Morgunblaðið - 02.02.2009, Page 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2009
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
VERKFRÆÐI- og ráðgjafarfyr-
irtækið Mannvit hefur líkt og mörg
önnur sambærileg fyrirtæki hér á
landi þurft að draga saman seglin
eftir að skórinn tók að kreppa í efna-
hag þjóðarinnar og minna varð úr
framkvæmdum í orku- og stóriðju-
verkefnum. Fyrirtækið varð að
fækka mannskapnum um 10% og nú
starfa hjá Mannviti um 360 manns.
Vegna stöðunnar hér á landi hefur
sókn í erlend verkefni verið hert og
eru fjölmörg slík í deiglunni. Að sögn
Eyjólfs Árna Rafnssonar, forstjóra
Mannvits, má reikna með að á þessu
ári muni um 40 manns eingöngu
starfa við erlend verkefni auk fjölda
annarra starfsmanna hér á landi sem
koma að þeim verkum með einum
eða öðrum hætti. „Með því að sækja
okkur aukin verkefni erlendis erum
við að reyna að halda í störf okkar
fólks og vonandi getum við fjölgað
fólki aftur á næstu árum,“ segir Eyj-
ólfur Árni.
Áhersla er lögð á verkfræðiráð-
gjöf og hönnun við jarðhita- og
vatnsaflsvirkjanir í Mið-Evrópu,
Bandaríkjunum, Indlandi og Suður-
Ameríku en þeir Mannvitsmenn
telja gríðarlega möguleika fram-
undan í síðasttalda heimshlutanum.
Nú þegar er fyrirtækið komið í verk-
efni í Chile og Argentínu, bæði í
vatnsafli og jarðhita. Þeir fá fyr-
irspurnir nánast daglega víða að úr
heiminum en áherslan verður eftir
sem áður á fyrrnefnd svæði. „Þeir
eru víða, lukkuriddararnir,“ segir
Sigurður St. Arnalds stjórn-
arformaður og kímir.
Byrjaði í Ungverjalandi
Útrásin hófst fyrir alvöru í Ung-
verjalandi, ef svo má segja. Í bráðum
tvö ár hefur verið unnið að jarðhit-
anýtingu þar í landi í samvinnu við
heimamenn og í október sl. var opn-
uð skrifstofa í Búdapest, í eigu dótt-
urfélags Mannvits. Þar eru nú 12
starfsmenn, þar af einn Íslendingur,
og líkur á að þeim fjölgi á næstunni.
Jarðboranir fara senn að hefjast á
tveimur stöðum í suðvesturhluta
Ungverjalands fyrir einkafyrirtækið
PannErgy.
Frá Ungverjalandi liggur leiðin til
Slóvakíu. Þar er Mannvit að ganga
frá samningum við fyrirtæki um
hönnun á jarðhitavirkjun við borgina
Kosice í austurhluta landsins. Fleiri
verkefni gætu verið í burðarliðnum í
Slóvakíu sem Mannvitsmenn vilja
ekki upplýsa um að svo stöddu.
Sigurður segir að hækkun á gas-
verði hafi ýtt undir áhuga ríkjanna í
Mið-Evrópu á að nýta eigin orku-
lindir. Þó að byrjað verði á tveimur
stöðum sé útlit fyrir að boraðar verði
fleiri holur. Stefna heimamenn að
því að hitaveituvæða allt að 30 bæi
en þeir gætu orðið fleiri í framtíð-
inni.
Bendir Sigurður á að Ungverjar
hafi líka lent í efnahagshremmingum
en það hafi ekki valdið töfum á þessu
verkefni. Undir það taka Eyjólfur
Rafn og Runólfur Maack, aðstoð-
arforstjóri Mannvits, sem heldur ut-
an um erlendu starfsemina.
„Græn orkuverkefni í heiminum,
hvort sem það er vegna jarðhita eða
vatnsafls, eru eftirsótt af fjárfestum
og bönkum. Þeir sem eiga peninga
hafa sett þetta framarlega í for-
gangsröðina,“ segir Runólfur.
Annars þarf Mannvit ekki að
hugsa svo mikið um fjármögnun er-
lendra verkefna. Fyrirtækið kemur
fyrst og fremst með verkkunnáttuna
og reynsluna í hönnun mannvirkja
og rannsóknum á sviði jarðvísinda.
Þó að starfsmenn Mannvits þurfi í
einhverjum tilvikum að starfa er-
lendis eru langflest verkefnin unnin
héðan. Eyjólfur Árni segir það vel
vera hægt í um 95% tilvika.
Mannvit hefur unnið að jarð-
hitaverkefnum í suðurhluta Þýska-
lands, í Bæjaralandi, í samstarfi við
Exorku, dótturfélag Geysis Green
Energy, sem upphaflega varð til á
Húsavík við þróun á svonefndri kal-
ina-tækni. Gengur sú tækni út á nýt-
ingu jarðhita til rafmagnsfram-
leiðslu á lághitasvæðum. Mannvit
hefur samið um hönnun og uppsetn-
ingu á fjórum raforkustöðvum með
kalina-tækni.
Þetta er ekki eina starfsemin í
Þýskalandi. Mannvit á þriðjungshlut
í verkfræðistofunni GTN í Neu-
brandenburg, skammt frá Berlín,
sem sérhæfir sig í jarðhitavísindum.
Þar starfa um 25 manns en að sögn
Sigurðar stendur til að auka eign-
arhlutinn. Tilgangurinn er augljós;
að auka möguleika Mannvits á að fá
verkefni í Evrópu og greiðari aðgang
að styrkjakerfi ESB.
Sunnar í Evrópu er Mannvit að
störfum á grísku eyjunni Milos. Fyr-
irtækið bauð lægst í að rannsaka og
undirbúa þar háhitavirkjun. Starf-
semin í Evrópu er ekki upptalin því í
Bretlandi er starfandi lítið fyrirtæki
í Cambrigde á vegum dótturfélags
Mannvits, Vatnaskil LWRC, sem
sérhæfir sig í vatnsforðavísindum og
þjónustar breskar vatnsveitur og
orkufyrirtæki.
Indland og S-Ameríka
Austar á jarðkringlunni er Mann-
vit á tveimur stöðum á Indlandi við
forkönnun á jarðhitavirkjunum, ann-
ars vegar í Tatapani í miðhluta Ind-
lands og hins vegar norðar í landinu,
í héraðinu Puga, þar sem verið er að
hanna 25-35 MW háhitavirkjun í
samstarfi við indverska fyrirtækið
LNJ Bilhwara. Bæði þessi verkefni
urðu til að frumkvæði Glitnis á sín-
um tíma en við hrun bankans í haust
tók Mannvit verkið yfir og réð til sín
starfsmenn sem áður voru á vegum
bankans.
Eyjólfur Árni bendir á að þýska
samstarfsfyrirtækið hafi sterk
tengsl við jarðhitaverkefni í S-
Ameríku og þar sér Mannvit fram á
aukin verkefni á næstu árum, ekki
síst í Chile þar sem gríðarlegar
vatns- og jarðhitaauðlindir eru
óbeislaðar.
Að sögn Runólfs hefur verið metið
að Chile geti á næstu árum unnið um
18.000 MW úr jarðhita. Uppboð á
vinnsluleyfum eru að hefjast en
ótengt þessu samstarfi við Þjóðverj-
ana kemur Mannvit einnig að gerð
25 MW vatnsaflsvirkjunar í Chile.
Við hlið Chile liggur Argentína en
þar var fyrirtækið að ganga frá
samningi um hagkvæmniathugun á
allt að 100MW jarðgufuvirkjun á
Copahue-svæðinu við mið landa-
mærin.
Kárahnjúkar aðgöngumiði
Ekki aðeins Suður-Ameríka
heillar heldur einnig Bandaríkin.
Þar er Mannvit í raforkuverkefni í
Montana en til greina kemur að afla
fleiri verka í miðvesturríkjunum,
þar sem fyrir eru mikil jarð-
hitasvæði. Verkefnin í Bandaríkj-
unum voru einnig unnin í fyrstu hjá
Glitni en fyrrverandi starfsmenn
bankans hafa tekið þau verkefni yf-
ir.
„Við erum með fleiri verkefni í
burðarliðnum sem við getum ekki
sagt frá. Víða erum við í tengslum
við stór alþjóðleg fyrirtæki í tilboðs-
gerð og gjarnan í samvinnu við ís-
lensk fyrirtæki í sama geira,“ segir
Sigurður og nefnir þar einkum
Verkís, ÍSOR og LV Power, dótt-
urfélag Landsvirkjunar. Verkís varð
til í nóvember sl. með samruna VST-
Rafteikningar, Fjarhitunar, Fjöl-
hönnunar og RT-Rafagnatækni.
Sigurður segir að íslensk fyr-
irtæki séu of lítil til að ráðast í stórar
og meðalstórar vatnsaflsvirkjarnir
erlendis, enda hafi samstarf verið
haft uppi við flest verkefni af því tagi
hér á landi, sbr. Kárahnjúkavirkjun.
„Á erlendum samkeppnismarkaði
þurfa íslensku fyrirtækin að taka
höndum saman, í samstarfi við er-
lenda aðila líkt og við höfum gert.
Kárahnjúkavirkjun vakti verulega
athygli þar sem hún er tæknilega
flókin en vel unnin. Hún getur verið
aðgöngumiði inn í verkefni erlendis,
áður en fennir í þau spor,“ segir Sig-
urður.
Gott orðspor
Þeir félagar eru að endingu sam-
mála um að sókn Mannvits og ann-
arra íslenskra verkfræðifyrirtækja
á erlenda markaði væri ekki mögu-
leg ef ekki hefði komið til sú orku- og
iðnaðaruppbygging sem hefði verið
á Íslandi á síðustu 15 árum. Reynsla
af þeim verkefnum og þekking væri
nú orðin að eftirsóttri söluvöru er-
lendis. Orðspor íslenskra fyrirtækja
á þessu sviði er því gott.
Benda þeir á að þegar uppbygg-
ingin var hvað mest hér á landi hafi á
sama tíma lítil þróun átt sér stað
annars staðar í heiminum í nýtingu
jarðhita. Íslensk fyrirtæki njóti nú
góðs af því. „Framsýni íslenskra
stjórnvalda og orkufyrirtækja hefur
svo sannarlega skilað sér,“ segir for-
stjórinn og undir það taka aðstoð-
arforstjórinn og stjórnarformað-
urinn, útrásarvíkingar sem ekki
hafa lagt árar í bát þótt aðrir hafi
siglt annars konar fleyjum í strand.
Mannvit hyggur á aukna útrás
Erlend verkefni á árinu skapa um 40 störf Miklir möguleikar í jarðhitanýtingu í S-Ameríku og
Bandaríkjunum Tóku yfir verkefni Glitnis á Indlandi Jarðboranir að hefjast í Ungverjalandi
Útrás Sigurður St. Arnalds, stjórnarformaður Mannvits, Eyjólfur Árni Rafnsson forstjóri og Runólfur Maack að-
stoðarforstjóri telja mikla möguleika vera á verkefnum erlendis í uppbyggingu jarðgufu- og vatnsaflsvirkjana.
Morgunblaðið/RAX
Í HNOTSKURN
»Mannvit byggir á grunniþriggja verkfræðistofa
sem stofnaður voru á sjöunda
áratug síðustu aldar: Hönn-
unar (1963), Verkfræðistofu
Guðmundar og Kristjáns
(1963) og Rafhönnunar (1969).
»Tvö fyrstnefndu fyr-irtækin sameinuðust í
VGK-Rafhönnun árið 2007.
»Hjá Mannviti starfa um360 manns. Starfsstöðvar
hér á landi eru níu talsins, ut-
an Reykjavíkur. Nýjar höf-
uðstöðvar eru í byggingu.
ÚTSÖLULOK
50-80% afsláttur af öllum útsöluvörum
Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460 • www.belladonna.is
Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15
20% afsláttur af slæðum, treflum, undirfatnaði og sundfatnaði
20% afsláttur af öllu skarti
Tilboðsslár 990-4990 kr.
30-50% afsláttur af völdum skóm og stígvélum
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð-
isins var í fyrrinótt kallað að Gylfa-
flöt í Grafarvogi. Tilkynnt var um
eld í myndbandaleigu sem þar er.
Að auki eru í húsinu hjólbarðaverk-
stæði og trésmíðaverkstæði.
Mikill reykur var á annarri hæð
hússins þegar slökkvilið kom á
staðinn. Að sögn slökkviliðs var
enginn í húsinu. Einhver reykur
komst í nærliggjandi rými. Elds-
upptök eru ókunn.
Eldsvoði í
Grafarvogi
STRAX við upphaf skólagöngu
barna í grunnskóla kemur fram lítill
hópur nemenda, um 5-10% hvers ár-
gangs, sem hefur lítinn áhuga á
náminu. Drengir eru þar í meiri-
hluta.
Þetta er meðal niðurstaðna sem
gerð er grein fyrir í nýútgefnu tíma-
riti um menntarannsóknir þar sem
nálgast má fjölda greina um fjöl-
breytilegar rannsóknir á sviði
menntamála allt frá leikskóla upp í
háskóla.
Má þar nefna grein um ráðgjöf
leikskólakennara til foreldra, sem
virðist vera vaxandi þáttur af starfi
leikskólakennara.
Þetta er 5. árgangur Tímarits um
menntarannsóknir, en það fæst í
bóksölu stúdenta og á bókasöfnum.
Drengir síður áhuga-
samir í grunnskóla