Morgunblaðið - 02.02.2009, Page 6
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
„FYRIR mig var þetta mjög stór
ákvörðun, en ekki erfið. Ég hef
fengið mikla hvatningu til þess að
bjóða mig fram sem formaður. En
fyrst og fremst brennur með mér
áhugi á því að láta til mín taka á
þessum tímum,“ sagði Bjarni Bene-
diktsson í samtali við Morgunblaðið
í gær. Hann hefur ákveðið að bjóða
sig fram sem formaður Sjálfstæð-
isflokksins á landsfundi flokksins
sem fer fram 26.-29. mars.
Ljóst er að endurnýjun verður á
forystu flokksins þar sem nýr for-
maður verður kosinn. Geir H.
Haarde ætlar ekki að bjóða sig
fram sem formaður flokksins
áfram. Hann tilkynnti 23. janúar
síðastliðinn að hann hefði greinst
með illkynja æxli í vélinda og þyrfti
að fara í aðgerð vegna þess. Af þeim
sökum ætlaði hann ekki að bjóða sig
fram til áframhaldandi for-
mennsku.
Bjarni segist ekki hafa verið bú-
inn að ákveða að bjóða sig fram til
formanns á landsfundinum sem átti
að vera í lok janúar. „Ég var þeirrar
skoðunar að sá fundur hefði fyrst
og fremst átt að snúast um málefnin
sem var verið að takast á við á þeim
tíma. Svo breyttist staðan snögg-
lega og að athuguðu máli ákvað ég
að bjóða mig fram til forystustarfa
fyrir flokkinn,“ sagði Bjarni.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru a.m.k. þrír aðrir sjálf-
stæðismenn að kanna hljómgrunn
fyrir framboði til formanns eða
varaformanns. Það eru Guðlaugur
Þór Þórðarson, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir og Kristján Þór Júl-
íusson.
Kristján Þór sagðist í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi ekki vera
búinn að ákveða hvort hann gæfi
kost á sér í forystu flokksins. „Ég
er að hugsa minn gang og kanna
stöðu mína. Það eru miklir tímar í
stjórnmálum núna og það er eðli-
legt ef forystusveit allra flokka
verður endurnýjuð.“
Þegar hefur verið tekin ákvörðun
um að prófkjör skuli fara fram hjá
Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík.
Ekki er enn ljóst hvernig málum
verður háttað í öðrum kjördæmum
en líklegt er, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, að prófkjör verði
sú leið sem valin verður til að raða á
lista í flestum kjördæmum.
Býður sig fram til formanns
Bjarni Benediktsson ætlar að bjóða sig fram til formanns á landsfundi Sjálfstæðisflokksins Kristján
Þór Júlíusson er að hugsa sinn gang Fleiri íhuga framboð til forystuhlutverks í flokknum
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Kristján
Þór Júlíusson
Geir H.
Haarde
Þorgerður K.
Gunnarsdóttir
Bjarni
Benediktsson
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2009
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu hélt vel
heppnaðan fjölskyldudag í lögreglustöðinni á
Hverfisgötu á laugardag. Börnin fengu að kynn-
ast tækjum og tólum lögreglunnar og boðið var
upp á ráðgjöf frá sálfræðingi fyrir maka lög-
reglumanna. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu, sagði embættið með þessu
vilja þakka starfsmönnum sínum fyrir vel unnin
störf. „Það hefur verið mikið álag að undanförnu
á starfsmönnum embættisins og slíkt færist yfir
á fjölskyldur; börnin og makana. Fjölskyldan er
bakland hvers og eins og við vildum undirstrika
gagnvart starfsmönnum okkar og þeirra nán-
ustu hvað við metum framlag þeirra mikils.“
haa@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
Fjörugur fjölskyldudagur hjá lögreglunni
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
ÁFENGISGJALD hefur frá árinu
1995 hækkað fimm sinnum, nú síðast
í desember sl. Á meðan neyslu-
vísitalan hefur á sama tíma hækkað
um 91% hefur áfengisgjald á bjór
hækkað um 14%, um 2% á léttu víni
og 37% á sterku víni.
Þetta kemur fram í svari Árna M.
Mathiesen, fráfarandi fjár-
málaráðherra, við fyrirspurn Krist-
ins H. Gunnarssonar, þingmanns
Frjálslynda flokksins, á Alþingi.
Viðmið á hækkun neysluvísitöl-
unnar er frá september árið 1995 til
desember 2008. Áfengisgjald er lagt
á hvern sentilítra af vínanda umfram
2,25 sentilítra þegar um bjór eða létt
vín er að ræða, en gjaldið leggst á all-
an vínanda í sterku áfengi.
Verðið hækkað um 58%
Einnig kemur fram í svari ráð-
herra að á umræddu tímabili hækk-
aði verð á áfengi um 58%, eins og það
er mælt af Hagstofunni í vísitölu
neysluverðs. Sem fyrr segir hækkaði
vísitalan um 91% á tímabilinu þannig
að áfengi hefur lækkað töluvert að
raungildi. Frá 1995 hefur geng-
isvísitalan hækkað um 86%.
„Verðþróun á áfengi hefur því ekki
haldið í við þróun neysluverðs á um-
ræddu tímabili og þar af leiðandi
dregið úr hækkun vísitölu neyslu-
verðs,“ segir í svari ráðherra.
Í svarinu er birt útsöluverð áfengis
eins og það hefur verið í árslok frá
1995. Samkvæmt því hefur léttvín
hækkað um 57%, bjór um 69% og
sterkt áfengi um 75%. Bent er á að
óverulegt samband sé á milli út-
söluverðs og gengisvísitölu þar sem
skattar og vörugjöld séu töluvert
hátt hlutfall af útsöluverðinu. Minnst
eru áhrifin á sterkt áfengi en hlutfall
skatta og vörugjalda á það er hærra
en á aðrar tegundir áfengis.
Samkvæmt tölum frá Hagstofu var
hlutfall áfengiskaupa af útgjöldum
heimila 1,66% árið 1997, fór hæst upp
í 2,54% árið 2003 en lækkað síðan.
Gjald ekki fylgt verðlagi
Áfengisgjald af sterku víni hækkaði um 37% frá 1995 en neysluvísitalan um 91%
HÓPUR fólks vill
nú stofna almenn-
ingshlutafélag
um rekstur Morg-
unblaðsins. Face-
book-síða hefur
verið stofnuð
þessu til stuðn-
ings og eru með-
limir, þegar þetta
er skrifað, rúm-
lega 700 talsins.
„Markmiðið er að blaðið verði í al-
menningseign og enginn einn fjöl-
miðlakonungur eignist blaðið. Þessi
hópur hefur fyrst og fremst áhuga á
lýðræðislegri umræðu,“ segir Vil-
hjálmur Bjarnason, einn talsmanna
hópsins.
Ekki liggur fyrir hversu hárri
fjárhæð þarf að safna en Vilhjálmur
segist bjartsýnn á að fjármögnunin
heppnist. Hópurinn sækist eftir
framlögum sem ekki eru lægri en
100 þúsund og ekki hærri en ein
milljón frá hverjum þátttakanda.
Nýi-Glitnir hefur óskað eftir bind-
andi tilboðum í nýtt hlutafé Árvak-
urs, útgáfufélags Morgunblaðsins,
fyrir 17. febrúar næstkomandi.
haa@mbl.is
Vilja Morgun-
blaðið í eigu
almennings
Vilhjálmur
Bjarnason