las heim- speki og náttúrufræði, og beztu rit- höfunda Evrópu. Orslitum í lífi hans ræður svo það, er Georg Brandes kemur fram upp úr 1870, með kröfur sínar um það, að bókmenntirnar skuli vera lifandi vettvangur, sem leggi vandamál fram til umræðu (,,sætter Problemer under Debat“). Á áratugnum milli 1880 og ’90 var enginn rithöfundur snjallari í því á Norðurlöndum, en Alexander Kielland. Veturinn 1878 dvelzt hann í París og umgengst þá Björnson og skáldið og stjórnmálamanninn Edvard Brandes. Árið eftir gefur hann út fyrstu bók sína „Smásögur” (Wævelletter) og kemur þar þá þegar fram, sem frá- bær stílsnillingur. Allar bækur hans, sem nokkuð kveður að eru skrifaðar á næstu 12 árum. Eftir 1891 skrifar hann nálega ekki neitt. Mönnum eru orsakirnar ekki að fullu Ijósar. Maðurinn er á bezta aldri aðeins 42 ára gamall. En hann er þeg- ar farinn að kenna hjartabilunar og má vera að sjúkleiki hans sé farinn að há vinnuþreki hans meira en nokkurn gat grunað, sem sá þennan glæsilega höfðingja, aðsópsmikinn og jafnframt frábærilega tiginmannlegan í fasi. Ég held persónulega, að Kielland hafi verið gæddur þeirri fágætu sjálfs- rýni að skynja hvenær hann hafði unnið sitt ágætasta verk og að sjálfs- agi hans hafi varnað honum þess að fara að elta sjálfan sig ofan brekkuna. Or þessu steinþagnaði hann til dauða- dags, eins og það hefði aldrei í hug hans hvarflað að skrifa bækur. Kielland, sem var fæddur höfðingi kunni ekki að horfa í smáskildinginn og átti því einatt í fjárkröggum. Prestur nokkur, sem mjög lét að sér kveða í stjórnmálum Noregs, Lars Oftedal, fékk því til leiðar komið, að stórþingið felldi það að veita Kielland dálítil skáldalaun. Björnson og aðrir helztu andans menn Noregs höfðu brotist í að afla honum þessarar við- urkenningar árið 1885. Kielland sárnaði þetta og má vera að það hafi enn stutt að því, að hann hætti að skrifa. Hann gerðist borgar- stjóri í Stavangri árið 1891 og árið eftir amtmaður í Romsdal. Hann dó árið 1906.

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.