Morgunblaðið - 02.02.2009, Side 19

Morgunblaðið - 02.02.2009, Side 19
Minningar 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2009 ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ANDRÉS GUÐJÓNSSON fyrrv. skólameistari Vélskóla Íslands, Mánatúni 2, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 22. janúar, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju þriðjudaginn 3. febrúar kl. 15.00. Ellen M. Guðjónsson, Jens Andrésson, Kristín Þorsteinsdóttir, Grímur Andrésson, María Friðriksdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.  Elskuleg dóttir, móðir, tengdamóðir, amma og systir okkar, FRÍÐA HRÖNN SIGTRYGGSDÓTTIR, Asparfelli 4, sem lést þriðjudaginn 27. janúar, verður jarðsungin frá Kálfatjarnarkirkju miðvikudaginn 4. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim vilja minnast hennar er bent á Félag langveikra barna. Guðbjörg Sigurpálsdóttir, Edda Rut Hlín Waage, Andrés Róbertsson, Garðar Guðlaugur Garðarsson, Guðleif Hallgrímsdóttir, Sigurlinni Gísli Garðarsson, Guðný Karen Ólafsdóttir, Þórunn Helga Garðarsdóttir, barnabörn og systkini. ✝ Guðrún SigríðurBjörnsdóttir fæddist á Auðkúlu í Svínavatnshreppi í Austur-Húnavatns- sýslu 30. júlí 1930. Hún lést á heimili sínu laugardaginn 24. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Björn Stefánsson, prestur á Bergsstöðum í Svart- árdal og síðar pró- fastur á Auðkúlu í Svínadal, f. 13. mars 1881, d. 9. nóv- ember 1958, og Valgerður Jó- hannsdóttir, f. 26. apríl 1902, d. 29. apríl 1980. Systir Guðrúnar er Ólöf Birna, f. 2. apríl 1934, gift Jóni Ólafssyni, hrl., f. 19. september 1932. Hálf- systkini Guðrúnar samfeðra eru: Ólafur, f. 2. febrúar 1912, d. 22. febrúar 1999, Ingibjörg, f. 20. sept- ember 1914, d. 1977, Þorbjörg, f. 18. nóvember 1915, d. 11. desember 2007, og Ásthildur Kristín, f. 4. júní Gíslasyni, húsasmið, f. 11. febrúar 1956. Börn þeirra: Guðrún Birna, f. 10. september 1981, gift Pétri Ragnarssyni, f. 15. maí 1978, og eiga þau einn son, Daníel Helga, f. 14. október 2008. Katrín Þor- björg, f. 5. júní 1982, gift Ólafi Gunnari Long, f. 19. júní 1982. 3) Sigrún Dóra, kennari og hönn- uður, f. 22. júlí 1966, gift Jóhanni Gunnari Stefánssyni, fram- kvæmdastjóra, f. 21. apríl 1964. Börn þeirra: Stefán Gunnar, f. 21. desember 1990, Birna Sísí, f. 4. maí 1998, og Inga Rannveig, f. 20. desember 2000. Jóhann Gunnar á úr fyrra sambandi Davíð, f. 17. desember 1983, í sambúð með Þóru Kristínu Hauksdóttur, f. 24. júlí 1985. Guðrún nam heimspeki við Há- skóla Íslands 1951-1952 og lauk þaðan cand. phil. 6. júní 1952. Hún vann hjá Innkaupastofnun ríkisins á árunum 1952-1954. Guðrún bjó ásamt manni sínum í Bandaríkj- unum árin 1955-1958 í New York og Iowa og aftur 1969-1970 í Maryland en þess á milli og eftir það bjó hún í Reykjavík, lengst af í Grundarlandi 4 í Fossvogsdal en síðar á Þorragötu 5. Útför Guðrúnar fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 2. febrúar og hefst athöfnin klukkan 15.00. 1917, d. 18. júlí 1998. Guðrún giftist 11. júní 1955 Jóni Reyni Magnússyni, verk- fræðingi og fyrrver- andi framkvæmda- stjóra Síldarverksmiðja rík- isins, f. 19. júní 1931. Foreldrar hans voru Magnús Jónsson, f. 18. febrúar 1893, d. 8. apríl 1971, og Hall- dóra Ásmundsdóttir, f. 8. apríl 1896, d. 26. apríl 1993. Börn Guðrúnar og Jóns eru: 1) Magnús Reynir, ljósmyndari, f. 22. október 1956, í sambúð með Bjarnveigu Sigríði Guðjónsdóttur, kerfisfræðingi, f. 25. nóvember 1966. Börn þeirra: Vala Rún, f. 27. nóvember 1996, og Davíð Steinn, f. 10. október 2005. Magnús átti úr fyrra sambandi með Maríu Jóns- dóttur, f. 9. ágúst 1966, Jón Reyni, f. 2. maí 1990. 2) Birna Gerður, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, f. 16. október 1958, gift Guðlaugi Stór hluti daglegs lífs okkar systra var að „kíkja til mömmu“ og tómlegt að hugsa til þess að nú sé þeim kafla lokið. Í eldhúsinu var spjallað, hlegið og slúðrað og þar var ristaða brauðið og kaffið best. Mamma lá ekki á skoð- unum sínum, orðbragðið ekki alltaf pent, gat hneykslað suma, stundum dómhörð en húmorinn aldrei langt undan, örlát og mátti ekkert aumt sjá. Hún var vanaföst og ekki vel við nýj- ungar. Tæki sem pabbi kom með á heimilið var hún lengi að taka í sátt. Hún var sparsöm og nýtin, sérfræð- ingur að ná blettum úr fötum og gera við. Saumavélin var alltaf uppi og saumaði hún á okkur systurnar, barnabörnin og dúkkurnar. Það sem brotnaði var vel límt saman. Mamma var heimakær, alltaf að og hver hlutur átti sinn stað, allt vel flokkað í poka, skúffur og skápa. Henni var það mikilvægt að líta vel út og á yngri árum horfðum við með að- dáun þegar hún puntaði sig. Hún stundaði jóga í mörg ár enda einstak- lega létt á fæti og liðug. Þannig var hún fram á síðasta dag og hefur það eflaust átt þátt í að sjúkdómurinn lagði hana ekki í rúmið. Hún fylgdi pabba í vinnuferðir um allan heim, var góð málamanneskja og naut þessara ferða. Þá var hún lengi að pakka í töskurnar og allt vel raðað og skipulagt; kremin, spari- kjóllinn, ferðastraujárnið og krullu- járnið. Síðustu ár fóru þau pabbi ár- lega til Flórída og þá var keypt eitthvað nytsamlegt eins og föt á börn og barnabörn; hún þekkti stærðirnar á öllum. Í síðustu ferðinni fyrir tæpu ári keypti hún tösku fulla af fötum á langömmubarnið. Fyrstu barnabörnin hennar, Guð- rún og Katrín, komu 1982 frá erlendu landi og hún elskaði þær frá fyrsta degi. Hún var ómetanlegur stuðning- ur við að passa og hjálpa til. Eiga þær góðar minningar úr Fossvoginum; næturgisting í rúmfataskúffunni, snuddan í ísskápnum, rófubitar og rúsínur í stað sælgætis, leikur í garð- inum á meðan amma hreinsaði arfa og lúr hjá afa. Stebbi var í sérstöku uppáhaldi og þreyttist hún ekki á að tala um hvað hann væri duglegur að hugsa um systur sínar. Veikindi Birnu Sísíar voru henni áhyggjuefni, spurði oft hvernig gengi. Þá varð henni tíðrætt um hárið hennar Ingu Rannveigar: Það er svona strawberry blonde eins og mitt var! Umhyggja fyrir okkur var henni ofarlega í huga, alltaf, fram á síðustu stund. Hvað er að frétta af þeim systrum? Hvernig gengur með litla Daníel? Hvernig hefur hann Stebbi minn það? Hún hafði daglega sam- band og voru það ein fyrstu merkin um versnandi sjúkdóm þegar hún hætti að hringja. Sjúkdómur markaði líf hennar mömmu í yfir tuttugu ár þótt hún fengi inn á milli góð tímabil. Undan- farnar vikur hefur verið sárt að horfa á hana verða sífellt veikari en aðspurð um líðan sína sagði hún: Það er ekk- ert að mér, er eitthvað að ykkur?! Hún neitaði allri aðstoð en pabbi var óþreytandi að styðja hana í einu og öllu. Kallið kom snöggt fyrir okkur sem eftir stöndum. Við hefðum svo gjarnan viljað geta hlúð betur að henni eins og hún gerði við okkur alla tíð. Hafi hún þökk fyrir allt sem hún var okkur. Guð blessi minninguna hennar mömmu. Birna Gerður og Sigrún Dóra (Bidda og Diddú). Já, vegir Guðs eru órannsakanlegir og á stundum er erfitt að skilja af hverju hlutirnir þurfa að vera svo sársaukafullir. En samt er ég viss um að Hann veit hvað okkur er fyrir bestu. Ég kynntist tengdamömmu minni árið 1978 þegar við Birna, dóttir þeirra, fórum að vera saman, og strax fann ég mig velkominn hjá fjölskyld- unni í Grundarlandi í Fossvogi. Þar áttu tengdaforeldrar mínir fallegt heimili með stórum garði, sem bæði höfðu yndi af að rækta. Oft var glatt á hjalla og tengdamamma tók manni opnum örmum, brosmild og hlý. Guðrún var falleg kona sem lét lítið fara fyrir sér, en ávallt var stutt í stríðnina og húmorinn. Alltaf var hún tilbúin til að aðstoða, hvort sem það var að sauma bót á uppáhaldsgalla- buxurnar eða kaupa nýjar í einhverri Ameríkuferðinni. Ég er henni sér- staklega þakklát fyrir þann hlýhug og stuðning sem hún sýndi mér í alvar- legum veikindum fyrir nær þrjátíu árum. Þá stóð hún vaktina ásamt fleirum og sat hjá mér þegar á þurfti að halda. Mér er minnisstætt eitt sinn þegar ég kom til þeirra og hringdi bjöllunni án þess að nokkur svaraði. Samt sá ég bíl tengdamömmu fyrir utan og tók því í hurðina. Það var ólæst og ég gekk inn og kallaði, en fékk engin við- brögð. Ég furðaði mig á þessu, en heyrði svo smákall frá ganginum að svefnherbergisálmunni. Jú, þar stóð tengdamamma á haus í jóga-stellingu upp við vegg og bað mig að bíða fáein- ar mínútur meðan hún kláraði „pró- grammið“ sitt. Hún var ótrúlega liðug og höfum við oft hlegið saman að þessari minningu. Það ríkti mikil gestrisni hjá hjón- unum og ævinlega var hugsað vel um mann þegar maður kom í heimsókn. Eftir að við Birna eignuðumst eigið heimili og Guðrún og Katrín, dætur okkar, komu til sögunnar var tengda- mamma meira en fús til að liðsinna. Og stelpunum fannst alltaf jafn gam- an að koma til ömmu og afa í Grund- arlandinu. Þær héldu mikið upp á ömmu sína og hún átti auðvelt með að kalla fram hlátur hjá þeim. Síðast áttu Guðrún og Jón heimili að Þorragötu 5, og þar hitti ég mína kæru tengdamömmu í síðasta sinn tveimur dögum áður en hún lést. Guð- rún var búin að berjast við krabba- mein í mörg ár, en allan þann tíma kvartaði hún aldrei. Hún var þvílík hetja, og ævinlega gat hún brosað og séð kátlegu hliðina á hlutum. Ég er Guði þakklátur fyrir Guðrúnu, tengdamömmu mína, og þakklátur fyrir allt sem hún var mér og minni fjölskyldu. „Guð er oss hæli og styrk- ur, örugg hjálp í nauðum. (Sálm. 46,2.) Ég bið góðan Guð að blessa og styrkja Jón, tengdaföður minn, og fjölskylduna alla. Guðlaugur Gíslason. Guðrún Sigríður Björnsdóttir  Fleiri minningargreinar um Guð- rúnu Sigríði Björnsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Sigurður JónJónsson fæddist í Álasundi í Noregi 9. febrúar 1916. Hann andaðist á Landspít- alanum í Fossvogi 21. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Jón Bergþór Jónsson, f. 23.2. 1889, d. 22.8. 1981 og Elise Sevrine Jónsson fædd Eriksen, f. 12.7. 1884, d. 20.5. 1969. Jón faðir Sigurðar ferðaðist til Noregs þar sem hann kynntist Elise, sem þá var ekkja með eina dóttur, Laur- entze Johanne Helgason, f. 1908, d. eignuðust tvö börn John Birger og Sissel. 4) Jón Jónsson, f. 1924, maki Hjördís Guðmundsdóttir, f. 1927, þau eiga þrjú börn, Valdimar, Sverri Helga og Hildi. Sigurður gekk í barnaskóla í Álasundi í Noregi. Árið 1929 flutti fjölskyldan til Íslands, þegar Sig- urður var 13 ára gamall. Hér á Ís- landi gekk hann í Iðnskólann í Reykjavík og lagði stund á klæð- skeranám. Frá 15 ára aldri starfaði hann hjá Álafossi. Fyrst sem send- ill, síðar sem nemi í klæðskurði, eftir það sem klæðskeri. Starfaði hann þar allan sinn starfsaldur í ein 60 ár. Að stríði loknu flutti Sig- urður að Leifsgötu 28 í Reykjavík þar sem hann bjó með foreldrum sínum á meðan þau lifðu. Fyrir tveimur árum flutti hann síðan í Bláhamra 2 í Grafarvogi og bjó þar til dauðadags. Útför Sigurðar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. 1993, maki Jóhann Helgason, f. 1911, d. 1985. Sigurður átti fjögur alsystkini, þau eru: 1) Kristbjörg M. O. Jónsdóttir, f. 1918, maki Sigurður Páll Jörundsson, f. 1918, d. 1992, sonur þeirra Gunnar Bergþór. 2) Paula A. Jónsdóttir, f. 1920, maki Páll Guðnason, f. 1920, d. 2000, þau eignuðust fjögur börn, Guðna Bergþór, Þór Elís, Lísu og Rannveigu. 3) Elise K. Lar- sen, f. 1922 búsett í Noregi, maki Sverre Larsen, f. 1915, d. 1964, þau Sigurður Jón Jónsson var á margan hátt sérstakur einstakling- ur, og einstaklingur var hann svo sannarlega. Hann hleypti í rauninni aldrei heimdraganum. Alla sína ævi bjó hann í foreldrahúsum og virtist sáttur við þau kjör. Hann var sann- ur piparsveinn en starfsvettvangur hans var skraddaraiðn. Hann eyddi nánast öllum sínum starfsferli sem aðalklæðskeri hjá Álafossi þar sem hann bæði hannaði og sneið ein- kennisbúninga á ýmsar starfsstétt- ir. Siggi frændi var hógvær maður og lítillátur, hann var rólyndið upp- málað og ekki gerði hann kröfurnar þótt sérvitur væri. Ég minnist hans sem hins mesta ljúfmennis sem gott var að vera samvistum með. Siggi var mikill hagleiksmaður enda voru bæði afi og amma mikið hannyrða- fólk. Amma heklaði og bróderaði og afi smíðaði leikföng, einkum á sín- um efri árum. Frændi minn, hann Siggi, gekk þó enn lengra því hann fór að stunda kvikmyndagerð og var kannski einn af þeim fyrstu sem lögðu fyrir sig „animation“ eða teiknimyndagerð eins og hermt er á íslenska tungu. Hann teiknaði ekki myndir eins og orðið gæti gefið til kynna heldur færði hann ýmis þekkt ævintýri í leirfígúrur. Hann tók fyrir ýmsar ævintýrasögur og bjó til leikmynd úr pappír og gerði persónur og leikendur úr leir. Síðan hófst hann handa af sinni einskærri þolinmæði að mynda þessa hag- leikssmíði á 8mm filmu. Því næst klippti hann þetta allt til og afrakst- urinn sýndi hann okkur börnunum í fjölskyldunni á sunnudögum þegar allir komu í sunnudagskaffi til ömmu og afa á Leifsgötuna. Það var ávallt mikil tilhlökkun hjá okkur krökkunum að fá að sjá nýjustu framleiðsluna, svo skemmtilegt var þetta. Ég var svo heillaður af þessu öllu saman að ég fór sjálfur að búa til slík hús, leirkarla og önnur dýr sem komu fram í sögunum. Kannski var þetta kveikjan að því að ég varð síðar kvikmyndagerðarmaður sjálf- ur. Eitt sinn var ég svo lánsamur að kynnast honum frænda mínum nokkuð nánar þegar við fórum sam- an í heimsókn til Noregs. Í Noregi voru Siggi og systkini hans fædd og bjó Siggi stóran hluta af sinni barn- æsku í Álasundi. Noregsferðin með Sigga frænda er mér ávallt mjög eftirminnileg þar sem Siggi frændi sagði mér margar sögur af æskuár- um sínum og fjölskyldunnar. Það var greinilegt af þessum sögum að hann hafði tekið sér margt fyrir hendur og fannst mér það t.d. mjög tilkomumikið að eitt sinn smíðaði hann sér, sem unglingur, kajak. Líklega var hann einn af fáum sem á þeim tíma stunduðu kajaksiglingar. Útivistarmaður var hann mikill sem sennilega má rekja til norska blóðsins sem rann í æðum hans. Eftir þessa samferð okkar til Nor- egs urðu tengslin á milli okkar lengi vel enn sterkari og settist ég oft inn til hans á Leifsgötunni þar sem ég fékk að sjá hvað hann var að sýsla og heyra skemmtilegar sögur. Mig langar að þakka þessum hógværa manni fyrir góða samveru hér á jarðríki og megi hann hvíla jafn friðsæll og hann var í lifanda lífi. Guð fylgi þér, Siggi frændi, eins og ég held að hann hafi ávallt gert. Þór Elís Pálsson. Sigurður Jón Jónsson  Fleiri minningargreinar um Sig- urður Jón Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.