Stundin - 01.03.1941, Side 17

Stundin - 01.03.1941, Side 17
lega ljóst, að þeir hafa ráðizt í eitthvert erfiðasta verkefni, sem hægt var að velja. Er því full ástæða til að fagna dirfsku þeirra, en þeir berjast gegn fjölmennari óvinaher en nokk- ur annar flokkur landsmanna. Og sá óvinaher er því erfiðari viðfangs, sem flestir eru yfir- lýstir vinir þeirra. Sjálfstæðis- menn, framsóknarmenn, templ- arar og svo framv. mega t. d. vera nokkurn veginn öruggir um, að yfirlýstir fylgismenn vinni þeim ekki beint tjón, vit- andi eða óvitandi, en janfvel þeir, sem hæst gala um mál- varnir,- líkjast stjórnmálamönn- um, sem aðeins þekkja ákveðna stétt eða hagsmunaflokk meðal þjóðarinnar, er sérstaklega þurfi að bera fyrir brjósti, eða þá sérfróðum lækni, er aðeins hugsaði um eitthvert sérstakt líffæri, en léti sig hin öll engu skipta. Það er læknastéttinni til sóma, en sorgleg staðreynd, að um of sérfróðir læknar munu að hlutfalli fámennari en þeir fyrr- nefndu. — Málið er verðmæt- asta geymd okkar og sú, er við erum og getum verið stoltastir af, en þrátt fyrir það er von- laust að hugsa sér að vernda málið, jafnfraft því er allar aðr- ar fornar geymdir og forn verð- mæti hverfa fyrir vitandi og ó- vitandi gerðum manna. Af öll- um þeim dæmum, er nefna mætti, og m. a. snerta bæði málið og geymdirnar, mætti benda á kveðjurnar. Áður fyrr var siður, er menn hittust á förnum vegi, að skiptast á kveðjum. Kveðjurnar voru á- kveðnar óskir um hamingju þess, er ávarpaður var. Þær voru hátíðlegar og treystar handabandi eða kossi. All langt er síðan handabandið hvarf að miklu leyti meðal kaupstaðar- manna, þessi smávægilegi verknaður, er þó helgaði mót manna. „Góðan daginn“ og annað af svipuðu tagi kom í stað þeirra. En nú er fyrir nokkrum árum, og það skal greinilega tekið fram, ekki sem áhrif frá setuliðinu, heldur sem hrörnunarfyrirbrgiði, komið kveðjuorðið ,,halló“ inn í málið. ,,Halló“ er merkingarlaust, til- finningarlaust, andlaust og ruddalegt. Og því fer fjarri, að þessi kveðja heyrist einungis úr munni ungra kvenna og barna, heldur demba háttsettir menn og háskólaborgarar þessu góð- gæti yfir vini sína og kunn- ingja á förnum vegi. Því er heldur ekki svo farið, að gömlu kveðjuorðin hafi glatazt, held- ur sú tilfinning og sá andi, er á bak við bjó. Og menn hafa tíma, alveg eins og áður, til að bera fram hæfilegar kveðjur. Hér hefir gerzt eitthvað svipað og með heiðursmennina, kveðjan sjálf, hugtakið, persónuleg ósk- in og tengsl hennar og helgun er dauð og steindauð, Og það væri í raun og veru jafnvon- laust að ætla að koma aftur á heiðarlegum kveðjum, svo að vel færi, sem sauma skrautflík á pappalíkneskju. Kveðjan er aðeins til í æfintýrunum eins og nafnið, og ef þér hittið þriggja ára dreng, sem ekki kveðst vera ,,son“, þá hefir hann ekki ein- ungis glatað nafni feðra sinna, hann er alls ekki sonur þeirrar menningar, er við teljum ís- lenzka. Og baráttan gegn aldar- andanum er svo vonlítil, að við munum ekki gefa út bráða- birgðalög um málið né skipa nefnd í það. Það er ekki laust við að afgreiðslan gangi greiðar hjá Pésa, síðan hann ílutti verkstæðið nær þjóðveginum, en Ttjörorðið hans er nú: Notið gamla hjólbarða. Hér er hann að gramsa i hjólbarðahrúgunni, og finnur ekki þá stærð, sem óskað er eftir. En svo verður honum litið upp, og hann hrópar: Reyndar, lags- maður, hérna hef ég hana. STUNDIN 17

x

Stundin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.