Morgunblaðið - 12.01.2009, Qupperneq 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl. is , Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
BJÖRGVIN Björgvinsson, skíða-
kappi frá Dalvík, varð í 42. sæti af
76 keppendum á heimsbikarmóti í
svigi í Adelboden í Sviss í gær.
Björgvin var með rásnúmer 71 og
var því meðal þeirra síðustu til að
fara í brautina. Hann kom í mark
á 52,13 sekúndum, 2,99 sekúndum
á eftir Manfred Pranger frá Aust-
urríki, sem var með besta tímann
eftir fyrri ferðina. Aðeins þrjátíu
bestu komast áfram í síðari ferð-
ina og var Björgvin ekki meðal
þeirra í gær. Brautin var mjög erf-
ið og 28 keppendur duttu í fyrri
ferð, þar á meðal flestir þeirra
sem voru í kringum Björgvin í rás-
röðinni.
Það var Reinfried Herbst frá
Austurríki sem sigraði í sviginu á
1.42,95. Landi hans og jafnaldri,
Manfred Pranger varð annar
rúmri sekúndu á eftir og Þjóðverj-
inn Felix Neureuther var þriðji
1,86 sekúndu á eftir.
Benjamin Raich frá Austurríki
sigraði í stór-
svigi á sama stað
á laugardaginn á
2.24,95. Annar
varð Massimi-
liano Blardone
frá Ítalíu á
2.25,19 og Norð-
maðurinn Kjetil
Jansrud átti frá-
bæra síðari ferð
og skaust upp í
þriðja sætið. Svisslendingurinn
Sandro Viletta kom verulega á
óvart með því að ná fjórða sætinu
en hann var með rásnúmer 53. sku-
li@mbl.is
Björgvin
Björgvinsson
Björgvin varð í 42. sætinu í Adelboden
ÍRIS Björk Símonardóttir, lands-
liðsmarkvörður í handknattleik, er
hugsanlega á leið í aðgerð vegna
ristarbrots. Íris, sem leikur með
Gróttu, brotnaði í nóvember og hef-
ur verið í gipsi um tveggja mánaða
skeið. Um er að ræða álagsbrot sem
getur tekið allt að hálfu ári að gróa.
Íris fer í myndatöku á morgun og þá
skýrist endanlega hvort gripið verð-
ur til aðgerðar.
,,Ég fer að öllum líkindum í að-
gerð en mér skilst að það sé mjög
umdeilt hvort maður eigi að fara í
aðgerð vegna þessa. Brynjólfur
Jónsson læknir er þeirrar skoðunar
að það eigi að negla þetta saman. Ef
það flýtir fyrir
því að ég geti
komist af stað á
ný þá er ég sátt
við það,“ sagði Ír-
is þegar Morg-
unblaðið sló á
þráðinn til henn-
ar í gær.
Íris segist ekki
gera sér miklar
vonir um að ná
fleiri leikjum með Gróttu á þessari
leiktíð. Að aðgerðinni lokinni þarf
hún að vera í gipsi í sex vikur í viðbót
og þá tekur við endurhæfing.
kris@mbl.is
Íris Björk
Símonardóttir
Íris Björk úr leik í vetur?
Stefán Gísla-son, fyrirliði
Bröndby og
landsliðsmaður
Íslands, skoraði
mark ársins í
dönsku knatt-
spyrnunni 2008,
en það var nið-
urstaðan í kjöri
Danmarks Radio sem var kynnt á
stórri hátíð á laugardagskvöldið.
Stefán skoraði markið með ótrú-
legu skoti af 25 metra færi í leik
með Bröndby gegn Nordsjælland í
dönsku úrvalsdeildinni í maímánuði.
Úrvalslið Asíu vann Evrópu-úrvalið í golfi þegar keppt var
um Konungsbikarinn um helgina.
Keppt var á Amata Spings Co-
untry vellinum í Bangkok. Þetta er
í fyrsta sinn sem Asía nær að sigra
í keppninni. Fyrir tvímenninginn í
gær þurfti Asía aðeins tvo vinninga
en krækti sér í þrjá og hálfan og
fagnaði sigri. Jose Maria Olazabal,
fyrirliði Evrópu, sagði að því miður
hefði ekki tekist að sigra fyrir Seve
Ballesteros, sem átti að vera fyr-
irliði en hefur verið mikið veikur og
gat því ekki tekið það starf að sér.
Rúnar FreyrRúnarsson,
fyrrverandi
landsliðsmaður í
íshokkí, er flutt-
ur heim til Ak-
ureyrar frá Dan-
mörku og mun
leika með SA út
keppnistímabilið.
Rúnar ætti að styrkja lið Íslands-
meistarana talsvert en hann hefur
leikið fjölmarga landsleiki og raðaði
inn mörkum fyrir SA á árum áður.
Rúnar er þrítugur og hefur und-
anfarin ár leikið með liði Vojens
Lions í næst efstu deild í Dan-
mörku, auk þess að gera það gott í
poppinu þar ytra.
Breiðablik lagði Val að velli, 1:0,í æfingaleik úrvalsdeildarlið-
anna í knattspyrnu í Fífunni á
laugardaginn. Alfreð Finnbogason
skoraði sigurmark Kópavogsliðsins.
Bikarmeistarar arar KR gerðu
jafntefli, 2:2, við 1. deildarlið HK í
Kórnum. Guðmundur Pétursson og
Brynjar Orri Bjarnason skoruðu
fyrir KR en Rúnar Már Sig-
urjónsson og Hörður Magnússon
fyrir HK.
Daði F. Guðmundsson og Magn-ea Ólafs úr Víkingi sigruðu í
meistaraflokkum karla og kvenna á
stigamóti í borðtennis sem fram fór
í íþróttahúsi TBR í gær. Daði vann
Magnús K. Magnússon úr Víkingi,
3:0, í úrslitaleik karla og Magnea
vann Sigrúnu Tómasdóttur úr KR,
3:0, í úrslitaleik kvenna. Magnea
sigraði líka í 1. flokki kvenna, Hlöð-
ver Hlöðversson úr KR sigraði í 1.
flokki karla og Pétur Ó. Steph-
ensen úr Víkingi sigraði í eldri
flokki karla.
Fólk sport@mbl.is
Bæði liðin voru vængbrotin í leiknum
á laugardagskvöldið. Í lið SR vantaði
fjóra leikmenn: Þorsteinn Björnsson,
Þórhallur Viðarsson og Guðmundur
Björgvinsson eru allir meiddir en
Guðmundur meiddist í leiknum á
föstudagskvöldið auk þess sem Arn-
þór Bjarnason hefur tekið sér hvíld.
Jafnframt fór Egill Þormóðsson
meiddur af leikvelli strax í fyrsta
leikhluta í leiknum á laugardags-
kvöldið og kom ekki meira við sögu.
Skarð fyrir skildi hjá SR því Egill
skoraði þrívegis í fyrri leiknum en
hann fékk högg á mjöðmina. Ekki
var síður mikið um forföll hjá SA
sem söknuðu fyrirliða síns, Jóns
Gíslasonar, sem meiddist í fyrri
leiknum. SA-menn hafa verið mjög
drjúgir í markaskorun þegar and-
stæðingarnir missa mann af velli í
tveggja mínútna kælingu. Jón hefur
verið í lykilhlutverki þegar SA kemst
í slíka stöðu og það sást glögglega að
liðið saknaði hans í síðari leiknum.
Þá var Andri Mikaelsson í leikbanni
og Sigurður Árnason forfallaðist.
,,Vorum upp við vegg“
Leikmenn SR voru ávallt á undan
að skora í leiknum á laugardags-
kvöldið. Þeir komust yfir 1:0, 3:1, 4:3
og loks í 5:4 þegar níu mínútur voru
eftir af leiknum. Gauti Þormóðsson,
bróðir Egils, skoraði sigurmarkið á
laglegan hátt, eftir stoðsendingu
markvarðarins Ævars Þórs Björns-
sonar. ,,Þetta breytir alveg toppbar-
áttunni. Við minntum alvarlega á
okkur í deildakeppninni og gerðum
Birninum mjög erfitt fyrir að ná okk-
ur. Við höfum tapað fyrir Birninum
en SA ekki. Eftir þessa leiki erum við
hins vegar búnir að vinna þrjá í röð
gegn SA. Þegar komið er í úr-
slitakeppnina þá er jafnframt mjög
sterkt sálfræðilega að hafa unnið
innbyrðisleikina,“ sagði Gauti í sam-
tali við Morgunblaðið að leiknum
loknum.
Spurður um muninn á liðunum í
þessum leikjum sagði Gauti erfitt að
útskýra hann. ,,Við höfðum kannski
karakterinn fram yfir þá að þessu
sinni en það hefur nú ekki verið
raunin hingað til. Við vorum upp við
vegg og urðum að vinna þessa leiki ef
við ætluðum að vera í baráttunni. Við
erum augljóslega í betra formi eftir
jólafríið því við tókum þá í seinustu
lotu í báðum leikjunum,“ bendir
Gauti á en forföll í liðunum gerðu það
að verkum að meira álag var á leik-
mönnum en alla jafna. Gauti átti góð-
ar rispur hjá SR og lagði upp mark
auk þess að skora eina markið í síð-
asta leikhlutanum. Tómas Tjörvi
Ómarsson skoraði tvívegis fyrir SR í
leiknum, Andri Þór Guðlaugsson
gerði eitt og fyrirliðinn Steinar Páll
Veigarsson eitt.
,,Stóðum okkur ekki í vörninni“
Sindri Björnsson var atkvæðamik-
ill hjá SA að þessu sinni og skoraði
tvö mörk. Í marki SR stendur Ævar
bróðir hans og var þetta í fyrsta
skipti sem Sindra tókst að koma
pekkinum framhjá bróður sínum í
meistaraflokksleik. ,,Já, það hefur
reynst erfitt en nú er greinilega búið
að opna markareikninginn. Það var
alveg kominn tími á það. Mörkin
hefðu svo sem mátt vera fleiri en ég
fer heim og hrauna yfir greyið,“
sagði Sindri léttur þegar Morg-
unblaðið bar þetta undir hann. Að
mati Sindra var varnarleikur SA
ekki nægilega góður í leiknum. ,,Þeir
stóðu sig vel og börðust eins og ljón
en við náðum ekki að standa okkur
nægilega vel í vörninni. Við þurfum
að bæta varnarleikinn hjá okkur.
Slæm heildarvinna hjá liðinu og
menn skiluðu sér ekki nægilega vel
til baka í vörnina. Þetta voru því
frekar ódýr mörk sem við fengum á
okkur,“ sagði Sindri og hann segir
muna mikið um Jón Gíslason. ,,Hann
er náttúrlega einn sá besti á landinu
og það munar rosalega um að missa
svona mann.“
Orri Blöndal og Steinar Grettisson
skoruðu hin mörkin fyrir SA. Mark
Orra var glæsilegt þar sem hann
sneri vörn í sókn á augabragði og
þrumaði pekkinum í netið af löngu
færi. Steinar fékk tvö upplögð tæki-
færi til þess að bæta við mörkum en
var of seinn að taka ákvörðun í bæði
skiptin.
Morgunblaðið/Eggert
Sigurgleði Andri Þór Guðlaugsson, Helgi Páll Þórisson og Tómas Tjörvi Ómarsson fagna sigri SR á SA í seinni leik liðanna í fyrrakvöld.
Gauti tryggði SR sigur á
SA og galopnaði mótið
STAÐAN á Íslandsmótinu í íshokkí
karla breyttist mikið á einum sólar-
hring. Íslandsmeistararnir í Skauta-
félagi Akureyrar voru með gott for-
skot þegar deildin fór í jólafrí. Þeir
lágu hins vegar tvívegis fyrir SR í
Laugardalnum um helgina og eru nú
aðeins þremur stigum á undan SR en
eiga reyndar leik til góða. Báðir leikir
liðanna voru æsispennandi en í báð-
um tilfellum sigraði SR með eins
marks mun. 7:6 á föstudagskvöld og
5:4 á laugardagskvöld.
Eftir Kristján Jónsson
sport@mbl.is
Sindri skoraði tvívegis hjá Ævari bróður sínum Það nægði SA ekki til sigurs