Árdís - 01.01.1953, Síða 11
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna
9
íslandi til Vesturheims með innflytjendahópunum, vara því enn og
munu vara svo lengi og trúarfrelsi, athafnafrelsi og einstaklings-
frelsi ríkja þar.
En nú langar mig til þess að lýsa Hólakirkju og segja frá sumu
af því, sem ég fræddist um hana. Á leiðinni til kirkjunnar var mér
bent á fjall eitt í Kolbeinsdalnum og var sagt að undir því hafi
verið bóndabær, sem nefndur var á Fjalli, en þar var amma heitin
fædd og alin upp. Sá bær hvað vera í eyði nú og vegurinn þangað
ófær. Hólakirkja stendur ekki hátt, en útsýnið er gott. í baksýn
eru fjöll, dökk og snæviþakin, því sumarið hafði verið óvenjulega
kalt. Kirkjan er myndarlegt, hvítkalkað steinhús með þykkum
veggjum, hin fyrsta steinkirkja á íslandi, sem var vígð 20. nóvem-
ber 1763, í tíð Gísla biskups Magnússonar. Henni hafði þó ekki
algjörlega verið lokið vegna fjárskorts, það vantaði turninn og
söngpallinn, og timburþak hafði verið sett í stað steinþaks. Turn
stendur nú skamt frá kirkjunni, en hann var reistur sumarið 1950
i minningu um Jón biskup Arason. Héðan sést gamli bærinn, sem
haldið er við sem forngrip, prestssetrið og ótal aðrar byggingar með
nýtízku sniði, sem heyra til búnaðarskólanum þarna, en þeim skal
ekki lýst hér.
Fyrsta kirkjan, sem mun hafa verið timburkirkja, var bygð á
Hólum um miðja 11. öld, en alls hafa verið reistar þar sex kirkjur
á undan þeirri sem nú stendur, sem ýmist brunnu eða fuku, nema
sú síðasta, sem var rifin niður árið 1759. Alls hafa ekki verið nema
fimm dómkirkjur á Hólum, þrjár bygðar í kaþólskum stíl, en tvær
í lúterskum.
Er biskupsstóll var settur á Norðurlandi varð Jón Ögmundsson
fyrsti biskup á Hólum árið 1106. Á eftir honum komu tuttugu og
tveir aðrir kaþólskir biskupar og var Jón Arason síðastur þeirra.
Hann dó árið 1550, en síðan þjónuðu þrettán lúterskir biskupar,
síðastur þeirra var Sigurður Stefánsson, sem dó árið 1798. Hóla-
stóll var lagður niður árið 1801 og jörðin seld. Seinna var hún keypt
af Skagafjarðarsýslu og stofnaður þar búnaðarskóli 1882.
Hólakirkja stendur mjög lágt. Um hana er steyptur garður með
sáluhliði úr járni, hvort tveggja frá 1908. Að svo miklu leyti sem
kirkjan er í nokkrum sérstökum stíl þá ber hún svip húsameistarans,
de Thurah, sem var hreinræktaður fulltrúi síðbaroksstílsins og
helzti maður hans í Danmörku. Hún er einföld mjög að formi og