Morgunblaðið - 12.01.2009, Page 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009
Ísland B – Tékkland B 34:28
Marrana mótið í Frakklandi, alþjóðlegt
mót í handknattleik karla, sunnudaginn 11.
janúar 2009.
Gangur leiksins: 0:1, 6:6, 6:9, 7:11, 10:12,
10:15, 11:16, 14:17, 15:20, 21:21, 24:24,
28:25, 30:27, 34:28.
Mörk Íslands: Bjarni Fritzson 7, Ólafur
Guðmundsson 5, Hannes Jón Jónsson 4,
Sigurður Ari Stefánsson 3, Oddur Grétars-
son 3, Arnór Þór Gunnarsson 2, Freyr
Bjarnason 2, Elvar Friðriksson 2, Ingvar
Árnason 2, Kári Kristján Kristjánsson 2,
Fannar Friðgeirsson 1, Sigurgeir Árni
Ægisson 1.
Varin skot: Pálmar Pétursson 24, Ólafur
H. Gíslason 8.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Tékklands: Horak 7, Cip 6, Hrstka 5,
Kotrc 2, Sira 1, Becvar 1, Prachar 1.
Varin skot: Krupa 22.
Utan vallar: 14 mínútur.
HVÖT frá Blönduósi og HK/
Víkingur urðu um helgina Íslands-
meistarar í innanhússknattspyrnu,
futsal, en leikið var til úrslita í
íþróttahúsinu Austurbergi.
Hvatarmenn lögðu lið Víðis úr
Garði 6:2 í úrslitaleik í gær en á
laugardaginn vann Víðir lið Víkings
frá Ólafsvík og Hvöt lagði ÍBV þar
sem Eyjamenn mættu ekki til leiks.
Sigurður R. Pálsson gerði þrjú
mörk fyrir Hvöt í úrslitaleiknum og
þeir Halldór Halldórsson, Aron
Bjarnason og Gissur Jónasson eitt
mark hver. Bæði mörk Víðis gerði
Björn Ingvar Björnsson.
Hvöt fær Evrópusæti
Með sigrinum fær Hvöt sæti í
Evrópukeppni meistaraliða í futsal,
en Víðir keppti í þeirri keppni í
fyrra.
HK/Víkingur varð Íslandsmeist-
ari í kvennaflokki þegar liðið lagði
Sindra frá Hornafirði 6:1. Rut
Bjarnadóttir og Karen Sturludóttir
gerðu tvö mörk hvor fyrir HK/
Víking og þær Ellen Bjarnadóttir og
Lára Hafliðadóttir sitt markið hvor.
HK/Víkingur vann Selfoss 13:2 í
undanúrslitum á laugardaginn og
Sindri lagði Þrótt R 4:3.
skuli@mbl.is
Hvöt og
HK/Víking-
ur unnu
Sigur Tinna Óðinsdóttir fyrirliði
HK/Víkings með Íslandsbikarinn.
ZLATKO Krickic, drengjalandsliðs-
maður í knattspyrnu úr HK, er á
förum til ítalska A-deildarfélagsins
Atalanta sem hefur boðið honum til
æfinga hjá sér í eina viku. For-
ráðamenn Atalanta sáu Zlatko spila
með drengjalandsliði Íslands á
Norðurlandamótinu í Svíþjóð í sum-
ar og mættu aftur til að sjá hann í
undanriðli Evrópukeppninnar sem
var leikinn hér á landi í haust.
Zlatko, sem verður 17 ára síðar í
þessum mánuði, er fæddur og uppal-
inn á Íslandi en er með tvöfalt rík-
isfang. Serbar vilja líka fá hann í sín-
ar raðir og Zlatko lék síðasta vor tvo
vináttuleiki með U16 ára landsliði
Serbíu. Honum hefur áður verið
boðið til æfinga með Rauðu stjörn-
unni í Serbíu og enska úrvalsdeild-
arliðinu Everton. Zlatko var í hópi
meistaraflokks HK í einum leik í úr-
valsdeildinni síðasta sumar og lék
síðan með varaliði félagsins, Ými, í 3.
deildinni. vs@mbl.is
Zlatko æfir
hjá Atalanta
„ÞETTA var alveg ferlega svekkjandi og ég er hund-
svekktur með að ná ekki að jafna því við fengum færi til
þess, ekki eitt heldur fjögur en okkur tókst ekki að
skora,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálf-
ari í handknattleik, eftir naumt tap, 30:29, fyrir Dönum í
Randers á laugardaginn. Það var úrslitaleikur mótsins
þegar upp var staðið.
„Þetta var hörkuleikur og ferlega svekkjandi að hafa
ekki náð að jafna. Við fengum tækifærin til þess en
reynsluleysi hjá okkur varð til þess að okkur tókst ekki
að skora í lokin.
En strákarnir mega eiga það að þeir gáfust aldrei upp
þó svo við lentum talsvert undir í leiknum. Við hefðum
alveg átt skilið annað stigið í þessum leik,“ sagði Guð-
mundur.
Íslenska liðið byrjaði betur í leiknum og komst í 3:1 og
síðan 7:4 en þá kom fínn kafli hjá Dönum sem náðu að
jafna 7:7 og voru síðan skrefinu á undan. Staðan í hálf-
leik var 14:12 fyrir Dani.
Heimamenn héldu síðan áfram að auka forystu sína í
síðari hálfleik og komst þá meðal annars í 27:22 þegar
þrettán mínútur voru eftir. „Strákarnir neituðu að gef-
ast upp og baráttan var gríðarleg hjá þeim og þeir hefðu
alveg verðskuldað að jafna í lokin og ná í eitt stig. Við
fengum fjögur færi til þess en því miður þá tókst okkur
ekki að krækja í eitt stig,“ sagði Guðmundur.
Hann tók sérstaklega fram að enginn leikmanna sinna
hefði meiðst í leiknum, en meiðsli hafa hrjáð liðið í þess-
um tveimur mótum. „Nei, nú meiddist sem betur fer eng-
inn, en þetta hefur reynt verulega á liðið og ákveðna lyk-
ilmenn í liðinu. Við erum mjög þunnskipaðir vegna
þessara meiðsla og í rauninni þá er það bara flott að tapa
bara með einu marki fyrir Dönum, sem eru að leggja
lokahönd á undirbúning sinn fyrir HM. Á meðan þeir eru
með fullskipað lið vantar fjölmarga leikmenn hjá okkur
auk þess sem mikið álag hefur verið á strákunum. En
menn eru samt hundsvekktir,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
skuli@mbl.is
Sársvekktir landsliðsmenn eftir
eins marks tap fyrir Dönum
SPÁNVERJAR fóru heldur illa með heimsm
er landslið þjóðanna mættust á æfingamót
Spánverjar unnu með 28 mörkum gegn 1
höfðu undirtökin allan leikinn og voru 15:8 yfi
var markahæstur hjá Spánverjum með 7/4
var með sex mörk. Hjá Þjóðverjum var fátt
markahæstur var Jansen með 4 mörk.
Þjóðverjar lögðu Portúgali á sama móti 26
Hens var atkvæðamestur með 6 mörk. Þjóðv
Argentínu, 25:22, en það gerðu Spánverj
Heimamenn voru einnig í essinu sínu þegar þ
gölum og unnu 34:20 og urðu efstir í mótinu
líklegir á HM í Króatíu, sem hefst á föstudag
Í Frakklandi var sterkt mót þar sem Rús
írmenn og Frakkar leiddu saman hesta sí
sterkastir þar, lögðu sína mótherja og endu
Rússa 32:30 eftir að hafa verið 16:13 yfir í hál
sem voru 14.000, skemmtu sér hið besta yfir
leik en áður höfðu Egyptar lagt Alsír 28:25. sk
Spánverjar fór
með meistaran
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
„Ég veit eiginlega ekki hvaða íþrótt
við vorum að leika í fyrri hálf-
leiknum, það var í það minnsta ein-
hver allt önnur en við lékum í þeim
síðari,“ sagði Kristján um fyrri hálf-
leikinn á móti Tékkum í gærmorgun.
Svo virtist í það minnsta sem ís-
lensku leikmönnunum hefði gengið
verr en Tékkunum að vakna því eftir
að jafnt hafði verið á öllum tölum
upp í 6:6 fór allt í baklás hjá íslenska
liðinu. Tékkar gerðu þrjú mörk í röð,
9:6, en íslenska liðinu tókst að hanga
í Tékkum og minnka muninn í eitt
mark, 10:11. Þá kom aftur slæmur
kafli þar sem Tékkar komust í 15:10
og 16:11 en á lokakafla fyrri hálfleiks
tókst liðinu að gera þrjú mörk gegn
einu marki Tékka og staðan í leikhléi
var 17:14 fyrir Tékkana.
Seinni hálfleikur
byrjaði ekki vel
Byrjunin á síðari hálfleik var ekki
góð hjá íslenska liðinu því eftir rúm-
lega fimm mínútna leik var staðan
orðin 20:15 fyrir Tékka. En íslensku
strákarnir voru ekki búnir að játa
sig sigraða heldur tóku sig á og á
næstu fimm mínútum náðu þeir að
jafna, 21:21 og gerði Sigurður Ari
Stefánsson þrjú mörk í röð eftir að
hann kom í stöðu skyttunnar hægra
megin. Eftir þetta var eftirleikurinn
þeim tiltölulega auðveldur og þegar
flautað var til leiksloka var sex stiga
sigur staðreynd, 34:28.
„Við vorum einum þremur mörk-
um undir í hálfleiknum, enda vorum
við alls ekki tilbúnir í þessum fyrri
hálfleik. Síðan byrjuðum við skelfi-
lega í síðari hálfleik en svo tóku
strákarnir sig á og við jörðuðum
Tékkana í síðari hálfleik,“ sagði
Kristján þjálfari í samtali við Morg-
unblaðið eftir leikinn í gær.
„Vörnin small saman hjá okkur og
í kjölfarið komu hraðaupphlaupin og
nú var leikið með gamla góða ís-
lenska hjartanu. Ég veit satt best að
segja ekki hvað við vorum að gera í
fyrri hálfleiknum, en sem betur fer
tókum við okkur á og spiluðum vel í
þeim seinni og náðum að sigra.
Það er kosturinn við þetta að það
er alltaf hægt að bæta sig. Þriðja
sætið í þessu sterka móti er meira
en maður hefði getað vonað.“
Ungir strákar fá reynslu
„Við fórum í þetta mót til að gefa
ungum strákum reynslu og ég held
að það hafi tekist því við lékum erf-
iðan leik við Serba, sem voru með
sitt sterkasta lið enda á leið á HM.
Síðan kom mikill baráttuleikur við
Ivry, sem við unnum og síðan þessi
leikur við Tékka í dag. Tékkarnir
eru með blandað lið líkt og við.
Um leið og við gáfum aðeins í og
sýndum að við höfðum vilja til að
vinna, þá brotnaði þetta hjá þeim.
Tékkar eru með stóran og efnilegan
markmann, Krupa, sem varði mikið
frá okkur í fyrri hálfleik en svo
lærðu strákarnir að skjóta á hann.
Við breyttum líka vörninni í seinni
hálfleik, Bjarni Fritzson fór út
hægra megin og truflaði sóknarleik
þeirra. Þá breyttist þetta okkur í
hag. Við erum nefnilega ansi hreint
erfiðir ef við höfum baráttuna og
viljann til að vinna,“ sagði Kristján.
Horfðu á Rússa og Frakka
Eftir leikinn fór liðið og horfði á
síðari hálfleikinn í úrslitaleik móts-
ins, leik Túnisa og Serba. „Síðan
ætlum við að fara í kvöld og horfa á
leik Frakka og Rússa sem leika til
úrslita í öðru móti hér í Frakklandi.
Svo er flogið heim á morgun og von-
andi koma strákarnir brosandi og
fullir sjálfstrausts heim,“ sagði
Kristján.
Pálmar Pétursson stóð sig vel í
markinu, hann varði 24 skot í leikn-
um og Ólafur Haukur Gíslason, sem
byrjaði í markinu, varði 8 skot.
Morgunblaðið/Golli
Sterkir Ólafur Guðmundsson, hinn 18 ára gamli FH-ingur, og Sigurgeir Árni Ægisson, varnarjaxl úr HK, vöktu athygli fyrir frammistöðu sína með B-landsliðinu
í Frakklandi. Hér reynir Ólafur að skjóta framhjá Sigurgeir í deildaleik en Ólafur var skoraði fimm mörk gegn Tékkum í leiknum um bronsið í gær.
„Betra en ég bjóst við“
B-landslið Íslands varð í þriðja sæti í Frakklandi Ungir og efnilegir strákar koma
heim reynslunni ríkari Kristján þjálfari segist mjög ánægður með árangurinn
ÍSLENSKA B-landsliðið í handknattleik
gerði sér lítið fyrir og lagði B-lið Tékka
í leik um þriðja sætið á sex liða móti í
Frakklandi í gær. Hið unga og óreynda
lið kemur því heim með bros á vör og
bronspening að auki eftir frækna
frammistöðu í Frakklandi. „Ég er mjög
ánægður með þriðja sætið í þessu móti
og það er eiginlega betri árangur en
maður hafði þorað að vona svona fyr-
irfram,“ sagði Kristján Halldórsson,
þjálfari íslenska liðsins, eftir brons-
leikinn, sem var snemma í gærmorgun.