Stundin - 01.02.1941, Síða 9

Stundin - 01.02.1941, Síða 9
Danskinum og berast mikið á í mat og drykk, óhófi og nautna- lyfjaneyzlu, og reynt í þeim efnum að semja sig að háttum villtasta lúxusskrílsins í heims- borgunum og stuðzt við kitlandi frásögur kriminalsöguhöfunda. En skemmtanalífið var og er formlaust, markmiðslaust og án sýnilegs árangurs. Hér helzt hverjum óvöldum dóna uppi að ryðjast til háborðanna án þess að varpa af sér stórhríðarúlpu ómenningarinnar né semja sig í neinu að siðum siðaðra. Eitt gleggsta dæmi um þetta eru félagdansleikirnir á Hótel Borg, er hér hafa borið hátt hin hinstu ár. í salarkynnum lúxus- klúbbanna í heimsins munaðar- sömustu borgum getur ekki að líta gjörvulegra fólk né klætt dýrari klæðum, því í dýrum klæðum hefir íslenzka konan náð lengst á þroskabraut kven- legra kosta og ókosta. Gim- steinaskrautið vantar haná enn. En smekkvísin er ekki alltaf í samræmi við hin dýru föt. Dýrt, dýrt, vandað, vandað — en Ijótt. Þetta skörulega fólk sezt að veizluborðunum með ólund, og þó borðræðurnar séu ósjaldan magnaðar viti og orð- kynngi, eru þær að jafnaði flutt ar af dauðu, stemningslausu fólki fyrir daufa og ómóttæki- lega áheyrendur. Matnum er sporðrennt með olnbogaskotum og mathákshætti, án sýnilegrar velþóknunar á einu eða neinu. Það þykir hlýða að borðherr- ann sé afundinn og fáskiptinn við dömu sína, því annað kynni að verða lagt honum til lasts, og borðdömurnar leita því til annarra manna í orðum og at- höfnum óg af þessu leiðir móðganir og margháttaðan mis- skilning ásamt eilífum yfirrétt- ingum, hnippingum og köllum um þetta og hitt, sem mjög ein- kennir íslenzk veizluborðhöld. (Framh. á næstu síðu.) Æfintýrið um heiðursmennina Það er sagt, að fyrrum hafi verið til heiðursmenn, en sagn- irnar um þá lifa nú aðeins í munnmælum og eru af sérfróð- uf mönnum taldar til æfintýra, og getur því nokkur vafi leikið á því, hvort óhætt muni að treysta sögnum þessum. Enginn veit heldur, hvernig heiðursmennirnir hafa til orðið, en samt er talið, að menn hafi rekizt á þá, ef svo mætti segja, á förnum vegi. Ekki er kunnugt um neinar samþykktir, er veittu þeim nafnbótina, og ekki voru heldur til nein lög, er gættu réttar þeirra. En samt voru þeir til. Gera fræðimenn því helzt ráð fyrir, að óbreytt alþýða hafi í einfeldni sinni. orðið vör einhverra sérstakra eiginleika, er til kosta gætu talizt, hjá þessum mönnum, svo að henni fannst hún þurfa að gefa þeim þessa nafnbót, en hverjir þessir eiginleikar voru, vita menn ekki lengur. En hljóð- og ritmynd orðsins hefir haldizt, þó að merking þess hafi glatazt, líkt og langspil, sem enginn eða fáir kunnu lengur að bæra til hljóms, en er þó til á safninu sem ,,heiðursmaðurinn“ í orðabókinni. Frá síðari tímum finnast margar skjalfestar heimildir þess, að ýmsir urðu heiðursmenn á afmælum eða sérstökum tylli- dögum, en flestir urðu heiðurSmenn, er þeir voru dauðir. Er það einmitt talið augljóst merki þess, að eitthvað einkennilegt, ef ekki yfirnáttúrlegt og torskilið, hlaut að vera tengt þessu hugtald, heiðursmaður, en gaf jafnframt til kynna, að menn voru orðnir næsta óvissir um upprunalega merkingu hugtaks- ins, eins og að vísu dauðinn sjálfur hefir verið mönnum ráð- gáta, og var og er því auðveldast og ábyrgðarminnst að við- hafa einmitt sem torskildust hugtök í því sambandi. En svo fór að lokum, að einföld alþýðan þekkti ekki lengur neinn þann, er nafnbótar þessarar væri verður. En, bræður góðir, alþýðan hefir jafnan átt augu og önnur æðri og óæðri skiln- ingarvit meðal einstakra borgara, og þeim tókst líka með hjálp hennar, einkum lófataki, að skapa nýja heiðursmenn, svo að þeir koma fram spegilfagrir eins og málmurinn úr deiglunni, mitt á meðal annarra dauðlegra manna. Og þeir sköpuðu heið- ursfélaga (félagar voru einhvern tíma í fyrndinni skyldir til að deila giftu, þraut og þoli með bræðrum sínum, og var þar engin fórn of mikil né afrek svo hreystilegt, að ekki ættu allir jafnan hlut, en hvort svo er um heiðursfélaga, vita menn ekki), heiðursstúdenta, heiðursdoktora, heiðursprófessora, heið- urspresta, heiðursborgara og svo framvegis. Og til þess að eng- inn skyldi efast um, að hér væri um sérstaka heiðursmenn að verðleikum að ræða, sem ekki hefðu til orðið við einfalda reynslu fávísrar alþýðu, settust, e. t. v. með nokkrum van- höldum, 49 valdir völdustu menn þjóðarinnar á þægilega stóla til að tryggja með löggjöf einkunn þessa. Fræðimenn okkar hafa hugað gjörla að því, hvaðan hann kemur eða hvaðan hann er tekinn, þessi heiður, sem dembt er yfir alsaklausa borgara. Vegna ýmissa rannsóknarerfiðleika hafa þeir að vísu látið sér nægja að hugsa og tala um málið, STUNDIN 9

x

Stundin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.