Morgunblaðið - 02.02.2009, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2009
RV
U
N
IQ
U
E
01
09
03
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Lengri
opnun
artími
í verslu
n RV
Opið m
án. til
fös. frá
8.00 til
19.00
Lauga
rdaga
frá 10.0
0 til 17.
00
Rekstrarvörur
- fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili,
sem vilja spara og hagræða!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Ný ríkisstjórn
RAGNA Árnadóttir, nýr dómsmála-
ráðherra, er ekki sú fyrsta í fjöl-
skyldunni til að leggja fyrir sig
stjórnmál. Það vill nefnilega svo til
að langafi hennar, Jón Sigfússon, var
bæjarstjóri í Neskaupstað.
Á unglingsárunum dró ævintýra-
þráin Rögnu norður til Akureyrar,
þar sem hún bjó hjá afa sínum og
ömmu, þeim Ragnari Jóhannessyni
og Rögnu Jónsdóttur, á meðan hún
stundaði nám við Menntaskólann á
Akureyri. Þaðan útskrifaðist hún 1986 og hélt svo í Há-
skóla Íslands, þar sem hún lauk lögfræðiprófi árið
1991. Átta árum síðar, árið 1999, lauk hún svo meist-
aranámi í Evrópurétti frá Háskólanum í Lundi.
Ragna segist ekki hafa getað vikið sér undan starf-
inu.
„Náttúrlega fylgir þessu gífurleg ábyrgð. Þetta er
óvenjulegt skref að taka fyrir embættismann í stjórn-
arráðinu. Ég taldi mig ekki geta skorast undan þessu,
enda er ég ráðin á grundvelli hæfni minnar,“ segir
Ragna, og bætir því við að ekki hafi spillt fyrir að í
dómsmálaráðuneytinu starfi ákaflega gott fólk. Ragna
er gift Magnúsi Björnssyni og eiga þau tvær dætur,
Brynhildi og Agnesi Guðrúnu. baldura@mbl.is
Ævintýraþráin
togaði í norður
Langafinn var bæjarstjóri
Ragna
Árnadóttir
ÁSTA Ragnheiður Jóhannesdóttir,
nýr ráðherra félags- og trygginga-
mála, hefur nú náð þeim áfanga með
föðurafa sínum, Bjarna Ásgeirssyni,
að verða ráðherra.
Bjarni, faðir Jóhannesar, föður
Ástu Ragnheiðar, var landbúnaðar-
ráðherra í ráðuneyti Stefáns Jóhanns
Stefánssonar frá 4. febrúar 1947 til 6.
desember 1949. Fór Bjarni einnig
með orkumál.
Ásta Ragnheiður lauk stúdents-
prófi frá MR árið 1969 og lagði svo stund á nám í félags-
vísindum og ensku við Háskóla Íslands 1969-1973. Að því
loknu lauk hún þýskunámskeiði í Lindau í Þýskalandi
1967 og leiðsögumannanámskeiði árið 1979 í Háskóla Ís-
lands og á Spáni. Hún hefur líkt og Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra starfað sem flugfreyja, nánar til-
tekið hjá Loftleiðum 1969-1972. Hún hefur síðan starfað
sem kennari, dagskrárgerðarmaður og fararstjóri er-
lendis. Hún hefur verið alþingiskona í Reykjavík frá
1995, tók fyrst sæti fyrir Þjóðvaka, svo Samfylkingu.
„Ég bara nálgast öll þessi verkefni framundan af auð-
mýkt. Ég hef verið á velferðarvaktinni í stjórnmálum
alla tíð og þess vegna er það mjög ánægjulegt að geta
unnið að þessum málum,“ segir hún. Meira á mbl.is
Fetar í fótspor
föðurafa síns
Mun fara með félagsmálin
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
RÁÐHERRAR fráfarandi ríkisstjórnar
mættu brúnaþungir á síðasta ríkisráðsfund
hennar á Bessastöðum klukkan 17 í gær.
Fundurinn stóð yfir í rúmlega hálfa klukku-
stund. Geir H. Haarde, fráfarandi forsætis-
ráðherra, var fjarverandi. Hann flaug til
Amsterdam í Hollandi í gær og mun leggjast
þar inn á sjúkrahús í dag. Þar gengst hann
undir aðgerð vegna krabbameins í vélinda.
Að fundinum loknum sóttu bílstjórar ráð-
herranna þá einn af öðrum upp að dyrum
Bessastaða og keyrðu á brott. „Jæja, farin út
í frelsið,“ sagði Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, fráfarandi menntamálaráðherra,
þegar hún kom út af Bessastöðum og steig
upp í ráðherrabifreið sína.
Ný ríkisstjórn á fyrsta ríkisráðsfundi
Andrúmsloftið var öllu léttara þegar ný
ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur kom á
sinn fyrsta ríkisráðsfund á Bessastöðum
klukkan 18. Ráðherrar mættu brosmildir til
Bessastaða.
Steingrímur J. Sigfússon, nýr fjármála-,
landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, skar
sig nokkuð úr við komuna að Bessastöðum.
Hann kom sjálfur akandi á um 30 ára gam-
alli grænblárri Volvo-bifreið.
Þegar allir nýju ráðherrarnir höfðu ritað
nöfn sín í gestabók Bessastaða, eins og að-
stoðarmenn forseta Íslands lögðu mikla
áherslu á, héldu þeir inn í fundarherbergi
lokað fréttamönnum. Þar inni heyrðust
hlátrasköll óma. Fundurinn stóð yfir í rúm-
an hálftíma og eftir hann voru teknar ljós-
myndir af nýbakaðri ríkisstjórn fyrir utan
Bessastaði.
Að því loknu héldu nýju ráðherrarnir yfir
í ráðuneytin þar sem lyklaskipti fóru fram.
Nýtt fólk tók við lyklum í öllum ráðuneytum
nema utanríkisráðuneytinu. Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir mun færa eftirmanni sínum,
Össuri Skarphéðinssyni, lyklana að ráðu-
neytinu í dag en Össur verður áfram iðn-
aðarráðherra.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir tók við lyklum úr
hendi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjármálaráðherra Árni Mathiesen og Steingrímur J. Sigfús-
son voru kátir við lyklaskiptin að fjármálaráðuneytinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjávarútvegsráðherra Þá lá leið Steingríms í sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðuneytið á fund Einars K. Guðfinnssonar.
Ljósmynd/Helgi Már Arthursson
Heilbrigðisráðherra Ögmundur Jónasson þáði lykla sína frá
forvera sínum Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
Ljósmynd/Guðmundur H. Guðmundsson
Umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir færði Kol-
brúnu Halldórsdóttur lykla að umhverfisráðuneytinu.
Morgunblaðið/Ómar
Félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir færði Ástu
Ragnheiði Jóhannesdóttur lykla að sínu gamla ráðuneyti.
Hlátrasköll á Bessastöðum
Þungt var yfir fráfarandi ráðherrum en léttara yfir þeim nýju „Farin út í frelsið,“ sagði Þorgerð-
ur Katrín á tröppunum Lyklaskipti voru í ráðuneytunum í gærkvöld að loknum ríkisráðsfundi