Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.2009, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.2009, Blaðsíða 2
S aga hvalveiða við Ísland síðastu áratugi er saga af skrautlegri innanlandspólitík sem þó hefur fyrst og fremst ráðist á alþjóðlegum vettvangi. Árið 1986 tók gildi hvalveiðbann Alþjóðahvalveiðiráðsins sem Íslendingar samþykktu skilmálalaust. Íslendingar gengu síðan aftur úr ráðinu árið 1992 þegar ljóst varð að ráðið myndi ekki samþykkja að tekið yrði til við hvalveiðar í atvinnu- skyni að nýju. Meginkrafa Íslendinga í hvalveiðimál- inu er að viðurkenndur sé réttur þeirra til staðbund- innar stýringar hvalveiða, enda hafi Íslendingar sýnt fram á að þeir stýri veiðum sínum á sjálfbæran hátt og að fylgt sé ráðgjöf viðurkenndra vísindastofnana á borð við Hafró, NAMMCO og vísindanefnd Alþjóða- hvalveiðiráðsins. Árið 2002 gengu Íslendingar aftur í Alþjóðahval- veiðiráðið og árið 2003 hófust aftur vísindaveiðar á hrefnu. Þrátt fyrir að vera í Alþjóðahvalveiðiráðinu og þrátt fyrir að undirgangast samþykktir þess, þar á meðal bann við hvalveiðum, hafa Íslendingar, í sam- ræmi við sjávarútvegsstefnu sína fyrr og nú, áskilið sér rétt til að hafa fyrirvara á samþykktum ráðsins, sem sumir meðlimir þess telja raunar brot á al- þjóðalögum. Á grundvelli þessa fyrirvara hófu ís- lensk fyrirtæki atvinnuveiðar á hvölum að nýju árið 2006 þegar Einar K. Guðfinnsson, þáverandi sjáv- arútvegsráðherra, gaf út reglugerð þess efnis að veiða mætti 9 langreyðar og 30 hrefnur. Hrefnukjötið var selt til verslana og veitingastaða hér heima og eftir nokkurn barning tókst að sögn loksins að koma langreyðunum á markað í Japan. Sá útflutningur stangast raunar á við alþjóðlegan sáttmála um versl- un með dýr og plöntur í útrýmingarhættu (CITES), sem Íslendingar eru aðilar að. Íslendingar eru hins vegar ekki brotlegir í þessu máli vegna þess að þeir gerðu á sáttmálanum þann fyrirvara að þeir við- urkenni ekki skilning CITES á því að allar hvalateg- undir séu ýmist í útrýmingarhættu eða væru í útrým- ingarhættu væri verslun með afurðir af þeim ekki háð ströngum skilyrðum. Veiðikvótarnir voru ekki endurnýjaðir árið 2007, né árið 2008. Í viðtölum við ráðamenn 2007 kom fram að ekki væri hættandi á að gefa út veiðikvóta vegna viðskiptahagsmuna Íslendinga erlendis. Ekki er hægt að túlka þetta öðruvísi en svo að viðskiptahags- munir þjónustufyrirtækja og fjármálastofnana hafi vegið þyngra en prinsíppið um sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar og svæðisbundna stjórnun veiða. Einar K. Guðfinnsson lét það svo vera sitt síðasta verk sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að blessa reglugerð um veiðiheimildir næstu 5 árin fyrir hrefnu og langreyði. Þessi reglugerð birtist á þeim tíma í sögu þjóðarinnar að Íslendingar telja það ekki skipta miklu að huga að viðskiptahagsmunum sínum erlendis. Fyrir vikið er hægt að standa á sjálfs- ákvörðunarréttinum fullum fetum. Einnig hafa hags- munasamtök í útgerð og fiskvinnslu, sem og sveit- arfélög ýmisleg, haldið úti auglýsingum í blöðum og útvarpi þar sem hvalveiðar eru sagðar bjarga bágum þjóðarhag. Hvergi er minnst á að hrefnuveiðar verða aðeins stundaðar á fjórum bátum og að útflutningur hvalaafurða er í raun háður stórkostlegum hindr- unum vegna alþjóðasamninga. Aðildarþjóðir að CI- TES-sáttmálanum líta svo á að allir hvalastofnar, hvar sem er í heiminum, séu í útrýmingarhættu. Það þarf því nokkurn áróðurskraft til að halda því fram að hvalveiðar muni breyta þjóðarhag Íslendinga svo um munar. Sem stendur eru meiri tekjur af út- flutningi hrossa en hvala. Þjóðarhagsmunum og hagsmunum þess eina fyrirtækis sem stendur að stórhvalaveiðum, Hvals hf., er einnig þráfaldlega blandað saman. Hvatt er til hvalveiða með dramb- semi sem er spegilmynd af þeim útrásargorgeir sem þessi þjóð fór hvað flatast á. Sú trú að fyrirtæki og hagsmunir þeirra séu jafnframt hagsmunir þjóð- arinnar allrar varð Íslendinum ekki til gæfu. Hins vegar er ljóst að hrefnustofnarnir við landið eru í góðu ásigkomulagi. Hafrannsóknastofnun telur að það megi veiða 200 dýr árlega án þess að hafa minnstu áhrif á stofninn. Langreyðarstofninn metur hún svo að hann sé nú álíka stór og áður en veiðar hófust þótt það breyti því heldur ekki að langreyð- arstofninn á heimsvísu er enn langt frá sínu besta eft- ir gegndarlausa ofveiði í Suðurhöfum á eftirstríðs- árunum. Ef Íslendingar vildu virkilega sýna heiminum hve ábyrgir þeir eru í staðbundnum ákvörðunum sínum væri einfaldast að beita sér í dýraverndunarmálum og t.d. mótmæla áformum Japana um veiðar á hnúfubak. Slíkt virðist hins vegar ekki koma til greina og mikill áróður er rekinn gegn frjálsum alþjóðlegum félagasamtökum sem huga að náttúru- og dýravernd. Þetta hefur virkað vel hér heima en mjög erfitt er að sjá að röksemdir Íslend- inga styrkist við þetta á alþjóðavettvangi. Auglýs- ingaherferð hvalveiðisinna er beint inn á við og höfð- ar fyrst og fremst til hræðslu almennings við kreppuna. Það er skýrt merki um bágt ástand þjóð- arsálarinnar hve vel áróðurinn virkar en hann mun engu breyta um vígstöðu Íslendinga í alþjóðlegu samhengi. kbj@crymogea.is Hvalir gegn kreppu Morgunblaðið/Ómar Hvalveiðar „Sem stendur eru meiri tekjur af útflutningi hrossa en hvala.“ FJÖLMIÐLAR KRISTJÁN B. JÓNASSON Hvatt er til hvalveiða með drambsemi sem er spegil- mynd af þeim útrásargor- geir sem þessi þjóð fór hvað flatast á. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2009 2 LesbókSKOÐANIR ENDURFUNDIR 31. janúar – 30. nóvember Spennandi leikir og verkefni fyrir fjölskyldur og skólahópa! SÝNING FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Suðurgata 41 101 Reykjavík sími 530 2200 www.thjodminjasafn.is/endurfundir Opið alla daga vikunnar nema mánudaga kl. 11–17· · · · Á sýningunni má sjá gripi sem fundust við fornleifarannsóknir á mörgum helstu sögustöðum þjóðarinnar sem styrktar voru af Kristnihátíðarsjóði 2001–2005. B ókmenntafíklar eiga gott í vænd- um annað kvöld þegar franska kvikmyndin Ástir á Café de Flore (Les amants de Flore) verður sýnd í Sjónvarpinu. Kvikmyndin er frá árinu 2006 og segir sögu franska rithöfund- arins stærðfræðingsins og heimspek- ingsins Simone de Beauvoir allt frá því hún hefur nám í Sorbonne-háskóla í Par- ís í lok þriðja áratugar síðustu aldar og til dauðadags. Í myndinni koma margir af helstu bók- menntajöfrum Frakklands um miðja síð- ustu öld við sögu enda átti de Beauvoir í ævilöngu ástarsambandi við heimspek- inginn og rithöfundinn Jean-Paul Sartre. Þau Sartre og de Beauvoir voru tíðir gestir á kaffihúsinu Flore í París sem er á horni Saint-Germain breiðstrætis og Rue St. Benoit en meðal annarra fasta- gesta á Flore voru rithöfundarnir Albert Camus og Francois Mauriac. Jean-Paul Sartre og Simone de Beauvoir giftust aldrei og eignuðust engin börn. Sartre lést árið 1980 og de Beauvoir fjórum ár- um síðar. Þau hvíla bæði í Pere Lac- haise-kirkjugarðinum í París. Skrif de Beauvoir eru enn talin með þeim merk- ari á sviði kynjafræði og tilvist- arheimspeki og ber þá helst að nefna, Les Mandarins, Le Deuxième Sexe og Pour Une Morale de L’ambiguïté. hoskuldur@mbl.is Franskur hugsuður Simone de Beauvoir MEÐMÆLIN Lesbók Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi menningar, Fríða Björk Ingvarsdóttir, fbi@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent Í slensk stjórnvöld höfðu í upphafi 20. aldar miklar áhyggjur af ofveiði hvala hér við land. Í þrjá áratugi stunduðu Norðmenn umfangsmiklar veiðar á hval frá bækistöðvum sínum á Vest- og Austfjörðum. Svo freklega gengu þeir á stofnana að stórhveli nán- ast hurfu af miðunum. Alþingi bannaði því hvalveiðar við Ísland árið 1913 en banninu var aflétt 1928. Á millistríðs- árunum sneru Norðmenn aftur en veiddu hvali hér í miklu minna mæli en áður. Enn birtust svo Norðmenn að seinna stríði loknu og veiddu hér hrefnu þangað til útfærsla landhelg- innar hrakti þá á brott. Í aldarfjórðung hefur hvalur hérlendis verið friðaður. Samt er sú trú lífseig að Íslendingar hafi jafnan sótt björg á hvalamið. Saga stórhvalaveiða Íslendinga spannar hins vegar aðeins 35 ár. Saga hrefnuveiða í stórum stíl er álíka löng. ÞETTA HELST Hvalfriðunar- landið Ísland Björg í bú? Vinnsla á hrefnukjöti.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.