Árdís - 01.01.1953, Blaðsíða 18
16
ÁRDÍS
fleira, en sér í lagi vilja þær minnast systkinanna Jóhannesar Páls-
sonar og Lilju Martin, sem svo oft og góðfúslega hafa miðlað af
hljómlistarkunnáttu sinni á skemtiskrám þeirra.
Eftir mætti hafa góð málefni út á við verið styrkt; fyr á árum
var farið til Betel einu sinni á ári með dálitla fjárupphæð í hvert
sinn; ennfremur hefir verið lagt til sumarbúða Bandalagsins. Save
the Children Fund, Russian Relief Fund, Red Cross og fleira.
Bögglar voru sendir til hermanna fyrir jólin og oftar meðan á stríð-
inu stóð. Þá, sem liðið hafa á einn eða annan hátt sökum veikinda
eða fátæktar, hefir félagið leitast við að gleðja.
Nú eru tímar breyttir frá því sem var á fyrstu starfsárum
félagsins, þegar lítið var um færa vegi, og allir bygðarbúar máttu
heita fátækir, þó þeir liðu ekki skort. Konurnar gengu þá margar
mílur til að sækja fundi og mintust þess með ánægju, hvað gaman
hefði verið að mætast og hve mikla hressingu þær hefðu haft af
ferðinni. Þær töldu ekki eftir sér erfiðið. — Nú eru mölbornir
vegir og frjósamir akrir, þar sem áður var þéttur skógur og forar-
fen. Starfsaðferðir félagsins hafa einnig breytzt. — Við reynum
ennþá „að sjá Ijósið framundan“ og starfa í þeim anda, sem er
samboðinn kristilegum félagsskap.
Þegar við lítum til baka finnum við til metnaðar yfir því, að
konan, sem valdi félaginu nafn, mun hafa verið leiðtogi þeirra,
sem fyrst stofnuðu kvenfrelsisfélag í Manitoba. Afleiðingin af þeirri
hreyfingu var sú, að fylkið okkar varð fyrst til að veita konum
atkvæðisrétt.
Meðlimir félagsins minnast allra félagssystranna, sem brautina
ruddu og blysin báru. Þær minnast sérstaklega þeirra, sem leið-
sögn höfðu, þeirra sem lengi störfuðu í félaginu en tilheyra því
ekki nú, einnig þeirra, sem flutt hafa úr bygðinni eftir langt og
dyggilegt starf, og síðast og sérstaklega minnumst við þeirra, sem
hafa verið kallaðar heim. Blessuð sé minning þeirra.
Núverandi meðlimir félagsins eru: Forseti, Emily Oddson;
skrifari, Helga Jacobson; féhirðir, Hrund Skúlason; varaforseti,
Pearl Guðmundson; varaskrifari, Jónína Gíslason; varaféhirðir,
Jónína Þórðarson; fyrrverandi forseti, Pearl Wold; Kristín L. Skúla-
son; Steinunn Bjarnason; Guðrún Gíslason; Steinunn Sigvaldason;
Ingibjörg Sigvaldason; Hazel Sigvaldason; María Boundy; Dýrunn
Jónasson; Indíana Sigurðsson; Áslaug Sigfússon; Jakobína Frið-