Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.2009, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.2009, Blaðsíða 7
- t- í arinn sjálfur, og klúbburinn í myndinni heitir Mo Pitkin’s House of Satisfaction sem er klúbbur Hartmans í alvörunni, en þaðan er titill mynd- arinnar líka kominn. „Ég leik aðalsöguhetjuna sem heitir Jesse eins og ég þannig að hann er svolítið alter-egó. Ég er hins vegar hvorki ömurlegur faðir né dópisti, þótt ég sé vissulega tónlistarmaður,“ segir Hartman og hlær, en auk þessa spilar hann sína eigin tón- list í myndinni og notar gamalt myndefni úr sínu eigin lífi, þar á meðal brot úr vinsælum viðtals- þætti í bandarísku sjónvarpi sem hann fór eitt sinn í. Óhætt er að segja að Hartman sé allt í öllu í The House Of Satisfaction því auk þess að leik- stýra og leika aðalhlutverkið skrifaði hann hand- ritið, framleiddi og samdi tónlistina. Þetta lítur kannski svolítið fáránlega út. . Ég hafði líka áhyggjur af því fyrirfram að menn myndu halda að þessi mynd snerist ekki um neitt nema sjálfan mig. Það kom mér því þægilega á óvart að fólk sem hefur séð myndina er ekki á þeirri skoðun. Staðreyndin er líka sú að upp- haflega ætlaði ég ekki að leika aðalhlutverkið – ég er ekki leikari og hef aldrei leikið í mynd áður. Undanfarin ár hef ég leitað að rétta manninum í hlutverkið en svo þegar á hólminn var komið fannst mér skynsamlegast að leika þetta sjálfur. Það var líka miklu auðveldara að leikstýra sjálf- um mér en sumum hinna leikaranna. Þannig að eftir á að hyggja er ég mjög sáttur við þessa ákvörðun mína,“ segir Hartman að lokum. ni. Þetta lítur kannski svolítið fáránlega út. Ég hafði líka áhyggjur af því fyrirfram að menn myndu halda að þessi mynd snerist ekki um neitt nema sjálfan mig. The House Of Satisfaction verður sýnd í Há- skólabíói 23. september kl. 22.40 og 24. sept- ember kl. 20.40, en í kjölfar þeirrar sýningar verða umræður um myndina sem Hartman mun taka þátt í. Þá verður myndin sýnd í Hellubíói hinn 25. september kl. 22.20. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2009 Lesbók 7BÓKMENNTIR Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is F yrir rúmri viku varði Fern Nevjinsky doktorsritgerð sem var lögð fram samtímis við Háskóla íslands og Sor- bonne-háskóla í París. Ritgerðin nefn- ist Þrá og ástríða í leikverkum Jó- hanns Sigurjónssonar. Hún er rituð á frönsku en ítarlegt ágrip fylgir á íslensku. Fern var um árabil dósent í sálfræði við há- skólann í Rúðuborg og starfaði auk þess sem sálgreinir. Á miðjum aldri hóf hún nám í nor- rænum bókmenntum við Sorbonne og nýtir hún sér þekkingu sína á sálgreiningu til að nálgast leikrit Jóhanns á nýstárlegan hátt í doktorsritgerðinni, sem hún hefur unnið að í sex ár. Fyrstu tvö árin vann hún að ritgerðinni í París, þá í eitt á Íslandi, þá aftur í eitt ár í París en hefur síðan verið búsett hér. „Það er ekki hægt að finna þau gögn sem ég þurfti að nota í Frakklandi – og svo eru ekki margir þar sem tala íslensku. Ég vildi búa hér,“ segir hún. Þegar Fern las verk Jóhanns í fyrsta skipti segir hún hafa blasað við sér hvað þráin og ástríðan gegna mikilvægu hlutverki. „Þráin er aðalþemað, ekki aðeins í leikrit- inum heldur líka í ljóðum og bréfum. Ég vildi skoða hvað býr að baki þessari þrá. Jafnvel í fyrstu leikritunum, eins og Rung lækni og Bóndanum á Hrauni, tjáir aðalpersónan þrá sína mjög sterkt. En þegar eitthvað kemur í veg fyrir að henni sé fullnægt breytist þráin og verður ástríða.“ Ástríður segir að hún birtist í öllum leikrit- unum, og ein tegund hennar er dauðaþráin. „Í leikritum Jóhanns er hetjan venjulega vel gefin og hún vill sífellt fá meira og meira, ástríðan tekur yfir, það er allt eða ekkert.“ Nevjinsky segir að í öllum leikritum Jó- hanns sé trektlaga form; persónum fækkar og efni samræðna þrengist. Fjalla-Eyvindur er dæmigerður hvað þetta varðar. „Í byrjun verksins er fjöldi fólks í fallegum bæ en í loka- þættinum eru Eyvindur og Halla einangruð og allt hættulegt, bæði náttúran og mennirnir.“ Það er athyglisvert hvernig Fern nálgast efnið því hún hefur unnið sem sálgreinir og beitir hér slíkri skoðun á bókmenntapersónur. „Ég vildi finna rauða þráðinn sem rennur gegnum verkin. Þætti sem birtast í öllum leik- ritunum.“ Hún sýnir ítarlegar töflur í dokt- orsritgerðinni, þar sem eru tengingar á milli verka út frá einkennum í persónusköpum og nálgun. „Þetta eru allt persónur hér,“ hún bendir, „og hér skoða ég formgerð leikritanna. Ég vann að vissu leyti á sama hátt og ég gerði sem sálgreinir,“ segir hún og brosir. Nema í leikritum er fólkið skáldað. „Það var spurt út í það í doktorsvörninni,“ segir hún og hlær. „Persóna í leikriti er ekki pappír, við heyrum hvað hún segir og sál- greinir rýnir einmitt í það sem sagt er. Þegar maður les allt sem rithöfundur hefur skrifað er það rétt eins og sálgreinir sem fer yfir allar upplýsingar um fólkið sem hann vinnur með og hvað það hefur sagt. Ég hef ákveðna hugmynd um það hvað þráin skipti miklu fyrir Jóhann. Því kom ég með tilgátu. Og eftir að hafa lesið bréf og ljóð auk leikritanna fékk ég staðfest- ingu á tilgátunni. Síðast, og það er ekki mjög mikilvægt, er það hvað ég vissi um líf Jóhanns. Það mikilvæga er það sem hann skrifaði. Sem betur fer er mikið til af bréfum hans – en því miður er ekki ennþá búið að gefa þau öll út.“ Dauðinn er sínálægur Í doktorsritgerðinni beinir Fern Nevjinsky sérstaklega sjónum að Galdra-Lofti og greinir niður í kjölinn samband Lofts við aðrar per- sónur leiksins og hvernig þessi tilfinninga- sambönd tengjast þrá Lofts eftir þekkingu. „Leikritið um Galdra-Loft gerist á svo stutt- um tíma, aðeins tveimur dögum. Loftur er ekki nema 21 árs gamall og glímir við erfið fjölskylduvandamál. Móðir Lofts dó þegar hann var ungur og faðir hans elskar hann að- eins ef hann fullnægir kröfum hans. Þarna birtast þættir sem eru í öllum leikrit- unum, eins og vangaveltur um trúna. Jóhann segir Guð vera til en í Galdra-Lofti og í Bónd- anum á Hrauni má sjá að Guð er ekki góður, hann yfirgefur menn og er ekki almáttugur.“ Dauðann segir hún sínálægan í verkunum. „Þegar Jóhann var 19 ára skrifaði hann bróður sínum um þennan draum. Hún les úr bréfinu: „Ég var sjálfur djöfullinn og ég stóð frammi fyrir augliti drottins. Þá blygðaðist ég mín og ég iðraðist alls þess illa og ég grét svp sárt, svo sárt. Ég skreið að fótum Guðs og bað um fyrirgefningu en Guð hristi kaldlega að mér hendina og sagði: vík frá mér … nú skildi ég hvers vegna andskotinn er vondur, og ég aumkvaði andskotann.“ Það sama er í síðasta þætti Galdra-Lofts. Loftur segist vera sekur og jafnvel Guð geti ekki fyrirgefið sér.“ Finnst Nevjinsky vera beint samband milli persónulegra skrifa Jóhanns og verkanna? Hún kinkar kolli. „Jóhann sagðist vilja skrifa allt sem væri sárt og dapurt inn í leik- ritin, til að geta verið glaður og brosað með vinum sínum.“ Annað þema kallar Nevjinsky „Don Juan þekkingarinnar“ en það er hugmynd eftir Nietzsche, þegar fara þarf til undirheima til að öðlast frekari þekkingu. Þetta má sjá í leikrit- inum um Rung lækni og Loft; þema sem þekk- ist úr Faust. „Annaðhvort fara menn til að berjast við dauðann, eins og Rung, eða til að vita meira og meira. Það er þekkingarþráin. En það er alltaf refsing, og refsingin er dauð- inn. Því Dauðinn hefnir sín þegar maður skor- ar hann á hólm.“ Hún kemur aftur að þránni. „Bæði í leikritunum og ljóðunum er þráin aðalþemað, og líka hugsun um dauðann. Ég held að Jóhann hafi óttast að hann myndi deyja mjög ungur. Ég held hann hafi verið með hjartasjúkdóm. Í ljóðunum skrifar Jó- hann alltaf um æsku og dauða, en aldrei um ei- lífð; hann sagði alltaf að æskan væri mjög stutt og þráin uppspretta lífsins. Tímabilið um 1910 var mjög erfitt fyrir hann. Fjalla-Eyvindur var ekki tilbúinn og hann var ekki orðinn þekktur höfundur, til- finningalífið var erfitt og hann var fátækur. Hann fullyrðir þá að þráin sé uppspretta lífs- ins. En manneskjan er vanmáttug og getur ekki fullnægt þrá sinni. Svo lífið er draumur og þessi draumur er lygi. Það er aðeins til einn veruleiki: dauðinn. Þráin sigrar aldrei. Á þessum tíma skrifaði hann ljóðið Bikarinn – hann var mjög ungur þegar hann skrifaði „bak við mig bíður dauðinn“. Þessi lífsafstaða Jóhanns mótar verk hans alla tíð.“ Þýðir leikrit Jóhanns á frönsku Fern Nevjinsky segist vera að undirbúa þýð- ingar á leikritum Jóhanns á frönsku. „Ég vil svo gjarnan sjá verk hans sett á svið í Frakklandi,“ segir hún. „En það þarf líka að sýna leikrit Jóhanns hér, það er helst að Fjalla-Eyvindur sé settur upp en það er alls ekki nóg. Rung læknir ætti til dæmis að vera einfaldur í uppsetningu, þar eru bara þrjár persónur. Hins vegar væri erfitt að sviðsetja Mörð Valgarðsson – en það leikrit er kjörið fyrir kvikmynd eða sjónvarpsmynd, það þyrfti ekki að breyta orði.“ Þegar þráin verður ástríða Morgunblaðið/Einar Falur Skáldið og sálgreinirinn „Hann var fallegur maður hann Jóhann Sigurjónsson,“ sagði Fran Nevjinsky. Sálgreinirinn Fern Nevj- insky hefur varið dokt- orsritgerð um þrá og ástríður í leikritum Jó- hanns Sigurjónssonar. Hún segir þrána vera aðalþemað, ekki aðeins í leikritum, heldur einnig í ljóðum og bréfum. Persóna í leikriti er ekki pappír, við heyrum hvað hún segir og sál- greinir rýnir einmitt í það sem sagt er. þeirra sem eru ekki svo trúaðir og öfugt, það eru engin landamæri. Kvikmyndin segir ekki sögu úr einu tilteknu trúarsamfélagi heldur koma ýmiskonar persónur við sögu. Ég vildi sýna að innan þessara samfélaga er líka fólk með tilfinningar, langanir og kenndir.“ Eyes Wide Open var nýlega tekin til sýninga í Ísrael og fór í almenna sýningu í Frakklandi á sama tíma. „Hún hefur verið svolítið umdeild hérna í Ísr- ael,“ segir Tabakman. „Það hefur verið forvitni- legt að sjá hvað viðbrögðin hafa verið ólík í þessum löndum. Myndin nýtur velgengni í Frakklandi, er ekki umdeild eins og hér – en það kemur líklega ekki á óvart …“ Þá var kvikmyndin sýnd á kvik- myndahátíðinni í Toronto um liðna helgi og fékk þar góða dóma. Áhugi á ísraelskum kvikmyndum Þegar Tabakman er spurður út í stöðuna í ísra- elskri kvikmyndagerð segir hann að síðasta ár hafi verið óvenjulega gott. „Næstum 30 myndir voru framleiddar, sem er langt yfir meðaltalinu. Andinn í faginu er góður og þetta eru fínir tímar fyrir ísrealska kvikmyndagerð.“ En hefur almenningur áhuga á því sem landar þeirra eru að sýna í kvikmyndunum? „Ég held það sé fylgst nokkuð vel með því sem við heimamenn erum að gera á þessu sviði. Sitt- hvað gott hefur gerst í kvikmyndagerðinni hér á síðustu árum og fólk kann að meta það, eins og sést líka á síauknum áhuga erlendis frá.“ Sem dæmi nefnir hann að eftir að Eyes Wide Open var valin til sýninga í Cannes og Toronto hefur borist fjöldi boða um sýningar á öðrum kvik- myndahátíðum. „Ég hefði svo gjarnan viljað fylgja myndinni til Reykjavíkur,“ segir Tabakman. „En ég er á kafi í verkefnum hér heima og farinn að undirbúa nýja mynd – við erum að taka fyrstu skrefin og það er allt mjög leynilegt svo ég segi þér ekkert um hana! En ég verð bara að fylgja nýju myndinni til Reykjavíkur í staðinn, þegar hún verður tilbúin.“ Ég vildi sýna að innan þessara samfélaga er líka fólk með tilfinningar, lang- anir og kenndir. Kvikmyndin Eyes Wide Open verður sýnd í Há- skólabíói 21. september klukkan 16.40, 22.sept- ember klukkan 22.40 og 26. september klukkan 14.00. Þá verður hún sýnd í Hellubíói 24. sept- ember klukkan 22.20. J óhann Sigurjónsson (1880-1919) var leikritahöfundur og ljóðskáld. Hann ólst upp á Laxamýri í Aðaldal, nam í þrjú ár við Lærða skólann í Reykjavík og hélt 19 ára gamall til Kaupmannahafnar að læra dýralækningar. Jóhann hætti námi árið 1902 til að helga sig bókmenntunum og skrifaði á íslensku og dönsku. Fyrsta leikrit Jóhanns nefnist Skugginn og var hvorki gefið út né sviðsett. Rung læknir kom út hjá Gyldendal árið 1905, Bóndinn á Hrauni var sett á svið á Íslandi árið 1908 en Jóhann sló síðan í gegn með Fjalla-Eyvindi, sem var tekið til sýningar í Danmörku árið 1912 og kvikmyndað árið 1917. Galdra-Loftur var frumsýndur árið 1915 og síðasta leikrit Jóhanns, Mörður Valgarðsson, sem byggist á Njálssögu, var tekið til sýningar í Kaupmannahöfn árið 1918. Leikskáldið

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.