Kristilegt stúdentablað - 01.12.1947, Blaðsíða 7

Kristilegt stúdentablað - 01.12.1947, Blaðsíða 7
KRISTILEGT STÚDENTABLAD « Hvað gerum vér, til þess að kirkjan lifi? Hvað ber oss að gera, til þess að hún lii'i? Ilvað hafa fremstu menn kristinnar kirkju á ýmsum öldum gert fyrir líf hennar?* Um kristna kirkju hefur oft verið sagt með orðalagi Páls postula, að hún sé likami Jesú Krists. Hún er samfélag þeirra, er á hann trúa, sam- félag um líf í honum. Kirkjan hér á jörðu er ekki samlelag heilagra engla, heldur syndugra manna, sem eru allt annað en heilagir, þegar lit- ið er á þá sjálfa. En í Jesú Krisli eru þeir þó samfélag heilagra fyrir trúna á hann. Þeir hafa það sameiginlegt, að þeir trúa því, að Drottinn Jesús Kristur sé Frelsari þcirra og lífsvon, þrátt fyrir syndina i heiminum og öfl dauðans í mönn- unum og umhverfis þá. Hin trúuðu börn krist- innar kirkju liafa jafnan játað, að eilífa lífið, fyrirgefning syndanna og náðin, sannleikurinn og kærleikurinn sé í Jesú einum. „Und ist kein and- erer Gott“, segir Lúther um Jesúm Krist. Þar sem kirkjan er líkami Jcsú Krists, þá kunna menn að spyrja: „Þarf nokkuð að gera, til þess að hún lifi? Fyrst eilífa lífið er í honum og kirkj- an er líkami hans, er þá ekki einnig gefið, að hún sé ódauðleg?“ Vér vitum, að limur á likama getur særzt og jafnvel orðið viðskila við likamann og dáið, þótt líkaminn lifi áfram. Veraldarsagan sýnir oss heil- ar kirkjur, sem dóu, og meðlimir þeirra liættu að trúa á Guð. Nú á þessari öld hafa milljónir manna meðal hinna kristnu þjóða fallið frá kirkj- unni og misst allt samfélag við Guð. Jesús gerir sjálfur ráð fyrir þessu allvíða í kenningu sinni, en þó einna greinilegast í dæmisögunni um vín- viðinn og greinarnar. ,.Ég er hinn sanni vínviður og Faðir minn vínyrkinn. Sérhverja grein á mér, sem ekki ber ávöxt, sníður hann af, og sérhverja grein, er ber ávöxt, hreinsar hann, til þess að hún beri meiri ávöxt. Þér eruð þegar hreinir vegna orðsins, sem ég hef talað til yðar. Verið í mér, þá verð ég líka i yður. Eins og greinin getur ekki horið ávöxt af sjálfri sér, nema hún sé á vínviðnum, þannig ckki heldur þér, nema þér séuð í mér. Ég er vín- viðurinn, þér eruð greinarnar, sá, sem er í mér og ég í honum, hann ber mikinn ávöxt, því að án mín getið þér alls ekkert gert. Hver, sem ekki er i mér, honum verður snarað út eins og greinunum, og hann visnar“ (Jóh. 15, 1—6. Hér segir Jesús oss einmitt það, sem vér þurf- um að vita og gera, til þess að kirkjan lili. Lífið er í honum, cn utan lians er dauðinn vís sérhverri visnaðri grein. Orðin voru að visu töluð til fyrstu lærisveina hans, en þau eiga við um þá, sem á hann trúa á öllum öldum. Orð hans, orðið, scm hann talaði, og orðið, sem postularnir töluðu um hann, hefur ævinlega verið kristinni kirkju lífslindin mikla og eina. Þelta orð þarf að varðveita og boða, til þess að kirkjan lifi. Það er henni eins nauðsynlegt til lífs, eins og blóðið er nauðsynlegt hinum mannlega líkama. Það liefur tvöfalt lilutverk: Það fjarlægir ónauð- synleg og skaðleg efni fró líkamanum, vinnur hug á sóttkveikjum, sem komizt hafa inn í hann, og það flytur þrótt og næringu um hann allan, til allra lima hans. „Hinn sanni fjársjóður kirkjunnar er hið allra- heilagasta evangelíum um dýrð og náð Guðs.“ Þannig ritaði Marteinn Lúther árið 1517, er sið- hótin hófst. Og árið 1947 lét lútherska kirkjan þessi orð standa í upphafi þess hoðskapar, er hún sendi út 1 heiminn frá alþjóða lútherska kirkju- þinginu i Lundi. Þessi kirkja lítur þannig á, að hún lifi af fagnaðarerindinu. Þetta fagnaðarerindi her oss að hoða, lil þess að kirkjan lifi. Um leið og kirkja vor varð til, cignaðist hún 7

x

Kristilegt stúdentablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristilegt stúdentablað
https://timarit.is/publication/734

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.