Morgunblaðið - 12.01.2009, Page 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009
www.isi.is
Þjálfarastyrkir ÍSÍ vor 2009
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir
umsóknum um þjálfarastyrki vegna menntunar erlendis.
Upplýsingar gefur sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467
og á vidar@isi.is. Umsóknir berist á þar til gerðum
eyðublöðum fyrir 1. feb. nk
Helena Sverr-isdóttir og
félagar hennar
hjá TCU-
háskólanum í
Bandaríkjunum
unnu UNLV-
skólann 66:61
þegar körfubol-
talið skólanna
mættust í fyrrinótt. Helena var sem
fyrr í byrjunarliði TCU og lék í 38
mínútur. Á þeim tíma gerði hún 8
stig, tók 6 fráköst og átti 8 stoðsend-
ingar á félaga sína. Hún gerði tvö
síðustu stig liðsins af vítalínunni en
þaðan hitti hún úr öllum fjórum
vítaskotum sínum. Hún tók eitt
þriggja stiga skot í leiknum en hitti
ekki úr því og úr tveggja stiga skot-
um sínum hitti hún úr tveimur af
sjö.
Úrvalsdeildarlið Snæfells í körfu-knattleik karla ætlar að fá sér
liðsstyrk á næstu dögum samkvæmt
því sem fram kemur í Stykkishólms-
póstinum. Ætlunin mun vera að fá
erlendan leikstjórnanda í Hólminn
og mun ákveðinn maður vera talinn
líklegastur, leikmaður sem þjálf-
ararnir Hlynur Bæringsson og Sig-
urður Þorvaldsson þekkja vel til.
Jóhann Árni Ólafsson og félagarhjá Proveo Merlins unnu
fimmta leikinn í röð um helgina þeg-
ar þeir lögðu BIS Baskets Speyer
88:64. Jóhann Árni var í byrjunarliði
Merlins og lék í 27 mínútur og gerði
á þeim tíma 18 stig, tók 6 fráköst og
stal boltanum tvívegis auk þess að
gefa eina stoðsendingu.
Boston réttiúr kútnum
eftir fjóra ósigra
í röð í NBA-
deildinni banda-
rísku í körfu-
knattleik. Liðið
lagði Toronto í
Kanada 94:88.
Ray Allen átti
frábæran leik en hann gerði 36 stig
og hitti rosalega vel, skoraði úr átta
þriggja stiga skotum af tíu sem
hann tók.
Danski kylfingurinn AndersHansen sigraði á Joshug-
golfmótinu í Suður-Afríku í gær.
Hann lék lokahringinn á fimm högg-
um undir pari og var alls á 15 högg-
um undir pari. Hansen fékk fugl (-1)
á lokaholunni og það dugði til þess
að hann fagnaði þriðja sigri sínum á
Evrópumótaröðinni.
Fólk sport@mbl.is
,,ÞAÐ koma allir rosalega vel gír-
aðir á móti okkur vegna þess að
við erum taplausir. Við erum hins
vegar alveg rólegir yfir því þó við
séum að strögla í byrjun leikja.
Við þurfum að vera mjög einbeitt-
ir og höfum verið það. Í kvöld
lentum við tíu stigum undir en
héldum bara áfram að renna okk-
ar áherslum í gegn. Þeir voru með
nokkra nýja þætti í sóknarleik sín-
um og það tók okkur smá tíma að
átta okkur á því. En eftir að okk-
ur tókst að bregðast við því þá
hafði ég ekki mjög miklar áhyggj-
ur af þessu,“ sagði Fannar Ólafs-
son, fyrirliði KR og fyrrv. leik-
maður Keflvíkinga, í samtali við
Morgunblaðið þegar sigurinn var í
höfn.
Fannar segir leikmenn KR vera
mjög samstillta í öllum verkefnum
hvort sem er í bikar- eða deild-
arkeppni. „Þessi leikur sýnir
kannski reynsluna og ákveðnina
sem býr í þessu liði. Það eru allir
á sömu blaðsíðu hvort sem þeir
spila í eina eða fjörutíu mínútur.
Þegar við erum komnir á sporið
þá er erfitt að ýta okkur út af
því,“ bætti Fannar við.
Ellefu stig Jóns
sneru leiknum
Eins og áður segir voru gest-
irnir betri í fyrsta leikhluta og
komust þá í 16:5. Þrátt fyrir að
Keflvíkingar væru komnir á
bragðið þá voru KR-ingar ótrú-
lega fljótir að snúa leiknum sér í
vil. Þar var framlag Jóns Arnórs
Stefánssonar mikilvægt. Hann
skoraði ellefu stig á þriggja mín-
útna kafla og sýndi heldur betur
úr hverju hann er gerður. Skoraði
þriggja stiga körfu á lokasekúndu
fyrsta leikhluta og tvær til við-
bótar í upphafi annars leikhluta.
Bætti svo við myndarlegri troðslu
úr hraðaupphlaupi. Skyndilega
voru KR-ingar komnir yfir 31:26
og tókst að slökkva þann neista
sem Keflvíkingar höfðu kveikt á
upphafsmínútum leiksins.
,,Brotnuðum
allt of fljótt“
Ísfirski miðherjinn, Sigurður
Þorsteinsson, var stigahæstur
Keflvíkinga í leiknum. Honum
tókst að spila allan seinni hálfleik-
inn með fjórar villur á bakinu og
hann leyndi ekki vonbrigðum sín-
um eftir leikinn: ,,Þeir fóru að ýta
okkur út úr okkar eigin leik-
kerfum. Við hættum þá að leita að
þeim lausnum sem við áttum að
leita að. Fórum að skjóta úr erf-
iðum færum í stað þess að skjóta
eftir leikkerfi eða hraðaupphlaup.
Þetta er kannski einhvers konar
einbeitingarleysi,“ sagði Sigurður
sem finnst Keflvíkingar hafa
brotnað of fljótt við mótlætið. „Við
brotnuðum allt of fljótt. Um leið
og þeir fóru að henda okkur til og
frá þá fórum við að væla í dóm-
urum.“
Þetta er athyglisverður punktur
hjá Sigurði því þegar Keflvíkingar
hafa fundið blóðbragð í gegnum
tíðina þá hafa þeir gengið á lagið.
Keflvíkingar eru stoltir menn og
þá sérstaklega þegar kemur að
körfuboltaliðum sínum. Þeir hafa
,,Allir á sömu síðu“
KR-ingar fóru illa með Keflavík í bikarnum Sigruðu með 31 stigs mun
KR-INGAR halda ótrauðir áfram sig-
urgöngu sinni í körfuknattleik karla.
Í gærkvöldi slógu þeir Keflvíkinga út
í 8 liða úrslitum Subwaybikarkeppn-
inni 95:64 í DHL-höllinni í Frosta-
skjóli. Er þetta í annað sinn í vetur
sem KR-ingar skella Keflvíkingum
með sannfærandi hætti í Vest-
urbænum. Keflavík byrjaði leikinn
mun betur og var yfir eftir fyrsta
fjórðung. Þrátt fyrir það tókst KR-
ingum að ná öruggu forskoti í þriðja
leikhluta og spennan datt úr leikn-
um.
Morgunblaðið/Kristinn
Hjálp Það er örvænting í svip Sverris Þórs Sverrissonar, hins öfluga varnarmanns Keflvíkinga, þegar hann horfir á
Jón Arnór Stefánsson geysast framhjá sér í bikarslagnum gegn KR í Vesturbænum í gærkvöld. Jón Arnór og fé-
lagar hans léku Suðurnesjaliðið grátt og eru komnir í undanúrslit bikarkeppninnar.
Eftir Kristján Jónsson
sport@mbl.is
STARNARN úr
Garðabæ átti ekki í
neinum vandræðum
með að komast í und-
anúrslitin í Subway-
bikarnum í körfu-
knattleik karla í
gærkvöldi. Teitur
Örlygsson og læri-
sveinar hans tóku þá
á móti 1. deildarliði
Vals og unnu 116:70
eftir að hafa verið 62:36 yfir í
leikhléi.
Leikstjórnandinn Justin
Shouse fór mikinn í
leiknum við Val og
gerði 28 stig auk
þess sem hann átti 8
stoðsendingar. Hann
hitti úr 6 af 11
tveggja stiga skotum
og úr 5 af 7 þriggja
stiga skotum sínum.
Kjartan Kjartansson
var einnig sjóðandi
heitur hjá Stjörn-
unni, og hitti úr 5 af 6 þriggja
stiga skotum, 2 af þremur
tveggja stiga og úr báðum
vítaskotunum. Þá var Fannar
Helgason einnig sterkur með
9 fráköst og 5 stoðsendingar.
Hjá Val voru Hjalti Frið-
geirsson og Gylfi Geirsson
atvkæðamestir með 16 stig
hvor og Jason Harden með 14
stig.
Stjarnan hitti úr 19 af 27
þriggja stiga skotum og er
það 70,4% nýting sem er gríð-
arlega gott en Valsmenn
hittu aðeins úr tveimur af 11
sem er 18,2% nýting.
skuli@mbl.is
Vandræðalaust hjá Stjörnunni
Justin
Shouse
„MENN uppskera eins og þeir sá og stelp-
urnar hafa tekið vel á því á æfingum að und-
anförnu og frammistaðan í þessum leik var
rökrétt framhald af því,“ sagði Jóhannes Árna-
son, þjálfari kvennaliðs KR í körfuknattleik,
eftir að liðið hafði slegið Hauka út úr Subway-
bikarnum að Ásvöllum í gær. Lokatölurnar
65:93 eftir að staðan hafði verið 28:46 í leikhléi.
„Við spiluðum mjög góða maður-á-mann all-
an leikinn og við vorum skrefinu á undan
Haukum að þessu sinni. Við erum að vinna
okkur upp úr þeirri holu sem við vorum búnar
að koma okkur í. Við höfum ekki leikið nógu vel
í vetur en vonandi er þetta uppafið að ein-
hverju betra,“ sagði Jóhannes.
Kristrún Sigurjónsdóttir,
sem hefur leikið mjög vel
hjá Haukum í vetur lenti í
villuvandræðum í fyrsta
leikhluta og fékk síðan sína
fimmt villu, ruðning, í upp-
hafi þriðja leikhluta. Slavica
Dimovska var sú eina sem
lék vel hjá Haukum, gerði
37 stig.
Sigrún Ámundadóttir átti
flottan leik hjá KR sem og
Margrét Kara Sturludóttir og einnig áttu Hild-
ur Sigurðardóttir og Guðrún Gróa Þorsteins-
dóttir fínan leik. skuli@mbl.is
Ótrúlega stór sigur KR á Haukum
Sigrún
Ámundadóttir
KR – Keflavík 95:64
DHL-deildin, bikarkeppni karla, Subway-
bikarinn, 8-liða úrslit, sunnudaginn 11. jan-
úar 2009.
Gangur leiksins: 0:2, 3:2, 5:16, 14:22, 22:24,
31:26, 34:26, 41:32, 47:37, 55:39, 55:44,
67:49, 74:51, 78:53, 86:55, 95:64.
Stig KR: Jón Arnór Stefánsson 20, Jason
Dourisseau 20, Fannar Ólafsson 16, Jakob
Örn Sigurðarson 11, Helgi Már Magnússon
10, Skarphéðinn Ingason 8, Darri Hilmars-
son 7, Pálmi Freyri Sigurgeirsson 3.
Fráköst: 11 í vörn – 32 í sókn.
Stig Keflavíkur: Sigurður Þorsteinsson 17,
Jón Norðdal Hafsteinsson 12, Hörður Axel
Vilhjálmsson 11, Sverrir Sverrisson 7,
Þröstur Leó Jóhannsson 7, Gunnar Ein-
arsson 6, Gunnar Stefánsson 2, Axel Mar-
geirsson 2.
Fráköst: 9 í vörn – 22 í sókn.
Villur: KR 22 – Keflavík 16.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson og
Björgvin Rúnarsson. Ekki öfundsverðir af
sínu hlutverki en stóðu sig ljómandi vel.
Áhorfendur: Um 900.
nú steinlegið fyrir KR-ingum í tví-
gang á þessari leiktíð. Næstkom-
andi föstudag mætast liðin í þriðja
sinn og þá á heimavelli Keflvík-
inga. Það mætti segja mér að það
verði fróðlegur leikur. Keflvík-
ingar munu ábyggilega berjast til
síðasta manns en spurning hvort
það nægi því gæðin virðast vera
talsvert meiri í KR-liðinu eins og
er.