Stundin - 01.02.1941, Qupperneq 18

Stundin - 01.02.1941, Qupperneq 18
Remisow: PLATON; SÚ RÁÐKÆNA Það var einu sinni fátækur maður, sem aldrei lagðist neitt til og sem slysinn var í öllu. Hann var steinhættur að hugsa til fjár og frama, og hon- um var aðeins eitt í mun, að guð hjálpi honum að bjargast af hvern daginn. Hann var fjölskyldumaður og átti konu og börn og bjó með þeim í ást og eindrægni, en hann hafði ekkert til að lifa af. Og neyð hans jókst stöðugt. Loks hafði hann ekkert til að bíta og brenna. Prochor gekk heiman, og hann vissi ekki sjálfur, hvert hann ætlaði, en hann varð að fara, peningalaus gat hann ekki komið aftur. En hvar átti hann að finna peninga, af himnum ofan fellur ekki svo mikið sem einn kopek. Og hjarta hans var biturt. ,,Ef djöfullinn vildi gefa mér peninga, skyldi ég selja honum sál mína til þess að geta satt börnin.“ Naumast hafði honum dottið djöfullinn í hug, er hann birtist honum. „Góðan daginn, Ivan- ytsch,“ sagði hann. En í lófa hans glitraði á gullpening. „Viltu þiggja hann þennan?“ Leyfið mér að spyrja, á hvern renna ekki tvær grímur, þegar hann sér glóandi gull? JÆJA, komdu með það, og Próchor teygði hönd sína eftir gullpeningnum, en djöf- ullinn sagði: „Þú ert of ákafur, Ivanytsch. Fyrst verðurðu að vinna til þess, þá geturðu fengið gullpeninginn. Réttu mér löngu (Framh. á næstu síðu.) Stjórnarhættir stjórnskipulag. — Einræði. JÆJA, þá eigum við eftir, sagði ég, að taka til rækilegrar athugunar hið ágætasta stjórnskipulag og hinn ágætasta mann, einræðið og harðstjórann. — Rétt mælir þú, sagði hann. — Jæja þá, kæri vinur, hvernig fer þá fram hvarfið til ein- ræðisins? Að það sé andsvar við lýðræðinu er sennilega aug- ljóst. — Kemur það fram á sama hátt og lýðræðið upp úr auðveldinu? — Hvernig þá? — Það, sem auðveldið hugði hið eftirsóknarverðasta, var auðæfi.... En fégræðgin og van- rækslan á öllu öðru en fjáröflun leiddi til glötunar þess. — Og hrynur ekki lýræðið vegna óseðjandi græðgi 1 það, sem það telur vera hið eftirsóknarverðasta? — Við hvað áttu með þessum orðum? — Frelsið, svaraði ég. Því að það muntu alltaf heyra talið í lýðræði vera það ágætasta og að í því megi að- eins sá búa, sem að eðli og háttum sé frjáls maður. — Þetta er sannarlega margheyrður vísdómur. — En er það ekki ein- mitt taumleysið á þessu sviði, ásamt vanrækslu allra annarra mála og hluta, sem breytir stjórnskipulaginu og leiðir til þess, að þörf verður á einræði? — Hvernig má þetta vera? — Ég held, að þegar lýðræðið á kost á slæmum kjölluruf, og ef þegn- arnir drekka of mikið af sterku víni, þá muni þeir draga yifr- völdin fyrir lög og dóm, ef þau ekki eru liðleg og veita fullkom- ið frelsi, og þeir munu sakfella þau, að þau séu illgjörn og fjár- veldis-sinnuð. — Já, þannig fara þeir að, sagði hann. — En fólkið, sem hlýðir yfirvöldunum, er talið vera þýlundað og einskis vert, og einungis embættismenn, sem hegða sér eins og þjónar, og þjónar, sem hegða sér eins og embættismenn, eru lofaðir og í hávegum hafðir, bæði opinberlega og í þröngum hóp. Hlýtur ekki frelsið í ríki af þessu tagi að teygja sig til alls og allra? — Hví skyldi það ekki gera það? — Og þannig, kæri vinur, mun það einnig læðast inn á heimilin og að lokum mun koma að því, að einnig skepnurnar eiga að vera óháðar. — Við hvað áttu nú með þessu? — Þegar til dæmis faðirinn venur sig á að líkja eftir syni sínum og að hræðast syni sína, en sonurinn leikur föðurinn og virðir hvorki né hræðist for- eldrana til þess að vera algerlega frjáls. — Það er nefnilega þetta og enn aðrir svipaðir smámunir, sem við skulum athuga. Kennarinn titrar fyrir nemöndum sínum og skjallar þá, en nemendurnir skeyta engu um kennarana og eftirlitsmennina, og yfirleitt telja sig hinir yngri jafna hinum eldri og ganga gegn þeim í orðum og verkum, en þeir gömlu leitast við að standa þeim jafnfætis um fyndni og kátleg uppátæki, svo að ekki líti svo út, sem væru þeir óánægðir eða stjórngjarnir. — Svo er það, sagði hann. — Nú munt þú sennilega skilja, hvað er aðalatriðið, ef þetta er allt dregið saman: Tekurðu kannske 18 STUNDIN

x

Stundin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.