Morgunblaðið - 02.02.2009, Page 10

Morgunblaðið - 02.02.2009, Page 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2009 Þessi ríkisstjórn mun hafa að leið-arljósi fyrst og fremst ábyrga efnahagsstjórn,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir þegar nýja rík- isstjórnin var kynnt í gær.     Svigrúm til stórverka er lítið.Bæði er tíminn knappur og fjárhagur ríkissjóðs bágborinn. Það er því verðugt verkefni fyrir ráð- herra vinstri grænna, sem venjulega hafa gagnrýnt hvað harðast allan nið- urskurð, að ætla sér að standa fyr- ir ábyrgri efna- hagsstjórn.     Það fyrsta semþingmenn VG þurftu að kyngja var að fylgja forskrift Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í ríkisfjármálum. Það samstarf tak- markar mjög hvað hægt er að auka útgjöld ríkissjóðs þetta og næsta ár.     Í gær var kynnt samkomulag millistjórnarflokkanna um að leggja fljótlega fram frumvarp um að fólk sem á í miklum greiðsluerfiðleikum geti tekið út hluta séreignarsparn- aðar síns.     Það getur verið varasamt aðhvetja einstaklinga, sem kannski eru á barmi gjaldþrots, til að taka út séreignarsparnað sem annars er ekki hægt að ganga að við gjaldþrot. Gangi dæmið ekki upp tapast þessi sparnaður til elli- áranna.     284milljarðar eru í séreign-arsjóðum landsmanna. Taki þriðjungur út þennan sparnað fengi ríkið 34 milljarða króna í sinn hlut í formi tekjuskatts.     Kannski er þetta leið ríkisstjórn-arinnar til að auka tekjurnar og forðast niðurskurð. Ætli hin ábyrga efnahagsstjórn felist í því? Jóhanna Sigurðardóttir Ábyrg efnahagsstjórn                      ! " #$    %&'  (  )                                    *(!  + ,- .  & / 0    + -                                  !"   12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (           !#   !"          !"           :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?       $    $         $ $                                    *$BC                   !"     #       !"   $ # %     " &#               #     *! $$ B *! % & !'    & "    ( # ) ( <2 <! <2 <! <2 % ' * +  , - *(. C8- D                /    '  $    ( # #) !     *     #     <7         #  %   %$    )   +   ($#         6 2  8   ,#  $  -. /%  "      % # $ #  0#         &# 1  2     %    /0**  (11 *( #  2" ( #( +  Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is ALÞINGISHÚSIÐ hefur átt undir högg að sækja að undanförnu af hendi mótmælenda sem hafa séð sig knúna til að sýna hug sinn í verki. Fjölmargar rúður eru enn brotnar í húsinu eftir atburði síð- ustu vikna. „Það hafa verið brotnar rúður í Alþingishúsinu á öllum hliðum þess. Suma dagana voru rúður brotnar í tugatali. Í mörgum rúðum er glerið sérstaklega styrkt og erf- itt og dýrt að skipta þeim út. Við reynum að vinna þetta hægt og ró- lega í þeirri trú að friðsamari tímar séu í nánd,“ segir Helgi Bernód- usson, skrifstofustjóri Alþingis. Helgi reiknar með að heildar- kostnaður Alþingis vegna skemmd- arverkanna sé um 12 milljónir króna. „Þetta er mikið tjón sem við horfum upp á. Það hefur einnig mikill kostnaður farið í þrif á hús- inu enda hefur nánast þurft að þrífa það dag hvern. Olíumálningu hefur til að mynda verið slett á húsið og hana þarf að þrífa af með háþrýstidælu. Slík þrif fara mjög illa með grágrýtið sem húsið er hlaðið úr.“ Alþingishúsið enn laskað Viðgerðir utan á húsinu taldar kosta um 12 milljónir króna Morgunblaðið/Ómar Rúðubrot Margar rúður brotnar. MÍLA hefur gert samning við Þyrlufélagið hf. um leigu á þyrlu frá fyrirtækinu. Markmiðið er að auka öryggi ljósleiðarakerfisins og nota þyrluna í viðhaldsverkefnum við erfið skilyrði, þannig að hægt sé að bregðast hraðar við bilunum. Í tilkynningu frá Mílu kemur m.a. fram að ljósleiðarinn fari víða um staði sem eru mjög illfærir og seinlegt að ná til. Mikið hagræði sé fólgið í því að komast á þessa staði úr lofti. Fyrsta þyrluflugið var nú á dög- unum að tækjahúsum Neyðarlín- unnar á Bláfelli, sunnan við Hvít- árvatn. Flogið var með þyrlunni á topp fjallsins þar sem aðstæður voru erfiðar, vindasamt og mikill snjór. Tók það fjóra menn eina tvo tíma að komast gegnum snjóinn og klakann inn í tækjahúsið, eftir lend- ingu. Þyrluflug Forsvarsmenn Mílu og Þyrlufélagsins handsala samning um leigu á þyrlu til viðhaldsverkefna á ljósleiðarakerfinu hringinn í kringum landið. Míla tekur þyrlu í sína viðhaldsþjónustu Í HNOTSKURN »Fyrir hönd Mílu gerðusamninginn þeir Jóhann St. Sophusson, Óskar Ingi- mundarson og Ingvar Hjaltal- ín Jóhannesson. Frá Þyrlu- félaginu voru Reynir Þór Guðmundsson og Karl Jóhann Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.