Stundin - 01.03.1941, Qupperneq 9

Stundin - 01.03.1941, Qupperneq 9
lönd, og líf mitt hefir ekki verið snautt. Stundum bjó ég við allsnægtir og auð, stundum b.eið ég skort. Og ég hefi einu sinni hitt konu, sem hélt við lífinu með því að éta mann sinn og börn. Ég var á ferð með manni mínum .... og við heyrðum hljóð, sem við ekki gátum áttað okkur á. Stundum var það sem frá brjósti deyjandi dýrs, stundum sem mannsrödd. Er við komum nær, heyrðum við, að þetta hlutu að vera orð. Það voru orð, sem ekki hljómuðu sem orð, og röddin var brostin. Við hlustuðum og héldum áfram að hlusta til að geta greint orðin, og að lokum skildum við, hvað hrópað var. Og röddin kafnaði milli orðanna, en hún reyndi að segja: ,,Ég get ekki lifað lengur meðal manna, ég hefi étið fjölskyldu mína.“ Við heyrðum, að þetta var kona, og við litum hvort á ann- að. Mannæta! Hvað myndi nú verða um okkur? Við lituðumst um og sáum lítið snjóskýli skammt frá okkur. Og enn heyrð- um við röddina, og er við komum nær, sáum við kroppað mannshöfuð. Er til skýlisins kom. sáum við konu á hækjum sínum. Blæddi úr hvörmunum, svo mjög hafði hún grátið. Kikaq (kroppaði fóturinn minn), sagði hún, ég hefi étið eldri bróður minn og börnin mín. Hún nefndi mann sinn eldra bróður og manninn minn kall- aði hún Kikaq. Hún var aðeins skinin beinin og þurrt skinnið, og naumast virtist blóð í æðum hennar. Hún var lítt klædd, því að hún hafði étið föt sín. Og maðurinn minn laut niður að henni, og hún sagði: Ég hefi étið félaga minn frá söng- leikjunum. Og maðurinn minn svaraði: Þú hefir átt vilja til að lifa, þess vegna lifir þú. Við reistum henni tjald skammt frá, því að hún var óhrein og mátti því ekki búa í tjaldi með okkur. Hún reyndi að rísa á fætur, en féll í snjóinn. Við gáf- um henni frosið hreinakjöt, en er hún hafði borðað nokkra bita, tók hún að skjálfa og gat ekki borðað meira. Síðar leit- uðum við umhverfis skýli hennar og fundum hauskúpu manns hennar og barna, og í þeim var enginn heili. Við fundum einnig kroppaða fætur. Við hættum ferð okkar og tókum hana með til Iglulik, því að þar var bróðir hennar. Nú er hún uppáhaldskona veiði- mannsins Igtussarussa, þó að hann ætti þegar aðra konu. Þetta er það hryllilegasta, er fyrir mig hefir komið.“ Úr öllum áttum r r r ————— • • • - Á förnum vegi heyrast oft einkennilegar og torskildar setningar. Orð og setningar eru að öllum jafnaði aðeins töluð af einum munni, en stundum er líkt því, sem í þeim birtist ósk- ir, andvörp og hjartsláttur heilla stétta. Þetta eru ekki orð spekinganna, sem eru töluð til að geymast og vera sígildur sannleikur, og þau eru heldur ekki fyrirfram hugsuð, heldur líkjast þau ósjálfráðri hreif- ingu, líkt og sérhver kippir að sér hendinni, ef hann brennir sig eða vatn komi í munn svangs manns við ilm veizlu- rétta. Eins eru þessi orð. Þau hrökkva af vörum við tilhugsun eða jafnvel þokukennda til- finningu eina. Þau eru sjaldnast færð í letur fremur en öll þau hljóðu handtök, er unnin eru í kyrrþey á hverri verkstöð. Og mörgum er jafnhætt við að heyra þau ekki sem að sjá ekki fábreyttu og hógværu störfin. Þessara orða er heldur ekki getið í skýrslum né þeim gaum- ur gefinn við fjárlagafrumvörp og hverskonar umbætur. Og sums staðar eru tjöld sala- Happdrætti Háskóla fslands í 2. fl. cru 352 vinningar Samtuls 86300 krónum Dregið vcrður 12 apríl STUNDIN 9

x

Stundin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.