Útvarpstíðindi - 23.07.1945, Page 18

Útvarpstíðindi - 23.07.1945, Page 18
<162 ÚTVARPSTÍÐINDI „amatör“, sem virðist hafa þó nokkra hæfileika til að bera, en skortir samt greinilega „teknik“ til þess að geta not- fært sér hina eiginlegu hljóma, sem heima eiga í þeim lögum sem hann lék. Vonandi eigum við eftir að fá að heyra í fleiri góðum hljófæraleikurum, því vafalaust eru nokkrir enn, sem hlust- endum hefir enn ekki gefist kostur á að heyra í, og langar mig í því sambandi að minnast á einn mann, Friðrik Stein- dórsson að nafni, sem að margra áliti, er mjög efnilegur píanóleikari, og hefir lagt sérstaka stund á „jazz“-músík, og mun hann einnig geta gefið hlustendum kost á að hlusta á nútíma dansmúsík leikna á orgel-harmoníum. GÓÐ UPPÁSTUNGA. Heyrst hefur, að þeir, sem alltaf eru áheyrendur, en aldrei ræðumenn, á samkomum og mannfundum, séu að mynda með sér samtök og krefjist þess að ræðumenn verði skyldaðir til þess að standa á öðrum fæti, meðan þeir flytji ræður sínar. Er talið að slík ráð- stöfun myndi útiloka löng og þreytandi ræðuhöld, enda verði ströng viðurlög sett við því að ræðumenn skipti um fót, eða tylli niður annari tánni, með- an þeir flytja ræður sínar. ÚTVARPSVIÐGERÐASTOFA Ottó B. Arnar Klapparstíg 16 Revkjavík annast allskonar viðgerðir á útvarps- tækjum og öðrum skyldum tækjum- Fyrsta flokks vinnustofa og góðir starfs- kraftar. Sanngjarnt verð. - 20 ára reynsla — Sími 2799 RÍKISÚTVARPIÐ Takmark Ríkisútvarpsins og ætlnnarverk er að ná til allra þegna landsins með hvers- konar fræðsln og skemmtnn, sem því er nnnt að veita. ADALSKHIFSTOFA ÚTVARPSINS annast nm afgreiðslu, fjárhald, útborganir, samningagerðir o. s. frv. — Útvarpsstjóri er venjulega til viðtals kl. 2—4 sfðd. Sími sknf- stofunnar er 4993. Sími útvarpsstjóra 4990. LNNHEIMTU AFNOTAGJALDA annast sérstök skrifstofa. — Sími 4998. ÚTVARPSRÁÐIÐ (Dagskrárstjómin) hefur yfirstjóm hinnar menningarlegu starfsemi og velur útvarps- •fni. Skrifstofan er opin til viðtals og af- greiðslu frá kl. 2—4 síðd. Sími 4991. FRÉTTASTOFAN annast um fréttasöfnun innanlands og frá útlöndum. — Fréttaritarar em í hverju hér- aði og kaupstað landsins. Sfmi fréttastofu 4994. Sími fréttastjóra 4845. AUGLÝSINGAR Útvarpið flytur auglýsingar og tilkynningar til landsmanna með skjótum og áhrifamikl- um hsetti. Þeir, sem reynt hafa, telja út- varpsauglýsingar áhrifameetar allra auglýs- inga. Auglýsingasími 1095. VERKFRÆÐINGUR ÚTVARPSINS hefur daglega umsjón með útvarpsstöðinni, magnarasal og viðgerðastofu. Sími verk- fræðings 4992. VIÐGERÐARSTOFAN annast um hverskonar viðgerðir og breyt- ingar viðtækja, veitir leiðbeiningar og fræðslu um not og viðgerðir viðtækja. Sfsai viðgerðarstofunnar 4995. TAKMARKIÐ ER: Útvarpið inn á hvert heimilil Allir lands- menn þurfa að eiga kost á því, að hlusta á æðaslög þjóðlífsins; hjartaslög heimsins. ' BíkisátvarpiO. /

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.