Morgunblaðið - 12.01.2009, Blaðsíða 5
Íþróttir 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009
Grótta, undirstjórn
Ágústs Jóhanns-
sonar, er með
tveggja stiga for-
ystu á toppi 1.
deildar karla í
handknattleik
eftir stórsigur á
Þrótti úr Reykja-
vík, 35:18, í Laugardalshöllinni á
laugardaginn. Grótta er með 20 stig
en ÍR og Selfoss 18 stig hvort. Finn-
ur Ingi Stefánsson og Arnar Freyr
Theodórsson skoruðu 8 mörk hvor
fyrir Gróttu og Þórir Jökull Finn-
bogason 6. Hjá Þrótturum var Frið-
geir Jónsson atkvæðamestur með 5
mörk og þeir Runólfur Jónsson og
Sveinn Höskuldsson gerðu 4 hvor.
Veigar Páll Gunnarsson, lands-liðsmaður í knattspyrnu, er
kominn til Nancy í Frakklandi þar
sem hann skrifðai nýverið undir
samning. Hann átti að vera meðal
áhorfenda á leik Nancy og Nice í
frönsku deildinni og þá átti að nota
tækifærið og kynna til sögunnar.
Ekkert varð hins vagar af leiknum
þar sem dómarinn úrskurðaði völl-
inn óleikfæran rétt um klukkutíma
áður en hann átti að flauta til leiks.
Norðmenn sigruðu á sínu árlegaPosten-móti í handknattleik
sem lauk í gær. Þeir lögðu Svía í
hreinum úrslitaleik í gærkvöldi með
28 mörkum gegn 25. Eitthvað hefur
líklegast gengið á í Håkonshöllinni í
Lillehammer því Svíar voru 16:12
yfir í leikhléi. Í leik um þriðja sætið
hafði Noregur B betur gegn Kuveit,
einnig 28:25. Áhorfendur á úrslita-
leiknum voru ekki nema 1.532, en
höllin tekur 12.000 áhorfendur.
Kristian Kjelling var atkvæða-mestur í liði Norðmanna í sigri
þeirra á Svíum, skoraði 11 mörk og
Håvard Tvedten átti einnig fínan
leik og gerði 7 mörk. Annars skor-
uðu átta leikmenn fyrir Noreg í
leiknum.
Hjá Svíumsáu tíu leik-
menn um að
skora og þeirra
atkvæðamestur
var Lukas Karls-
son sem gerði 7
mörk. Næstir
komu þeir Kim
Andersson og
Jonas Larholm,
en hvor um sig gerði fjögur mörk.
Fjórir sænskir leikmenn fóru útaf í
tvær mínútur hver en hjá Norð-
mönnum var það bara Erlend Ma-
melund sem fékk að hvíla sig í tví-
gang.
Fólk sport@mbl.is
GRÓTTA vann mikilvægan sigur
gegn Fylki 25:22 í 1. deild kvenna í
handknattleik á laugardaginn. Ís-
landsmeistarar Stjörnunnar unnu
HK 34:23 og Fram sigraði FH 28:23
á útivelli. Með sigrinum komst
Fram í 4. sæti deildarinnar með tíu
stig. Jafnmörg og FH en Fram á
leik til góða.
Grótta var í næst neðsta sæti
deildarinnar fyrir leiki helgarinnar
en komst upp að hlið HK með átta
stig. Fylkir hafði yfir í hálfleik
14:11 en Grótta skellti í lás í vörn-
inni í síðari hálfleik og uppskar
mörg mörk úr hraðaupphlaupum:
,,Í byrjun síðari hálfleiks þá small
vörnin hjá okkur og ég held að þær
hafi ekki skorað nema fjögur mörk
á fyrstu tuttugu mínútunum í síðari
hálfleik. Sóley Halldórsdóttir varði
mjög vel í markinu hjá okkur og við
fengum mörg hraðaupphlaup á
þessum leikkafla,“ sagði Magnús
Jónsson, þjálfari Gróttu, í samtali
við Morgunblaðið. Magnús neitar
því ekki að þó svo Grótta hafi verið
í næst neðsta sæti þá sé ekki svo
fjarlægt markmið fyrir Gróttu að
ná fjórða sætinu og komast í úr-
slitakeppnina:
,,Við töluðum um það eftir
jólafríið að það væri kannski ekki
óraunhæft að stefna á fjórða sætið.
En það er ekkert í hendi ennþá. Við
ætlum bara að passa að missa liðin
ekki of langt frá okkur sem eru fyr-
ir ofan í töflunni.“ kris@mbl.is
Mikilvægur sigur hjá
Gróttu gegn Fylki
meistara Þjóðverja
ti í handknattleik.
7, en heimamenn
fir í hálfleik. Garcia
mörk og Romero
um fína drætti en
:21 þar sem Pascal
verjar lögðu einnig
jar einnig, 37:18.
þeir mættu Portú-
u og virðast til alls
ginn.
sar, Egyptar, Als-
ína. Frakkar voru
uðu á því að vinna
lfleik. Áhorfendur,
góðum handbolta-
kuli@mbl.is
ru illa
na
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sigursæll Claude Onesta þjálfari Frakka náði að sigrast á
Rússum á mótinu sem lauk í París í gær.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
„Þetta var dálítið kaflaskiptur leikur
hjá okkur á móti Bosníu. Við byrj-
uðum ágætlega en síðan komast þeir
einum fjórum mörkum yfir. Við náð-
um að jafna og vorum 19:17 yfir í hálf-
leik. Við héldum síðan forystunni all-
an síðari hálfleikinn og sigurinn var
tiltölulega öruggur þó svo við yrðum
að sjálfsögðu að hafa fyrir hlutunum,“
sagði Guðmundur.
Þreyttir eftir mikið álag
Hann sagði mikla þreytu í mann-
skapnum eftir sex leiki á átta dögum.
„Það er gríðarleg þreyta í mann-
skapnum enda búið að keyra þetta
nokkuð stíft síðustu vikuna. Það sást
greinilega á leik manna og svo urðum
við að hvíla Ásgeir Örn [Hall-
grímsson] og Loga Geirsson mikið
auk þess sem Ingimundur Ingimund-
arson var ekki alveg heill þannig að
við ákváðum að hvíla hann.
Megnið af síðari hálfleiknum vorum
við með Sturlu [Ásgeirsson] og Þóri
[Ólafsson] í hornunum og Sig-
urbergur [Sveinsson] og Rúnar
[Kárason] voru skyttur og Valdimar
Þórsson leikstjórnandi en hann var
nú með liðinu í fyrsta sinn. Þetta eru
ekki menn sem hafa spilað mikið með
íslenska landsliðinu en þeir stóðu sig
vel þannig að ég er sáttur.
Eins og ég segi þá var þetta ekki
besti leikur sem íslenska landsliðið
hefur spilað en við náðum þó að vinna
og það skiptir öllu máli. Við gerðum
það sem við þurftum og ég er ánægð-
ur með það,“ sagði Guðmundur.
Hann sagði að leikin hefði verið flöt
vörn lengst af. „Við lentum aðeins í
vandræðum með þá í lokin og þá
breyttum við í 5+1 og það riðlaði
sókninni hjá þeim og gerði út um leik-
inn,“ sagði Guðmundur.
Á sama tíma og landsliðið lék í
Danmörku var 2012-landsliðið að
krækja sér í bronsverðlaun á móti í
Frakklandi. „Með þessu erum við að
stækka hópinn sem við höfum yfir að
ráða. Með þessu breikkum við þann
hóp sem við höfum úr að velja hverju
sinni. Auðvitað hefði maður viljað
hafa alla okkar sterkustu leikmenn
með, en maður sér það ekki fyrir
hálfu ári áður þegar svona lagað er
ákveðið, að það vanti einhverja átta
eða níu menn frá Ólympíuleikunum.“
Yngri og óreyndari fá tækifæri
„Yngri og óreyndari leikmenn fá
því tækifæri og það er auðvitað bara
af hinu góða. Nú sér maður hvar þeir
standa og eins reyndum við nýjar
leikaðferðir og það er það sem við
fáum fyrst og fremst út úr svona mót-
um.
Við Kristján [Halldórsson þjálfari
2012-liðsins] funduðum áður en við
fórum í þessar ferðir þannig að við er-
um með samræmingu á því sem verið
er að gera, bæði í vörn og sókn. Mark-
miðið með því er að þegar við tökum
nýja menn inn í landsliðið þekki þeir
til þess sem verið er að gera. Eins eru
öll leikkerfin inni á „Sideline“ og að-
gengileg þar fyrir strákana.
Við erum að hugsa til framtíðar
með þessu og vitum að það tekur tíma
fyrir menn að komast í alþjóðlegan
gæðaflokk,“ segir Guðmundur.
„Sáttur við frammi-
stöðuna í mótunum“
Íslenska landsliðið vann Bosníu og endaði í öðru sæti í Danmörku Mikil
þreyta í mannskapnum eftir sex leiki á átta dögum Yngri menn fengu tækifæri
„ÉG er ánægður með heildina í þessu
hjá okkur og sáttur við frammistöðuna
á þessum tveimur mótum,“ sagði Guð-
mundur Guðmundsson, landsliðsþjálf-
ari í handknattleik, eftir 33:31 sigur á
Bosníu á Danmerkurmótinu í gær. Tveir
sigrar og naumt tap gegn Dönum var
niðurstaðan og annað sætið. Íslenska
liðið lék ekkert sérstaklega vel í gær,
enda talsverð þreyta komin í mannskap-
inn, auk þess sem mikil forföll voru hjá
liðinu. Þetta var fyrsti A-landsleikur Ís-
lands gegn Bosníu frá upphafi
Morgunblaðið/Golli
Reyndur Róbert Gunnarsson var einn af fáum lykilmönnum úr íslenska landsliðinu frá Ólympíuleikunum í Peking sem
léku með liðinu á mótunum tveimur í Svíþjóð og Danmörku. Róbert skoraði 6 mörk gegn Bosníumönnum í gær.
Í HNOTSKURN
»Samræmdar aðgerðireru hjá þjálfurum 2012
landsliðsins og A-landsliðs-
ins, Kristjáni og Guðmundi.
»Leikmenn þekkja þvíkerfin og annað þegar
þeir eru kallaðir í lands-
liðið.
»Annað sætið í Danmörkuog brons í Frakklandi
eftir tvo sigurleiki í gær er
vel viðunandi árangur.
Danmörk – Ísland 30:29
Silkeborg, Danmörku, alþjóðlegt hand-
knattleiksmót karla, laugardaginn 10. jan-
úar 2009.
Gangur leiksins: 1:3, 4:7, 7:7, 12:9, 14:12,
16:15, 18:15, 22:19, 27:22, 29:25, 30:29.
Mörk Danmerkur: Anders Eggert Jensen
9/2, Mads Ö. Nielsen 5, Michael V. Knud-
sen 4, Torsten Laen 3, Jesper Jensen 3,
Klavs H. Bruun Jörgensen 3, Bo Speller-
berg 2, Hans Lindberg 1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Íslands: Logi Geirsson 9/2, Þórir
Ólafsson 5, Rúnar Kárason 5, Ásgeir Örn
Hallgrímsson 4, Sturla Ásgeirsson 3, Ró-
bert Gunnarsson 2, Ragnar Óskarsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 8,
Magnús Gunnar Erlendsson 2.
Utan vallar: 6 mínútur.
Áhorfendur: 2.262.
Bosnía – Ísland 33:31
Randers, Danmörku, alþjóðlegt handknatt-
leiksmót karla, sunnudaginn 11. janúar
2009
Gangur leiksins: 19:17, 33:31
Mörk Íslands: Sturla Ásgeirsson 7, Róbert
Gunnarsson 6, Valdimar Þórsson 5, Rúnar
Kárason 5, Sigurbergur Sveinsson 4, Þórir
Ólafsson 3, Logi Geirsson 2 og Vignir Svav-
arsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 15.