Morgunblaðið - 02.02.2009, Page 22
22 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2009
Sudoku
Frumstig
7 5 1 9
3 4 9 5 8 2
2 8 5 1
2 1 4 8
7 3
4 2 7 9
9 8 5 4
5 4 1 9 8 3
6 1 2 5
6 9 8 7 5
1 3 6
2 6 1
1 2 5
5 3 6 4
4 7 8
5 4 3
9 7 5
5 9 2 8 1
1 4 2 8 3
7
6 3 7 1
6 9 3 4
8 3 7 6 2 9
2 9 1 6
1 5 4 2
3
8 2 7 6 3
6 4 5 2 3 1 9 8 7
9 1 2 4 8 7 6 5 3
8 7 3 5 9 6 1 4 2
3 9 1 6 2 5 8 7 4
5 6 4 8 7 3 2 9 1
2 8 7 9 1 4 3 6 5
7 2 8 1 5 9 4 3 6
4 3 9 7 6 2 5 1 8
1 5 6 3 4 8 7 2 9
6 2 5 7 9 1 4 3 8
8 7 3 5 4 2 6 1 9
1 9 4 3 6 8 7 2 5
4 5 6 9 1 7 2 8 3
7 1 8 2 5 3 9 6 4
9 3 2 6 8 4 5 7 1
3 6 1 4 7 5 8 9 2
5 8 7 1 2 9 3 4 6
2 4 9 8 3 6 1 5 7
7 9 8 5 2 1 3 6 4
5 3 4 6 9 8 1 7 2
2 6 1 7 4 3 5 8 9
4 8 2 1 5 7 6 9 3
3 7 9 2 6 4 8 1 5
6 1 5 8 3 9 4 2 7
8 2 7 4 1 5 9 3 6
9 5 6 3 8 2 7 4 1
1 4 3 9 7 6 2 5 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
Í dag er mánudagur 2. febrúar, 33. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: Drottinn er hlutskipti
mitt og minn afmældi bikar; þú held-
ur uppi hlut mínum. (Sálm. 16, 5.)
Þótt hver stjarnan á festingu við-skiptanna falli á fætur annarri
og sprengistjörnur stórsamninganna
hverfi ofan í svarthol froðugróðans er
stjörnudýrkun landans óbuguð.
Því það vill nefnilega svo til að
þjóðin á sér stjörnumótmælanda í
fjölmiðlamanni, sem vikið var úr
starfi á dögunum, að því er Víkverji
komst að þegar hann las forsíðu
menningarrits nokkurs í biðröðinni
við kassann í verslun einni.
Rifjuðust þá upp orð ungrar at-
hafnakonu þess efnis að það vantaði
fleiri stjörnur á Íslandi. Með stjörnu-
mótmælendum og stjörnubökurum
hefur sú hugsjón stúlkunnar líklega
ræst.
x x x
Víkverji var eitt sinn staddur íkaffiboði með einkaframtaks-
sinnuðu fólki sem fór yfir víðan völl í
samtalinu. Víkverja leið eins og
heima hjá sér og hló þegar gert var
grín að Norðmönnum. Þetta er jú að-
eins fimm milljóna þjóð en samt eru
700.000 manns á framfæri ríkisins,
einstaklingar sem nenna ekki að
vinna. Sósíalisminn liggur því einkar
vel við höggi.
Fordómarnir voru staðfestir þegar
félagi Víkverja sem er búsettur í Nor-
egi sagði sögu af stúlku sem hann
vann eitt sinn með á bar. Sú gerði sér
lítið fyrir og tók mánuð í launuðu leyfi
þegar kærastinn vildi slíta samband-
inu. Annað öfgafyllra dæmi kom frá
lækni sem nefndi til sögunnar einn
kollega sinn sem tók ársleyfi vegna
eymsla í fingri.
x x x
Þrátt fyrir áhrifamátt reynslu-sagna af þessu tagi mega þær
sín lítils þegar viðmiðum er snúið við.
Nú hefur Víkverji nefnilega fyllst
skyndilegri aðdáun á Norðmönnum.
Sögur af letingjum á bísanum hafa
vikið fyrir frásögnum af fyrirhyggju-
sömum ungum Norðmönnum sem á
sínum tíma lögðu námslánin til hliðar
til að eiga fyrir útborgun í fyrsta hús-
næðinu. Heimasmurðar samlokur og
grautur voru kostur þess sem hugaði
að hverjum aur. Víkverja grunar að
sparnaður sé aftur orðinn að dyggð á
Íslandi eftir að hafa þótt fjarska púkó
um hríð. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 bauka, 4
ólundin, 7 næða, 8
byggð, 9 víð, 11 titra, 13
verma, 14 lagvopn, 15
klína, 17 grófur, 20 ílát,
22 eldiviðurinn, 23 tób-
aki, 24 ferma, 25 flot.
Lóðrétt | 1 hjálpar, 2
tanginn, 3 mjög, 4 lögun,
5 meðvindur, 6 gista, 10
úthlaup, 12 keyra, 13
vöflur, 15 stór, 16 höf-
uðs, 18 skin, 19 heift, 20
ilma, 21 skrokkur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kollóttur, 8 kofar, 9 illur, 10 kát, 11 trana, 13
innan, 15 hjóms, 18 strák, 21 tin, 22 grófu, 23 örðug, 24
fagurgali.
Lóðrétt: 2 offra, 3 lurka, 4 teiti, 5 ullin, 6 skot, 7 grín, 12
nam, 14 not, 15 hagl, 16 ósóma, 17 stunu, 18 snögg, 19
riðil, 20 kugg.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rb3 Be6 8. Dd2
Be7 9. f3 0-0 10. 0-0-0 Rbd7 11. g4 Dc7
12. g5 Rh5 13. Rd5 Bxd5 14. exd5 a5
15. Kb1 a4 16. Rc1 Rb6 17. Hg1 f5 18.
g6 Bf6 19. gxh7+ Kh8 20. a3 Rc4 21.
Bxc4 Dxc4 22. Bg5 Kxh7 23. Bxf6 Hxf6
24. Dg5 g6 25. Hd3 Df4 26. Dg2 Hc8 27.
Re2 Dh6 28. f4 Rxf4 29. Rxf4 Dxf4 30.
Hf3 De4 31. Hh3+ Kg8 32. Dg5 Hxc2
Staðan kom upp í Skákþingi Reykja-
víkur – Skeljungsmótinu sem lauk fyr-
ir skömmu í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur. Sigurbjörn Björnsson
(2.324) hafði hvítt gegn Atla Frey
Kristjánssyni (2.105). 33. Hh8+! Kf7
34. Hf8+! Kxf8 35. Dxf6+ Ke8 36.
Dxg6+ og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Þriðja trompið.
Norður
♠K109
♥72
♦D1094
♣KG92
Vestur Austur
♠732 ♠64
♥ÁD6 ♥G10983
♦ÁKG8 ♦6532
♣854 ♣107
Suður
♠ÁDG85
♥K54
♦7
♣ÁD63
Suður spilar 4♠.
Sagnhafi lagði hugsun í spila-
mennsku sína, en leiðin sem hann valdi
var ekki sú besta. Vestur hafði opnað á
1♦ og hóf svo vörnina með ♦Á og
trompi í öðrum slag.
Trompárásin er óþægileg, því eftir
opnunina er vitað um ♥Á í vestur yfir
kóngnum. En sagnhafi sá möguleika á
að trompa hjarta ef vestur ætti ekki
fleiri en tvo spaða. Hann spilaði fyrst
smáu hjarta frá báðum höndum. Aust-
ur átti þann slag og trompaði aftur út.
Nú spilaði sagnhafi hjarta á kónginn
og sannaðan ásinn. En vestur átti
þriðja trompið og beið ekki boðanna að
slá því út: einn niður. Sagnhafi var of
upptekinn af hjartastungunni og sá
ekki gildi millispilanna í tígli. Nokkuð
líkleg vinningsleið er að aftrompa mót-
herjana strax, taka þrjá laufslagi, spila
♦D úr borði og henda hjarta heima.
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Úrskurðurinn er fallinn og gettu
hvað, almenn skynsemi er hreint ekki
svo almenn. Svaraðu kallinu ef þú vilt en
ef ekki þá vertu óhræddur við að segja
það.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Gefðu kost á þér á framabrautinni,
sama hversu illa þér hefur gengið til
þessa. Komdu þér út slíkri klípu með lip-
urð og festu.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Svo virðist sem þú njótir ekki
nægrar leiðsagnar, upplýsinga eða úr-
ræða en ekki að láta það á sig fá. Taktu
tíma til að ákveða hver næstu skref
verða.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þótt að miklu sé að stefna á
vinnustaðnum máttu ekki fórna fram-
anum öllu sem þú átt. Leggðu þig fram
um að njóta dagsins með góðu fólki.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þótt miklar annir séu hjá þér máttu
ekki vanrækja sjálfan þig. Skrifaðu lista
og taktu þér svo tíma fyrir einn hlut í
einu.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Á næstu tveimur árum munt þú
segja skilið við margt. Stundum finnst
þér eins og verk þín þjóni öðrum meira
en þér.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Sumir dagar eru gjöfulli en aðrir og
þessi færir þér ýmis tækifæri. Treystu
sjálfum þér best. Gerðu þér far um að
ræða við fólk því það mun njóta þess
sem þú segir.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Einmitt þegar þú hélst að þú
gætir slakað á hringir bjallan og pásan
er búin. Einhver á heimilinu gæti leitað
til þín með vandamál sín.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Bogmaðurinn virðist ekki með
á nótunum varðandi það sem er á seyði í
kringum hann, en hvað ef það er ekki
þér að kenna heldur þeim.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Ekki verða hissa þótt þeir sem
eru í kringum þig njóti óbeinnar ánægju
af viðfangsefnum þínum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Settu þig aftur í samband við
einhvern eða eitthvað sem gegndi þýð-
ingarmiklu hlutverki í þroska þínum.
Láttu þig dreyma!
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Reyndu að láta minniháttar rifr-
ildi ekki hafa áhrif á þig. Slæmt að eyði-
leggja fyrir sér með smáónákvæmni. Þú
hefur þörf fyrir að sletta úr klaufunum.
Elísa Rún Arnardóttir og Salka
Hlín Jóhannsdóttir héldu tombólu
fyrir utan verslun Hagkaupa í
Spöng og söfnuðu 2.260 kr. sem
þær færðu Rauða krossi Íslands.
Hlutavelta
„ÆTLI ég mæti ekki bara í vinnu að venju,“ segir
Ásdís Helga Bjarnadóttir lektor og verkefnisstjóri
endurmenntunar við Landbúnaðarháskóla Íslands
en hún fagnar fertugsafmæli sínu í dag. Ásdís
Helga lá hins vegar hálflasin heima þegar blaða-
maður ræddi við hana á föstudag og ekki var ljóst
hvort yrði af afmælisfögnuði „Ég ætlaði eiginlega
að halda upp á afmælið núna um helgina en það á
eftir að koma í ljós hvað heilsan leyfir.“
Tvítugsafmælið er Ásdísi Helgu eftirminnilegt
en þá bauð hún skólasystkinum sínum í heimapartí
með hákarli og brennivíni. „Fólk átti von á kökum
og kræsingum frekar en hákarli og brennivíni.“ Og þó það hafi e.t.v.
ekki allir verið jafnhrifnir af veitingunum hafi gestirnir allir komið
inn í hús á endanum. Hún segir þorramatinn tilheyra svolítið afmæl-
isveislum sínum, enda sá tími árs. „En maður er kannski farinn að
taka örlítið meira tillit til gestanna og bjóða upp á annað með,“ segir
hún og hlær. Ásdís Helga er búsett á Hvanneyri og hún segir sveitina
fallega á að líta í snjónum. Fjöldi fólks sé í göngutúrum og enn fleiri í
útreiðum. „Það er raunar alveg glatað að vera föst inni. Ef ég væri
ekki lasin væri ég farin út á hestbak.“ annaei@mbl.is
Ásdís Helga Bjarnadóttir 40 ára
Hákarl og brennivín
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
2. febrúar 1983
Alþingi samþykkti með 29 at-
kvæðum gegn 28 að mótmæla
ekki hvalveiðibanni Alþjóða
hvalveiðiráðsins sem átti að
taka gildi að þremur árum
liðnum.
2. febrúar 1988
Hjarta og lungu voru grædd í
Halldór Halldórsson, 25 ára
Kópavogsbúa, fyrstan Íslend-
inga. Aðgerðin tók átta
klukkustundir og var gerð í
London.
2. febrúar 1990
Þjóðarsáttin. Launþegar og
atvinnurekendur undirrituðu
heildarkjarasamninga sem
áttu að ná verðbólgu hratt nið-
ur og tryggja atvinnuöryggi.
Árið áður hafði vísitala
neysluverðs hækkað um 21%.
2. febrúar 1998
Fréttavefur Morgunblaðsins á
netinu, mbl.is, var opnaður.
Fyrsta mánuðinn voru að með-
altali um fimm þúsund heim-
sóknir á dag, nú eru notendur
um 366 þúsund á viku. Gagna-
safn Morgunblaðsins hafði
verið aðgengilegt síðan 1994.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
mbl.is