Morgunblaðið - 02.02.2009, Page 13

Morgunblaðið - 02.02.2009, Page 13
                                                                                       !      "#   $   !% &   !   '                   !   "  &   !   !   # $     # $  % &   '     "      &   !   ()  *( +  (    &       )         * +       "#   $   !% "#   $   !%       Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is VIÐMIÐUNARVERKLAG við fullnustu krafna gagnvart fyrir- tækjum í rekstrarerfiðleikum, þeg- ar rekstrargrundvöllur þeirra er talinn vera neikvæður, liggja fyrir hjá Nýja Glitni. Koma reglurnar í framhaldi af verklagsreglum varð- andi það hvaða úrræði koma til skoðunar í tengslum við erfiðleika fyrirtækja, sem kynntar voru um áramótin, og gerð var grein fyrir í Morgunblaðinu í byrjun janúar. Þessar viðmiðunarverklagsreglur Nýja Glitnis miðast við það að fyr- irtæki hafi neikvætt sjóðstreymi, þ.e. tekjur að frádregnum kostnaði dugi ekki til að standa við skuld- bindingar þess. Er þá leitast við að kanna hvort rekstrargrundvöllur viðkomandi fyrirtækis sé fyrir hendi. Lundúnaleið fyrir valinu Samkvæmt hinum nýju verklags- reglum er rekstrargrundvöllur fyr- irtækis metinn neikvæður ef sér- stakar aðgerðir eru ekki taldar líklegar til að ráða bót á rekstr- arvanda fyrirtækis, þannig að van- skil og neikvætt sjóðstreymi líði hjá innan skamms. Þá kemur tvennt til greina; annars vegar formleg fulln- ustuleið og hins vegar óformleg. Með formlegri fullnustuleið er átt við að bankinn leiti fullnustu krafna sinna fyrir atbeina opinberra aðila svo sem með nauðungarsölu eigna og gjaldþrotaskiptum. Með óform- legri fullnustuleið er hins vegar miðað að því að hámarka verðmæti eigna fyrirtækis með því að leita fullnustu krafna með samningum við fyrirtækið sjálft. Þá getur kom- ið til greina svokölluð óformleg fullnustuleið og óformlegir nauða- samningar og/eða svonefnd Lund- únaleið, en hún getur einnig átt við ef rekstrargrundvöllur fyrirtækis er talinn jákvæður. Lundúnaleiðin er alþjóðleg við- mið um úrlausn flókinna lánamála á grundvelli frjálsra samninga kröfu- hafa. Viðmiðin, sem eru ekki laga- lega bindandi, fela í sér leiðir fyrir kröfuhafa að vinna sameiginlega að því markmiði að aðstoða lífvænleg fyrirtæki sem eru í fjárhagsvand- ræðum. Með þeim er þannig stefnt að því að hámarka verðmæti eigna, lágmarka útlánatap, vernda störf og viðhalda framleiðslugetu hag- kerfisins. Samræmdar leiðir til að meta rekstrargrundvöll Nýi Glitnir kynnir verklag við fullnustu krafna Fréttir 13VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2009 Nýi Glitnir og NBI (Nýi Landsbank- inn) hafa kynnt verklagsreglur um aðgerðir vegna greiðsluerfiðleika fyrirtækja. Samkvæmt upplýs- ingum frá Finni Sveinbjörnssyni, bankastjóra Nýja Kaupþings, er gert ráð fyrir að stjórn bankans afgreiði sínar reglur á fundi í dag. Hinn 2. desember sl. kynnti rík- isstjórnin 12 liða áætlun um hvernig bæta skyldi rekstr- arumhverfi fyrirtæka. Var þetta gert vegna hinna sérstöku að- stæðna sem voru og eru í íslensku athafnalífi í kjölfar hruns bank- anna í byrjun október. Markmiðið er að reyna að stuðla að því að fyrirtækin geti haldið áfram starf- semi og tryggt starfsfólki áfram- haldandi vinnu. Var bankaráðum hinna nýju banka jafnframt gert að setja sér skýrar viðmið- unarreglur um fyrirgreiðslu við fyrirtækin í landinu. Tveir komnir og einn á leiðinni FRÉTTASKÝRING Eftir Björgvin Guðmundsson og Þórð Snæ Júlíusson FJÖGUR félög sem skráð eru á Tortola-eyju voru stórir eigendur í Landsbanka Íslands. Þau heita Proteus Global Hold- ing S.A., Kargile Portfolio Inc, Peko Investment Company Ltd. og Marcus Capital Ltd og deila öll sama heimilisfangi á eyjunni sam- kvæmt skráningarvottorði fyr- irtækjaskráar. Greiða ekki skatta Á vottorðum félaganna kemur fram að umsjónaraðilar þeirra allra hérlendis eru annað hvort Lands- bankinn sjálfur eða Kristján Gunn- ar Valdimarsson, fyrrum forstöðu- maður skattasviðs bankans. Kristján Gunnar var einnig skráður íslenskur umboðsaðili tveggja félaga frá Panama, Zimham Corp. og Empennage Inc, sem áttu stóra hluti í Landsbankanum. Öll þessi félög keyptu hlutabréf í bank- anum og geymdu fyrir hann þangað til starfsmenn hans nýttu sér kaup- rétti sem þeir áunnu sér samkvæmt samningum. Þau voru öll á lista yfir 20 stærstu hluthafa í Landsbank- anum á tímabili. Eini kostnaðurinn sem fylgir skráningu félags á Tortola er fyrir árlega endurnýjun sem kostar 300 dali, eða rúmar 34 þúsund krónur. Elsta félagið, Proteus Global Holding S.A., fékk leyfi til að stunda bankaviðskipti á Íslandi í febrúar 2004 og keypti þá 200 millj- ónir hluta í Landsbankanum, sem á þeim tíma nam 2,67 prósent af hlutafé bankans. Félagið varð þar með fimmti stærsti eigandi bank- ans. Það jók síðan tvívegis við eign- arhlut sinn í Landsbankanum og átti um 224 milljónir hluta í honum þegar hann féll í byrjun október síð- astliðins. Þegar gengi Landsbankans stóð sem hæst í október 2007 var mark- aðsvirði eignarhlutar Proteusar í bankanum rétt tæpir tíu milljarðar króna. Tvö félög skráð sama daginn Kargile Portfolio Inc. fékk út- gefna kennitölu og leyfi til að stunda bankaviðskipti á Íslandi í desember 2004 og keypti í þeim mánuði um 39 milljón hluti í Lands- bankanum. Félagið bætti við sig 3,5 millj- ónum hluta í apríl 2005 en seldi síð- an alla hluti sína í lok júní. Á sama tíma keypti Landsbankinn stóran hlut í sjálfum sér. Umboðsaðili Kar- gile er skráður Kristján Gunnar Valdimarsson. Í mars 2005 fengu tvö félög, Marcus Capital og Peko Investment Company Ltd, frá Tortola-eyju leyfi til að stunda bankaviðskipti á Ís- landi. Umsjónaraðili beggja félag- anna er Landsbanki Íslands og þau eignuðust bæði hlut í honum sama daginn í lok apríl 2005. Marcus Capital átti enn 0,83 pró- sent hlut í bankanum þegar hann féll en Peko seldi allt hlutafé sitt í byrjun mars 2007 í tengslum við nýtingu kauprétta starfsmanna Landsbankans. Fjögur félög á Tortola  Fjögur félög skráð á Tortola-eyju voru um tíma á meðal stærstu eigenda Landsbankans  Lands- bankinn og forstöðumaður hjá honum umsjónaraðilar félaganna  Hluti af kaupréttarkerfi bankans Höfuðborgin Félögin fjögur sem geymdu bréf́ í Landsbankanum eru öll skráð til heimilis í Road Town, höfuðborg Tortola-eyju. Í HNOTSKURN »Tortola-eyja er ein hinnaBresku jómfrúareyja. Eignarhaldsfélög sem eru skráð þar þurfa ekki að greiða neinn skatt af eignum sínum. »Eini kostnaðurinn semfylgir skráningu félags á eyjunni er fyrir árlega end- urnýjun, sem kostar 300 dali, eða rúmar 34 þúsund krónur. »Einungis er hægt að nálg-ast upplýsingar um 20 stærstu eigendur skráðra fé- laga á Íslandi. Verðbréfa- skráning Íslands gefur ekki upplýsingar um smærri hlut- hafa. Keflavík- urflugvöllur ohf. hefur sagt upp 25 starfsmönnum með boði um endurráðningu í hálft starf. Ráð- gerðum viðhalds- verkefnum hefur verið frestað og er stefnt að meira en 10% lækkun launakostnaðar. Því á að ná með minni yfirvinnu, lækkun starfshlut- falls, tilfærslu og uppsögn átta starfsmanna. Minni umsvif á flugvellinum NÝHERJI uppfyllir ekki ákvæði lánasamninga við lánastofnanir þar sem kveðið er á um að fari eig- infjár- og rekstrarhagnaðarhlutfall niður fyrir tiltekin viðmið sé lána- stofnunum heimilt að gjaldfella lán- in. Samkvæmt ársskýrslu Nýherja eru stjórnendur félagsins í við- ræðum við lánastofnanir en þeim viðræðum er ekki lokið. „Verði lánin gjaldfelld og ekki semst um endurfjármögnun þeirra ríkir óvissa um áframhaldandi rekstrarhæfi félagsins,“ segir í árs- reikningnum. Uppfyllir ekki lánaskilyrðin TÆPURþriðj- ungur aðild- arfélaga Við- skiptaráðs Íslands telur bankaþjónustu hafa versnað frá því að bankarnir voru rík- isvæddir. Þetta er ein af nið- urstöðum við- horfskönnunar sem Viðskiptaráð hefur nýlokið við og sagt er frá í fréttabréfi samtakanna. Heildar- niðurstöður könnunarinnar verða kynntar á næstu dögum og vikum. Telja banka- þjónustu verri Finnur Oddsson frkvstj. VÍ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.