Morgunblaðið - 02.02.2009, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 02.02.2009, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2009 Golfveisla 5. apríl. - 10 nætur (páskaferð) 15. apríl - 8 nætur 23. apríl - 3 nætur (4 golfdagar) 26. apríl - 7 nætur frá kr. 109.900 MasterCard Mundu ferðaávísunina! Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is Ný ríkisstjórn Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is „Í DAG yfirgefur nýfrjálshyggjan stjórnarráðið,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna og nýr fjármálaráðherra, þegar ný ríkisstjórn var kynnt. Við háborð sátu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, Jó- hanna Sigurðardóttir, nýr forsætis- ráðherra, Steingrímur og Katrín Jakobsdóttir, nýr menntamálaráð- herra. Þau sögðu öll að nýir tímar væru framundan í íslenskum stjórnmálum. Þau voru öll sammála um að miklir erfiðleikar væru framundan og nauð- synlegt væri að takast á við þá fljótt og vel. „Við tökum við gríðarmiklum erfiðleikum, við erfum þá frá þeirri hugmyndafræði sem leikið hefur Ís- land grátt. Ísland er í sárum eftir ný- frjálshyggjuna,“ sagði Steingrímur J. Ingibjörg Sólrún sagðist ekki ætla að verða ráðherra í nýrri ríkisstjórn. Hún sagðist jafnframt ætla að taka sér frí en snúa síðan til baka þegar hún hefði hvílst. Hún hefur undanfarna mánuði verið í lyfjameðferð vegna heilaæxlis og fór nýlega í aðgerð vegna þess í Svíþjóð. Hún sagði það hafa verið ljóst strax, eftir að Framsóknarflokk- urinn kom fram með tilboð um að verja ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar falli, að nýja rík- isstjórn væri hægt að mynda. „Ég leit svo á þegar Framsóknarflokk- urinn tilkynnti að hann væri tilbúinn að verja ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar vantrausti, að þá væri í sjálfu sér ekki eftir neinu að bíða. Þá var ekkert annað að gera en að athuga hvort þessir flokkar gætu komist að niðurstöðu sem allir gætu vel við unað. Ég tel að sú nið- urstaða sé fengin og hún sé ásætt- anleg fyrir þjóðina alla,“ sagði Ingi- björg Sólrún. Jóhanna Sigurðardóttir sagðist ætla að sjá til þess að allir ráðherr- arnir myndu vinna hratt og vel að því að slá skjaldborg utan um heimilin og atvinnulífið í landinu. „Það þarf að tryggja betur öryggisnetið í kringum heimilin í landinu. Þessi ríkisstjórn mun fyrst og fremst beita sér fyrir ábyrgri efnahagsstjórn. Þó þessi rík- isstjórn muni starfa í skamman tíma þá mun hún koma mörgum brýnum verkum áleiðis sem okkur í Samfylk- ingunni tókst ekki að koma í höfn í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn.“ Nýfrjálshyggjan yfirgefin  Forystumenn nýrra stjórnarflokka sögðu tímabili nýfrjálshyggjunnar vera lokið  Miklir erfiðleikar framundan sem þarf að takast á við fljótt  Steingrímur J. sagði þjóðina „í sárum“ eftir nýfrjálshyggju Morgunblaðið/Ómar Forystufólk Forystufólk vinstri grænna og Samfylkingar sést hér á blaðamannafundi sem haldinn var á Hótel Borg í gær. Farið var yfir stefnumál stjórnarinnar næstu vikur fram að kosningum 25. apríl næstkomandi. „ÉG HEF verið að skoða verk- efnaáætlunina og mér sýnist sem að það sé ýmis- legt, eins og lækkun vaxta og eitthvert undan- hald í gjaldeyr- ishöftum, sem sé til bóta,“ segir Vilhjálmur Egils- son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um nýju stjórnina. „Mér finnst sem það hefði mátt kveða skýrar að orði um afnám gjaldeyrishaftanna. Síðan er það al- gjörlega nauðsynlegt að það verði ábyrg ríkisfjármálastefna og að framkvæmd verði þau fjárlög sem við búum við. Það er ekki vikið frá því í yfirlýsingunni [...] Síðan sakna ég þess að það sé ekki ákveðin stefna út úr ríkisbankaleiðinni. Ég tel að ríkisbankarnir verði aldrei nógu burðugir fyrir atvinnulífið.“ baldura@mbl.is Ýmislegt til bóta Vilhjálmur Egilsson „VIÐ HÖFUM ekki náð að setj- ast yfir það ná- kvæmlega, þetta er auðvitað langt plagg, og ég var bara rétt að sjá þetta, en almennt vil ég segja að það er fagnaðar- efni að það hafi tekist að koma saman ríkisstjórn,“ segir Gylfi Arn- björnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, um verkefnaáætlunina. „Þær yfirskriftir sem stjórnin er að nefna eru allt atriði sem við og reyndar Samtök atvinnulífsins höf- um verið að leggja áherslu á. Miðað við þann skamma tíma sem er til stefnu þá er þetta metnaðarfullt, en eigum við ekki bara að vera jákvæð yfir því? Það er alveg ljóst að Al- þýðusambandið mun verða reiðubúið til samstarfs um að hrinda þessum verkefnum í fram- kvæmd.“ baldura@mbl.is Reiðubúnir til samstarfs Gylfi Arnbjörnsson LÆKKUN vaxta er brýnasta verk- efni nýrrar ríkis- stjórnar, að mati Andrésar Magn- ússonar, fram- kvæmdastjóra Samtaka versl- unar og þjónustu (SVÞ). „Mjög mikilvægt“ sé að staðið verði við samninga við Alþjóðagjaldeyr- issjóðinn, það hafi komið fram í samskiptum SVÞ og fráfarandi stjórnar að dagsetningin 12. febr- úar, þegar fram á að fara úttekt sjóðsins á þeim aðgerðum sem grip- ið hefur verið til eftir að lánið var veitt, hafi vofað yfir henni „eins og snara“. Skapa þurfi forsendu fyrir eðlilegu jafnvægisgengi, jafnframt því sem búa þurfi til bankakerfi sem „hafi burði til að þjóna atvinnu- lífinu“. Þá þurfi að semja við eig- endur jöklabréfa og annarra krafna vegna innistæðu bréfa, upp á 450 milljarða króna. baldura@mbl.is Vaxtalækkun er brýnust Andrés Magnússon GUÐJÓN Arnar Kristjánsson, formaður Frjáls- lynda flokksins, hefði viljað sjá skýrari stefnu í verkefnaskránni um sjávarút- vegsmálin og hvernig menn hugsi sér að liðka fyrir þeim. Einnig hefði hann viljað sjá við- brögð við áliti mannréttinda- nefndar Sameinuðu þjóðanna varð- andi úthlutun aflaheimilda þannig að aðgangur að kerfinu verði rýmkaður. „Við hefðum viljað fara í það á fullri ferð að opna það með ein- hverjum hætti hvernig ætti að leigja aflaheimildir til þeirra sem vilja gera út. Ekki bara að marka þeim forgang sem hafa fengið þetta á liðnum árum. Þar hefðum við vilj- að sjá virkilegar áherslur.“ gudni@mbl.is Mættu vera skýrari Guðjón Arnar Kristjánsson Katrín Jakobsdóttir, nýr mennta- málaráðherra, er yngsti ráð- herrann í ríkisstjórninni, 33 ára gömul. Jóhanna Sigurðardóttir kynnti það sérstaklega á blaðamanna- fundinum að Katrín ætti afmæli í gær. Katrín sagði nýja ríkisstjórn standa fyrir hugsjónir sem tími væri kominn til að gera hærra und- ir höfði. „Ég nefni kvenfrelsi, fé- lagshyggju, jöfnuð og réttlæti. Það er alveg ljóst að svigrúmið sem við höfum er þröngt, staða heimila og fyrirtækja í landinu er erfið. Ég hef fulla trú á því að verkefnaskrá VG og Samfylkingar muni hjálpa at- vinnulífinu að ná sér á strik. Ég hef fulla trú á því að lýðræðisumbætur sem þessi ríkisstjórn mun koma í verk muni hafa áhrif til langrar framtíðar til hagsmuna fyrir land og þjóð,“ sagði Katrín. Katrín Jakobsdóttir 33 ára ráðherra Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÁRNI Mathiesen, fráfarandi fjár- málaráðherra, telur möguleika á að erlendir aðilar eignist einn ríkisbank- anna á næstu þremur mánuðum. Hann telur verkaefnaáætlun nýju rík- isstjórnarinnar óljósa og innihalda fátt nýtt frá stefnu fráfarandi stjórn- ar í efnahagsmálum. „Það má eiginlega segja það að verkefnaáætlunin, það sem snýr að efnahagsmálunum, er eiginlega þau verkefni sem liggja fyrir og þegar er verið að vinna það. Það er ekki hægt að sjá að það séu mörg nýmæli þar. Ég eiginlega sé nú ekki að það hafi þurft að mynda nýja ríkisstjórn til að taka á þessum málum, sem eru í efna- hagsáætluninni allavega,“ segir Árni. „Það er nátt- úrulega augljóst að Samfylkingin hefur látið af öllu því sem snýr að Evrópumálunum og látið vinstri grænum eftir að ráða þeim kafla.“ Árni telur að með líku lagi hafi VG látið undan Samfylkingunni í mál- um Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hann telur efnahagsmarkmið áætl- unarinnar ekki vel skilgreind. Sér ekki afgerandi markmið „Ég sé ekki nein afgerandi mark- mið. Þetta er mjög óljóst sem er sagt þarna og mjög erfitt að vera á móti einhverju sérstöku [...] Það eru engin föst markmið. Það á að gera hlutinn svona eða hinsegin.“ – Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, vill sjá erlenda aðila eignast bank- ana þrjá. Hversu raunhæft telurðu að þetta verði að veruleika á næstu mán- uðum, að erlendir aðilar eignist bank- ana? „Ég held að það sé nú frekar ólík- legt að erlendir aðilar eignist alla bankana á næstu þremur mánuðum. Hins vegar er hugsanlegt að erlendir aðilar mundu á þessum tíma vera til- búnir til þess að taka einn þeirra yfir [...] Ég er alveg sammála Vilhjálmi um það að ef erlendir aðilar kæmu, þó ekki væri nema inn í einn bankann, þá væru örugglega meiri möguleikar á því að fá erlent fjármagn inn í banka- kerfið á ný í gegnum þá aðila.“ Loðið orðalag nýrrar stjórnar í efnahagsmálum Líkur á að útlendingar eignist einn bankann á næstu þremur mánuðum Árni Mathiesen  Meira á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.