Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.2009, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.2009, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2009 STOFNUÐ 1925 31. TBL. 85. ÁRGANGUR Norðfjarðarsaga II, tímabilið 1895-1929 holar@simnet.is   Norðfjarðarsaga     frá 1895 til 1929      Norðfjarðarsaga      frá 1895 til 1929 Glæsilegt tveggja binda verk eftir Smára Geirsson. Fjallað er um þéttbýlið og dreifbýlið við Norðfjörð; þróun byggðar á svæðinu, atvinnusöguna og margs konar félagsmálastarfsemi. Um 400 ljósmyndir prýða bækurnar, auk korta og uppdrátta. LESBÓK Þráin og ástríðan Persóna í leikriti er ekki pappír» 7 8Safnarinn Helgi Þorgils:Er alltaf með jólasýningu úr safninu til að hafa friðsæl jól V etrarstarf menningarstofnana hófst með trukki. Af óvenjulegum krafti miðað við stöðu þjóðar- búsins, stöðu heimilanna. Það er engu líkara en mótlætið hafi kallað fram hvata til sameiginlegs átaks meðal almennings um að standa vörð um það sem íslenskt er, um þjóðlega siði – um menninguna í öllum sínum myndum. Samkvæmt fréttum gærdagsins er 600% aukning í sölu hannyrðabóka, 200% aukning í sölu bóka um ræktun. Sjálfhjálparbækur seljast hins vegar ekki, fólk er hætt að trúa á töfralausnir. Gamli Birtingur er fyrirmyndin; allir rækta nú garðinn sinn á nýjan leik, horfa heim að eigin ranni. Aðsókn á allar þær hátíðir sem staðið hafa undan- farnar vikur hefur verið í samræmi við þennan breytta þankagang. Fólk nýtir sér það sem er í boði; tekur feg- inshendi þeim verðmætum sem liggja í menningarlífinu og erfitt er að gjaldfella – jafnvel í efnahagshruni. Það upphlaup sem varð við frumsýningu Þjóðleikhússins á Fridu … viva la vida um síðustu helgi var því óvænt and- streymi við sýningu sem flestir væntu mikils af. Þarna var um nýtt íslenskt leikrit að ræða, mikið í lagt og við- fangsefnið víðfrægt; skothelt módel að því er virtist. Allt kom þó fyrir ekki. Vitaskuld er þetta þó ekki í fyrsta sinn sem leiksýning fær neikvæða dóma. Það var annað sem vakti athygli; samfélagið hefur ekki þolinmæði lengur gagnvart vina- og fjölskyldutengslum í mannahaldi. Öf- ugt við það sem áður var er stjórnendum ekki lengur stætt á að líta til vina eða vandamanna við ráðningar í menningargeiranum frekar en í öðrum þáttum þjóðlífs- ins. Sama hversu hæfir viðkomandi vinir eða fjölskyldu- meðlimir eru – hagsmunaáreksturinn af nástöðunni er einfaldlega óhjákvæmilegur. Hrunið hefur kennt okkur margvíslegar lexíur. Og þetta er ein þeirra. Krafan um að menningarlífið lúti lögmálum trúverðugleika á sama rétt á sér og krafan um að við- skipta- og stjórnmálalíf lúti slíkum lögmálum. fbi@mbl.is Upphlaup og óvænt andstreymi ORÐANNA HLJÓÐAN FRÍÐA BJÖRK INGVARSDÓTTIR Samfélagið hefur ekki þolin- mæði lengur gagnvart vina- og fjölskyldutengslum í mannahaldi. Tvívíð hugarfóstur: Myndlist Yoshitomo Nara; stóreyg börn í illskiljanlegum heimi3 5Lisbeth Salander:Samkenndin meðstúlkunni eykst

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.