Kristilegt stúdentablað - 01.12.1947, Blaðsíða 19

Kristilegt stúdentablað - 01.12.1947, Blaðsíða 19
KRISTILEGT STÚDENTABLAÐ Séra cHdruá Jía oriáoii: 99Ækademiskttr kristindómurss Getur háskólaborgari verið trúaður? Ef ])ú hitt- ir trúaðan stúdent, mælir þá ekki allt með því, að hann sé örðinn ruglaður í kollinum? Mælir ekki l'lest á móti því, að stúdent og krist- indómur eigi saman? Sú skoðun hefur legið lengi í landi, að kristin trú eigi litla samleið með sannri menntun og vísindum. Þetta líkist mest þegjandi samkonmlagi hjá meirihluta íslenzkra menntamanna nú um alllangt skeið. Almennings- álitið dregur þá ályktun, að það, scm mennta- mennirnir hafna eða líta niður á, sé einskis virði lyrir alla, því að „vísindi" er fínt orð nú til dags, og finnst mörgum sem orðið eitt feli í sér alla vizku veraldar. Hjá því verður ckki komizt, að kristindómur- inn virðist lítinn hljómgrunn eiga hjá mennta- mönnum þjóðarinnar. Hver er orsökin? Hlýtur kristin trúarafstaða og vísindaleg þekking að úti- loka hvort annað? Er það að kenna mennta- mönnunum eða kristindóminum, og er möguleiki á, að þessi afstaða breytist? Er fáfræðin nauð- synleg trúnni á Guð eins og sumir segja, svo að hinn lærði hljóti að taka aðra alstöðu vegna þekk- ingar sinnar? Eru menntamenn af þessum sök- um vantrúaðri en aðrir þegnar þjóðfélagsins, og því þarf svo að vera? Þetta eru spurningar, sem gaman er að kryfja til mergjar. Að eðlisfari eru íslenzkir menntamenn hvorki trúaðri né vantrúaðri en gerist og gengur. Þegar um kristindóminn er að ræða, reynast allir menn vantrúaðir og efasjúkir fyrst í stað, — og sumir hætta því aldrei. Kristindómurinn heitir mönnum sælu, en gerir um leið hverjum manni kröfur, sem honum finnst óþægilegt að ganga að og not- ar allt, sem handbært er, til að skjóta sér undan. Menntamaðurinn felur sig hak við lærdóm sinn, afsakar sig með honum, þvi að það er handhæg- asta varnartæki lians gegn kristindóminum. En hann er ekkert öðru vísi gerður en aðrir menn. Hann hefur jafna möguleika og allir aðrir til að vera trúaður — eða vantrúaður, hvort sem hann kýs. Þekking hans og vísindi þurfa siður cn svo að útiloka trúna, nema hann kjósi að hlaða þeim um sig til varnar. Trúaðir nútíma vísindamenn eru a. m. k. eins margir til í heiminum og vantrúaðir. Heims- frægir menn á sviði læknisfræði, eðlisfræði, mál- fræði, verkfræði, jarðfræði og ýmissa annarra vís- indagreina, sem eru þó fyrst og fremst kristnir og hika ckki við að játa það. Hjá þeim verð- ur eklcert varl við það, að vísindin útiloki trúna eða öfugt. öðru nær! Það styður einatt hvað annað. Biðjandi vísindamaður er alls ekki eins sjald- gæl't fyrirbrigði i heiminum og ætla mætti. Biblí- an liggur víðar i vinnustofum vísindanna en mörgum íslenzkum busanum kemur til hugar. Hún er þeim alls ekki fjötur um fót, heldur ol't og einatt styrkur og hjálp í visindastarfinu. Vísindin rannsaka það, sem augað sér og liend- urnar þreifa á, — og í sumum greinum það, sem hvorki er hægt að sjá né höndla. Biblían bend- ir manni á Guð sem upphaf og tilgang alls, sem er. Bekst þetta á? Margir íslenzkir stúdentar hefðu gott al' að hug- leiða það, að fátt hindrar menn meira í því að trúa á Guð en cinmitt fáfræðin. Er það ekki skammarleg fáfræði og ósamhoðin akademiskum borgara að hafa aldrei kynnt sér hoðskap Bihlí- unnar? En fáfræðin er vantrúnni nauðsyn, ann- ars kann hún að þrifast verr. Margir menntamenn mundu skammast sín fyr- 19

x

Kristilegt stúdentablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristilegt stúdentablað
https://timarit.is/publication/734

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.