Stundin - 01.03.1941, Síða 7

Stundin - 01.03.1941, Síða 7
konunga og ráðandi stjórnmála- manna allra þjóða á sömu skör og yfirlýsingar manna, sem hella olíu umhverfis hús og stöðugt kveikja á eldspýtum, en fullyrða samt, að þeir óski ekki eftir að í því kvikni! Þetta form sjálfsblekkingarinnar, sem fel- ur í sér blekkingu annarra, er alls kostar óheiðarlegt. . . Útbreiðslumálaráðuneytið brezka undir stjórn Lord North- cliff var næsta afkastamikið. Aðferðir þess, einkum að hella milljónum flugrita yfir þýzka herinn, tólcu fram öllu, sem ó- vinirnir tókust á hendur....... En auðvitað vitum við, að þess- ir snjöllu útbreiðslumenn eru jafnsnjallir að fást við okkur eftir stríðið sem við óvininn meðan á því stendur. . . í hin- um mörgu fregnum af árangri útbreiðslustarfsemi okkar frá þýzkum herforingjum og þýzk- um blöðum, verður ekki aug- ljóst, að staðreyndir okkar hafi alltaf verið sannleikanum full- komlega samkvæmar. Við til- færum eitt dæmi: General von Hutier við sjöttu þýzku her- deildina sendi boð, þar sem sagt var m. a.: „Aðferð Northcliffs er að dreifa með flugvélum stöðugt vaxandi fjölda flugmiða. Bréf þýzkra herfanga eru fölsuð á svívirðilegan hátt. Flugrit eru samin undir nöfnum þýzkra rit- höfunda, skálda og stjórnmála- manna, eða sem virðast hafa verið prentuð í Þýzkalandi og bera t. d. nafn Reclam-seríunn- ar, þar sem þau raunverulega koma frá prentverki North- cliffs, sem starfar dag og nótt í sama tilgangi. Hugsun hans og takmark er, að þessar falsanir, hversu augljósar sem þær kunna að vera hverjum þeim, er hugsar tvisvar, veki þó efa, þó ekki sé nema augnablik, meðal þeirra, sem ekki hugsa sjálfir, og að traust þeirra til K. Rasmussen: Grænlcnzkar konur I. Hin mannfælna ... Roskin Eskimóakona veiddi urriða í stóru vatni. Þó að ekki væri áliðið vetrar, var ísinn svo þykkur, að hún hafði orðið að beita öllu afli til að höggva gat á hann, svo að hún gæti rennt niður færum sínum. Annað slagið mokaði hún ísdröngl- unum til hliðar með stórri snjóreku. Síðan lagðist hún á kvið- inn til að geta náð betur niður um gatið á ísnum, og við sáum þannig tvo skinnklædda bogna fætur sprikla milli jakanna. Allt í einu þaut upp lítill hvolpur og gelti ákaft. Gamla kon- an spratt upp frá veiðigati sínu og sá bátsmanninn og mig. Hún rak upp óp, greip í hnakkadrembið á hvolpinum og þaut heim á leið, svo sem fætur toguðu. Sleðahundar okkar æstust við flótta hennar og runnu á eftir, og mér tókst að grípa hana á flóttanum og setja hana við hlið mér á sleðann. í augum hennar brann skelfing, en mér kom hlátur á varir, en tár komu þá fram í augu hennar, svo undrandi varð hún, svo glöð varð hún yfir því að vera meðal vina. Þetta var Takornaoq gamia, hin mannfælna. Ofsalega vafði hún hvolpinn örmum, sem enn ýlfraði, en við brunuðum áfram yfir ísbreiðurnar. En skyndilega heyrði ég annað hljóð en hvolpsins, sem vakti undrun mína. Ég beygði mig niður að henni og gætti undir feld hennar og sá smábarn við nakin brjóst hennar, sem læsti höndum að hálsi hennar og grét í köpp við fóstru sína og fósturbróður. Er við komum til heimkynna hennar, sagði Takornaoq, að við værum lifandi menn, en frá landi, sem lægi langt, langt í burtu, hinum megin við hafið. Og hún kynnti okkur alla bústaðarfélagna, og leiddi okkur síðan til húss síns, sem var snotur snjókofi, en allsvalur, unz við höfðum kveikt á lýsislampanum. Er ég og bátsmaðurinn höfðum tyllt okkur á hlýjan hreinfeldinn á skákinni, og kjöt var borið í ketil, set.tist gistimóðir okkar á milli okkar með þeirri óvæntu athugasemd, að hún væri gift okkur báðum, þar sem maður hennar, sem hún að vísu elskaði mjög, væri á ferðalagi. Því næst dró hún hvítvoðunginn úr hlýju hreiðri sínu og lagði hann með móðurlegu stolti á héraskinnssvæfil. Barnið var tvíburi og sonur Nagsuks nokkurs, og hafði hún gefið hund og pönnu fyrir það. Það hafði verið vel borgað, fyrir þennan skinhoraða vesaling, því að Nagsuk hafði sjálfur feitari tvíburann eftir. Hin mannfælna lét móðan másá, og hún var stolt af ætterni sínu, og vildi ekki láta blanda því saman við stofn þeirra, er hér bjuggu. „Pabbi og mamma áttu mörg börn, sem þegar dóu,“ sagði hún. „Pabbi var mikill töframaður, og þar sem hann gjarna vildi eignast börn, fór hann út á ísinn til him- brima og bað hann að hjálpa sér. Og pabbi og mamma segja, STUNDIN 7

x

Stundin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.