Útvarpstíðindi - 23.07.1945, Qupperneq 23
ÍITVARPSTIÐINDI
167
„Þó Þjóðviljinn sé ekki alltaf
prentvillulaus og margt megi
að honum finna, þá er hann þó
ef til vill bezta eignin í hverju
smáu húsi á landinu. Þetta virð-
ist ekki trúlegl í fyrstu, en þeg-
ar við gætum að, sjáum við
fljótt, að fá vopn voru sterkari
en hann í þeirri baráttu, sem
háð hefur verið til þess að bæta
gengi vinnandi manna á íslandi.
Alltaf stóð hann fremsíur, þegar
barizt var um líf og afkomu
launþiggjandi verkamanna, vissu
lega gat honum skjátlazt í mörgu
atriði, en stefnan var alltaf rétt
af því takmarkið var að hefja
alþýðuna í landinu til betra lífs,
vegsamlegri kjara. Sumu fékkst
framgengt, öðru várð afstýrt af
því Þjóðviljinn gekk fram fyrir skjöldu. Hvenær sem átti að svipta al-
þýðuna einhverjum góðum hlut, var Þjóviljanum að mæta. Og hvenær
sein alþýðan var þess umkomin á einhverjum stað að hefja baráttu fyrir
öflun góðs hlutar, var Þjóðviljinn sterkasta vopnið í höndum hennar. Ekkert
er jafnauðvelt og benda á galla hans, en aldrei í nokkurt skipti brást hann
í máli, sem varðaði velferð alþýðunnar og eflingu verkalýðsstéttarinnar".
AIÞÝÐUMENN!
Gerfct áskrifendur Þjóðviljans meí því a3 skrifa eía hringja til
afgreiðslunnar, SkólavörSustíg 19, Reykjavík, sími 2184. —
Verðið er 6 krónur á n ánuÖi í Reykjavík, 5 krónur úti á landi.
Halldór
Kiljan
Laxness
ritar:
ÞJOÐVILJINN
BLAÐ
ÍSLENZKRAR
ALÞÝÐU