Árdís - 01.01.1953, Page 30
28
ÁRDÍ S
Hólmfríður Brynjólfsson
Fædd 7. maí 1859 — Dáin 5. apríl 1935
Nú eru liðin átján ár síðan þessi
merka kona andaðist. Er mér það
mikið gleðiefni að verða við til-
mælum dóttur hennar að minnast
hennar í Árdísi.
Hólmfríður Brynjólfsson var
fædd 7. maí 1859 í Helguhvammi í
Víðidal á íslandi. Foreldrar hennar
voru hjónin Eggert Helgason og
Margrét Halldórsdóttir. Til Ame-
ríku fluttist hún árið 1887. Það
sama ár giftist hún Halldóri Bryn-
jólfssyni. Tveimur árum síðar
fluttu þau til Gimli og settust að
á Birkinesi, norðanvert við Loni Beach. Þar fæddust þeim 7 dætur.
Ein þeirra dó í æsku, hinar eru á lífi, allar giftar og tvær þeirra
ekkjur.
Árið 1900 skildu leiðir þeirra Hólmfríðar og Halldórs. Neyddist
hún þá til þess að yfirgefa heimilið á Birkinesi, sem þau höfðu
sameiginlega erfiðað við að koma upp og gert svo aðlaðandi og
skemtilegt. Fór hún þaðan með yngstu dóttur þeirra, sem þá var
ungabarn, og næstelztu dótturina. Hinar dæturnar varð hún að
skilja við sig. Urðu þær eftir á heimilinu hjá föður sínum og ráðs-
konu hans. Sannaðist þá á Hólmfríði, að gull prófast í eldi og
guðhræddir menn í nauöum. Þessi sára reynsla setti óafmáanleg
merki á þessa hreinlyndu, skapstóru og göfugu konu. Litla heimilið,
sem hún átti nú í Gimli-bæ, gerði hún snoturt og aðlaðandi. Þar
átti hún heima með litlu stúlkurnar sínar tvær og tók þar á móti
dætrunum hinum með ástúð hvenær sem þær gátu heimsótt hana.
Efnahagur hennar var þannig, að hún tók að sér ýmsa vinnu á
rúmhelgum dögum, og vann það starf með trúmensku og dugnaði.
Þegar yngsta dóttir hennar, Brynhildur, giftist árið 1916 flutti hún
með henni frá Gimli og dvaldi eftir það hjá dætrum sínum til