Morgunblaðið - 02.02.2009, Síða 15

Morgunblaðið - 02.02.2009, Síða 15
Daglegt líf 15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2009 Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is E ina tóbaksverksmiðja landsins lætur lítið yfir sér. Hún er í tveimur herbergjum í lágreistri byggingu á lóð Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins við Stuðlaháls í Reykjavík. Þar er framleitt neftóbak sam- kvæmt áratuga gamalli uppskrift. Eggert Ó. Bogason, vöru- hússtjóri ÁTVR, sýndi okkur lag- erinn þar sem númeraðar tunnur standa hátt í hillum og bíða þess að tóbakið verkist. Elstu tunn- urnar hafa verið notaðar frá því neftóbaksgerðin hófst eftir stríð. Þangað til var það innflutt. Sala neftóbaks hefur tvöfaldast á ára- tug og á tímabili vantaði fleiri tunnur. Þess vegna var tóbakið ekki geymt eins lengi og venjulega um tíma. Það fór ekki vel í nasir neftóbaksmanna og kvörtuðu sum- ir yfir því að neftóbakið væri orðið eitthvað öðruvísi en það var. Þá voru keyptar vandaðar víntunnur úr eik frá Kanada til viðbótar og nú er nóg til af tunnum. Útbúa verður tunnurnar sérstaklega til þessarar notkunar og sér Ásgrím- ur Stefánsson, framleiðslustjóri neftóbaks, um breytingarnar. Sett er þétting með lokinu og hespur til að spenna það aftur. Sömu lögmál og með súrhey Uppskrift og verkunaraðferð neftóbaksins hefur haldist nær óbreytt frá því framleiðsla þess hófst hér á landi. Hráefnið kemur nú malað í 200 kg kössum frá tób- aksfyrirtæki í Svíþjóð en var mal- að hér á árum áður. Sýni af tób- akinu fara reglulega til Iðntæknistofnunar til að fylgjast með því að kornastærðin sé rétt. Eggert segir að á árum áður hafi laufin verið reykþurrkuð en nú séu þau vindþurrkuð. Ásgrímur hefur unnið við nef- tóbaksgerðina í tíu ár. Hann tók við af manni sem var í þessu ára- tugum saman og kenndi Ásgrími leyndarmálið við framleiðsluna. Eggert segir að sama gildi um þá báða. Þeim hafi aldrei orðið mis- dægurt og þeir fái aldrei kvef! Hvorugur þeirra hefur þó notað neftóbak. Hrátóbakið er blandað með vatni, pottösku og salti í ákveðnum hlutföllum í gamalli hrærivél. Eftir að blandan hefur velkst þar drjúga stund fer hún í eikartunnu. Lokað er vel yfir með plasti og síðan er eikarlokið spennt á. Tunnan fer svo á lag- erinn þar sem hún er geymd í 7-8 mánuði. Ásgrímur, sem var bóndi í Miklaholtshreppi, sagði að í nef- tóbakinu giltu sömu lögmál og við verkun góðs súrheys. „Það verður að hafa góða loftþéttingu,“ sagði Ásgrímur og opnaði tunnu úr val- inni eik með fullgerjuðu tóbaki. Eftir gerjunina er innihaldið í tunnunni orðið að þéttum köggli. Ásgrímur mokar því upp með mal- arskóflu í vél sem sigtar innihaldið og losar um kornin. Því næst er það sett á dósir eða horn. Áfyll- ingin er gerð í höndunum og van- ur starfsmaður fyllir á um þúsund 50 gramma dósir á dag. Ásgrímur brá dós í duftið og svo á vigtina. Þyngdin var upp á gramm. Í herberginu inn af sat Vera Al- meida við vél sem var sérstaklega smíðuð hér á landi til að fylla á tóbakshornin. Hún hristir í hvert horn á nákvæmlega 22 sekúndum. Dósirnar og hornin eru steypt úr plasti í Mosfellsbæ og starfsmenn Vinnustofunnar Áss líma merki- miða og viðvörunarmerkingar á umbúðirnar. Framleiðslan er því mikið til innlend. Óbreytt innihald Á dögunum birti Morgunblaðið fréttir um mjög aukna sölu neftób- aks. Í framhaldi af því barst fyr- irspurn til blaðsins um efnainni- hald neftóbaks, en það er ekki tilgreint á umbúðunum. Þegar spurst var fyrir um innihaldið hjá framleiðandanum kom einfaldlega fram að það væri óbreytt! Engum hafði dottið í hug að spyrja um það áður og í raun lá ekki fyrir greining á nikótínmagni í neftób- akinu. Blaðamanni var hins vegar boðið að koma í heimsókn og skoða þessa þjóðlegu framleiðslu. Í reglugerð um viðvörunarmerk- ingar á tóbaki og mælingar og há- mark skaðlegra tóbaksefna er kveðið á um viðvörunarmerkingar. Upplýsinga um nikótínmagn er einungis krafist á sígarettupakkn- ingum. Ekki gilda sömu reglur um reyktóbak og reyklaust, en þó skal hvort tveggja bera viðvör- unarmerkingu. Á neftóbakinu stendur: „Það getur valdið slímhúð- arbólgum að taka í nefið eða vör- ina.“ Undir það skrifar landlæknir. Þjóðleg framleiðsla og óbreytt Morgunblaðið/RAX Tilbúið Hrátóbak er blandað með vatni, pottösku og salti í ákveðnum hlutföllum. Eftir sjö mánaða verkun í loftþétt- um tunnum er neftóbakið orðið harður köggull. Ásgrímur mokar því í sigtivél sem losar um tóbakið fyrir pökkun. Hornin hrist Vera Almeida við vélina sem var smíðuð til að hrista í tóbakshornin. Vélin hristir í hvert horn á 22 sekúndum. Ásgrímur Stefánsson og Eggert Ó. Bogason fylgjast með. Handavinna Fyllt er á neftóbaksdósirnar í höndunum og vanur maður fyllir um þúsund dósir á dag. Verksmiðjan er í tveimur herbergjum í lágreistri byggingu á lóð ÁTVR við Stuðlaháls. Íslenska neftóbakið er framleitt eftir áratugagamalli uppskrift og aðferðum í einu tóbaksverksmiðju landsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.