Morgunblaðið - 02.02.2009, Page 25
Fréttir
í tölvupósti
Leiklistarfólk Fulltrúar leikhópanna við afhendingu styrkja Leiklistarráðs, sem eru á bilinu 2,7 til 8 milljónir.
LEIKLISTARRÁÐ úthlutaði fyrir helgi 70 milljónum
króna í styrki til atvinnuleikhópa í landinu. Af þeirri
upphæð fær Hafnarfjarðarleikhúsið 20 milljónir króna
samkvæmt samningi. Til annarra atvinnuleikhópa
renna samtals 45,2 milljónir króna. Þá fá sjálfstæðu
leikhúsin fimm milljónir króna til reksturs skrifstofu.
Alls sóttu 54 aðilar um styrki til 60 verkefna og barst
ein umsókn um samstarfssamning.
Í leiklistarráði eru Orri Hauksson, formaður, skipaður
án tilnefningar, Jórunn Sigurðardóttir, tilnefnd af Leik-
listarsambandi Íslands, og Magnús Þór Þorbergsson, til-
nefndur af Bandalagi sjálfstæðra leikhúsa.
70 milljónir til atvinnuleikhópa
Menning 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2009
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið -
Sýningum í vetur lýkur í febrúar)
Lau 14/2 kl. 17:00 U
ath sýn.atíma
Sun 15/2 aukas. kl. 16:00 U
Fös 20/2 kl. 20:00 U
næst síðasta sýn. í vetur
Sun 22/2 aukas. kl. 16:00 U
Lau 28/2 kl. 17:00 U
síðasta sýn. í vetur - ath sýningatíma
Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson
(Söguloftið)
Fös 13/2 kl. 20:00 Ö
Lau 21/2 kl. 17:00 U
Fös 27/2 kl. 20:00 U
Lau 7/3 kl. 16:00 U
Fös 13/3 kl. 20:00 Ö
Lau 14/3 kl. 16:00 U
Fim 19/3 kl. 20:00 Ö
Lau 21/3 kl. 16:00 U
Fim 26/3 kl. 20:00
Lau 28/3 kl. 16:00
Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið
Sturlunga Einars Kárasonar (Söguloftið)
Fös 6/2 fors. kl. 18:30 Ö
Forsýning
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Óperuperlur - Diddú, Bjarni Thor, Sigríður,
Ágúst og Antonía
Fös 13/2 kl. 20:00
Lau 21/2 kl. 20:00
Sun 1/3 kl. 20:00
Iðnó
562 9700 | idno@xnet.is
Systur
Lau 7/2 kl. 20:00
Fös 13/2 kl. 20:00
Lau 21/2 kl. 20:00
Fös 27/2 kl. 20:00
Dómur Morgunblaðsins
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Dubbeldusch (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Fös 6/2 kl. 20:00
Lau 21/2 kl. 20:00
Fös 27/2 kl. 20:00
Íslenski dansflokkurinn
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Velkomin heim - Febrúarsýning2009 (Stóra
sviðið)
Fim 5/2 frums. kl. 20:00
Sun 8/2 kl. 20:00
Sun 15/2 kl. 20:00
Sun 22/2 kl. 20:00
Sun 1/3 kl. 20:00
Sun 8/3 kl. 20:00
Fös 6/2 kl. 19:00
Fim 12/2 kl. 20:00 aukas.
Lau 14/2 kl. 19:00
Lau 7/3 kl. 19:00
Fös 13/3 kl. 19.00
Lau 14/3 kl. 19.00
Lau 21/3 kl. 19.00
Sun 22/3 kl. 19.00
Yfir 130 uppseldar sýningar. Áhorfendasýning ársins 2008.
Fló á skinni (Stóra sviðið)
Miðasölusími 568 8000 – midasala@borgarleikhus.is
Rústað eftir Söru Kane – sýningar hafnar.
Fös 30/1 kl. 20:00 frums.
Lau 31/1 kl. 20:00 2. kort
Sun 1/2 kl. 20:00 3. kort
Fim 5/2 kl. 20:00 4. kort
Fös 6/2 kl. 20:00 5. kort
Lau 7/2 kl. 20:00 6. kort
Fim 12/2 kl. 20:00
Fim 12/2 kl. 20:00
Lau 14/2 kl. 20:00
Fös 27/2 kl. 20:00
Ath! Bannað innan 16 ára. Ekki er hleypt inn í sal eftir að sýning hefst.
Rústað, eftir Söru Kane (Nýja sviðið)
Fös 6/2 kl. 20:00 frums.
Lau 7/2 kl. 19:00 2. kort
Lau 7/2 kl. 22:00 aukas.
Sun 8/2 kl. 20:00 3. kort
Mið 11/2 kl. 20:00 4. kort
Fim 12/2 kl. 20:00 5. kort
Fös 13/2 kl. 19:00 6. kort
Fös 13/2 kl. 22:00 aukas.
Lau 14/2. kl. 19:00 aukas.
Lau 14/2 kl. 22:00 aukas.
Sun 15/2 kl. 20:00 aukas.
Fös 20/2 kl. 19:00 7. kort
Fös 20/2 kl. 22:00
Lau 21.2 kl. 19:00 8. kort
Lau 21/2 kl. 22:00 aukas.
Sun 22/2 kl. 20:00 9. kort
Mið 25/2 kl. 20:00 10. kort
Fim 26/2 kl. 20:00
Fös 27/2 kl. 19:00
Fös 27/2 kl. 22:00
Leiklestrar á verkum Söru Kane.
Ást Fedru - 10. febrúar. Hreinsun - 17. febrúar. Þrá - 24. febrúar. 4:48 geðtruflun - 3. mars
Sannleikurinn, einleikur Péturs Jóhanns (Litla sviðið)
Sýningum lýkur í febrúar á vinsælasta söngleik leikársins.
Fólkið í blokkinni (Stóra sviðið)
Lau 31/1 kl. 19:00
Sun 1/2 kl. 16:00 aukas.
Sun 1/2 kl. 19:00
Lau 7/2 kl. 19:00
Lau 7/2 kl. 22:00
Fös 13/2 kl. 19:00 aukas.
Fös 13/2 kl. 22:00
Lau 21/2 kl. 19:00
Lau 21/2 kl. 22:00 síð. sýn.
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
, ,ímorgungjöf?
ÉG er ekki einn þeirra sem skrifa
undir málsháttinn „Öllu gamni fylgir
nokkur alvara“. En þegar kemur að
myndlist Ásmundar Ásmundssonar á
máltækið vel við. Ásmundur er lista-
maður sem gerir blákalt grín en er að
sama skapi pólitískur og gagnrýninn.
Sem þriðji listamaðurinn í sýning-
arröð Listasafns Reykjavíkur í A sal
Hafnarhússins sem miðast við að
tengja listina út fyrir safnið hefur Ás-
mundur kosið samstarf við krakka úr
Hlíðarskóla.
Sýningin nefnist Hola og byggist á
gjörningi barnanna, er þau grófu
heljarinnar holu í Klambratúnið. Hol-
an var svo uppfyllt með grófri steypu,
hún færð í föstu formi yfir í sýning-
arsal Hafnarhússins og staðsett í
hann miðjan sem formrænn skúlptúr.
Á veggnum má sjá myndskeið með
börnunum að moka í leik og lík-
amlegri erfiðisvinnu og á Klambrat-
úni í námunda við Kjarvalsstaði
geymist holan tóm. Þannig fram-
lengir listamaðurinn sýninguna á
milli tveggja staða Listasafns
Reykjavíkur.
Sýningin er sérkennileg að því leyti
að hún er aðallega góð fyrir það hve
slæm hún er. Skúlptúrinn smell-
passar í salinn í heldur klisjukenndri
mynd. En listamaðurinn sýður gjörn-
inginn, objektið og rýmið saman eftir
hárréttri uppskrift svo verkið gengur
óþægilega vel upp. Þ.e. að maður
þekkir strax klisjuna og sér hve auð-
velt er að falla fyrir henni ef maður
gætir ekki að sér.
Það eina sem afvegaleiðir mann
sjónrænt frá klisjunni er plakat á
vegg sem auglýsir sýninguna. Ég læt
því spurningarmerki við plakatið því
að klisjan kann að hafa verið enn
sterkari án plakatsins. Hins vegar
gegnir plakatið samskonar hlutverki
og undirskrift listamannsins. Þ.e. að
þetta er klisjan hans Ásmundar lista-
manns og einskis annars
Verk Ásmundar hafa ætíð sam-
félagslega skírskotun og er auðvelt að
sjá skúlptúrinn sem enn einn steyp-
uminnisvarðann eins og þá sem
standa óhreyfðir eftir efnahags-
hrunið. Ásmundur ýjaði reyndar að
þessari tengingu með kómískri hóg-
værð í ræðu sem hann hélt við opnun
og hangir nú á vegg til aflestrar.
Ræða þessi er ómissandi partur af
sýningunni, enda alger steypa út af
fyrir sig. Er óhætt að mæla með þess-
ari æðislega vondu sýningu fyrir alla
sem elska og hata íslenska sam-
tímalist.
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhúsið
Opið daglega frá 10.00-17.00. Sýningu
lýkur 8. mars. Aðgangur ókeypis.
Ásmundur Ásmundsson bbbbn
Steypan „Sýningin er sérkennileg
að því leyti að hún er aðallega góð
fyrir það hve slæm hún er.“
Klisjan í
steypunni
Jón B. K. Ransu
HINN kunni breski danshöfundur
Rosemary Butcher og útskrift-
arnemar Laban-listdansskólans í
London bjóða á danssýningu í
Reykjavík í kvöld. Dansararnir
eru á lokaári BA-náms og sýna út-
skriftarverk sitt í húsakynnum
Klassíska listdansskólans, Grens-
ásvegi 14, bakatil, klukkan 20.30.
Um er að ræða nýtt verk eftir
einn þekktasta danshöfund Bret-
lands, Rosemary Butcher, og er
samið að beiðni Laban. Verkið
heitir Stories In the Rocks og er
unnið í samvinnu við dansarana.
Það byggist á spunavinnu og
brennidepillinn er samspil dans-
aranna og mynda sem þeir gera
með myndvarpa.
Rosemary Butcher hefur í
meira en þrjá áratugi verið einn
róttækasti og frumlegasti danshöf-
undur Bretlands. Hún varð fyrir
miklum áhrifum þegar hún dvaldi
í New York 1970-72 og kynntist
þar brautryðjendunum í The Jud-
son Group þegar velgengni þeirra
var sem mest. Þær hugmyndir
kynnti hún síðan í Bretlandi og
sýning hennar í Serpentine Gall-
ery í London árið 1976 er fræg
fyrir nýsköpun og ferska nálgun
við danslistina. Rosemary Butcher
hefur allar götur síðan þróað eigin
tjáningarmáta og dansform.
Laban er víðkunnur listdans-
skóli og í fararbroddi í þróun
kennslu á háskólastigi og þjálfun
atvinnulistdansara. Skólinn starfar
í byggingu í London þar sem eru
m.a. 13 dansstúdíó, heilsustöð,
kaffihús og 300 sæta leikhús.
Sýningin er um 30 mínútna
löng. Aðgangur er ókeypis en fólk
þarf að skrá sig á arna@ballet.is
eða hringja í síma 616 2120.
Kunnur breskur dans-
hópur býður á sýningu
www.rosemarybutcher.com
www.laban.org
www.ballet.is
Styrkir til atvinnuleikhópa í ár:
Steinunn Knútsdóttir og fleiri 3
millj. kr. vegna uppsetningar á
verkinu Herbergi 408.
Pars Pro Toto / Lára Stef-
ánsdóttir og fleiri 5,5 millj. kr.
vegna uppsetningar á verkinu
Bræður.
Hið lifandi leikhús / Þorleifur
Örn Arnarsson og fleiri 5 millj. kr.
vegna uppsetningar á verkinu Eilíf
óhamingja.
Opið út / Charlotte Böving og
fleiri 5 millj. kr. vegna uppsetn-
ingar á verkinu Vatnið.
Sjónlist / Pálína Jónsdóttir og
fleiri 5,5 millj. kr. vegna uppsetn-
ingar á verkinu Völva.
Lab Loki / Rúnar Guðbrands-
son og fleiri 6,5 millj. kr. vegna
uppsetningar á verkinu Ufsagrýlu.
Sögusvuntan / Hallveig Thorla-
cius og fleiri 2,7 millj. kr. vegna
uppsetningar á verkinu Laxdæla.
GRAL / Grindvíska atvinnuleik-
húsið / Guðmundur Brynjólfsson
og fleiri 4 millj. kr. vegna uppsetn-
ingar á verkinu Horn á höfði.
Evrópa kvikmyndir – Vest-
urport / Gísli Örn Garðarsson og
fleiri 8 millj. kr. vegna uppsetn-
ingar á verkinu Faust.
Hafnarfjarðarleikhúsið Her-
móður og Háðvör, 20 millj. kr. skv.
samstarfssamningi.
Fást Vesturports
styrktur um átta
milljónir