Morgunblaðið - 12.01.2009, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 12.01.2009, Qupperneq 8
8 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009 ÞAÐ var mikið líf og fjör á Ásvöllum um helgina þegar körfuknattleiks- deild Hauka hélt sitt árlega Actav- ismót, en það er mót fyrir yngstu krakkana sem iðka körfubolta, eða 11 ára og yngri. Leikgleðin er í fyr- irrúmi og stigin því ekki talin (op- inberlega) þó svo krakkarnir viti jafn- an nokkurn veginn hvernig hver leikur endar. Fjórir leikmenn eru inná í hverju liði í einu og var leikið á sex völlum og má með sanni segja að það hafi verið handagangur í öskj- unni. En eins og vera ber á svona mótum voru allir vinir og allir luku leik sem sigurvegarar. Mótið var hið fjölmennasta sem Haukar hafa haldið en alls tóku 85 lið frá þrettán féelögum þátt og komu þau víðs vegar að af landinu og skemmtu allir sér mjög vel. Hátt í 140 leikir voru í mótinu og þegar því lauk gátu keppendur skellt sér í sund í hinni nýju og glæsilegu Ásvallalaug sem er við hliðina á íþróttahúsinu. Mikið fjör hjá þeim yngstu Morgunblaðið/Kristinn Pínu villa Úr leik Ármanns og Grindavíkur þar sem Grindvíkingar fengu ekki að komast upp með auðvelt skot, enda vörnin svo gott sem í lagi. Morgunblaðið/Kristinn Ekki lengra Grindvíkingurinn var ákveðin að láta Haukamanninn ekki skora og fór á háhest fyrir vikið. Morgunblaðið/Íris Kristins Erfitt Stjarnan er hér í sókn á móti Valsmönnum sem reyna að verjast. Morgunblaðið/Kristinn Sleppur Haukamaður er hér að sleppa í gegnum vörn Grindvíkinga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.