Morgunblaðið - 02.02.2009, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 02.02.2009, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 33. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SKOÐANIR» Staksteinar: Ábyrg efnahagsstjórn Forystugrein: Mikið verk, lítill tími Pistill: Ný ríkisstjórn Ljósvaki: Gleði hæfileikafólksins Heitast 1°C | Kaldast -6°C Hæg austlæg eða breytileg átt, en aust- an 5-10 m/s við suður- ströndina. Léttskýjað fyrir norðan. »10 Myndlistarunn- endur geta farið að hlakka til: Í haust kemur út víðfeðm ís- lensk listasaga í fimm bindum. »24 MYNDLIST» Tryggir breiða sýn FÓLK» Flugan flögrar milli frumsýningargesta. » 28 Framleiðendur Slumdog Millionaire bregðast við gagn- rýni og stofna sjóð fyrir fátæk börn í Mumbai. »29 KVIKMYNDIR» Styrkja fátæka VEFSÍÐA» Íslenskt tískuland fyrir tískuunnendur. »29 FÓLK» Lagahöfundurinn skellti á Jackson. »30 Menning VEÐUR» 1.Ragna Árnadóttir …ráðherra 2. Martröð varð að veruleika 3. Fylgja áætlun AGS 4. „Jökullinn að rifna í tvennt“ »MEST LESIÐ Á mbl.is Á MÖRGUM vinnustöðum kjósa menn að kaupa G-mjólk frekar en ný- mjólk. Heimilin kaupa einnig þessa vöru í tals- verðum mæli. Það getur hins vegar borgað sig að gera verðsam- anburð. Hjá Rekstrarvörum kostar bakki með 12 lítrum af G-mjólk 2719 kr. eða 226,5 kr. stykkið. Þetta fannst viðmælanda blaðsins mikið og lagði því leið sína niður í Krónu, en þar kostaði lítrinn 145 kr. Mismunurinn er 81,5 kr. á lítr- anum. Til samanburðar fékkst þessi sama vara á 189 kr. lítrinn í 10-11, sem er talsvert ódýrara en í Rekstrarvörum. 10-11 hefur samt ekki fengið orð fyrir að selja ódýrt. egol@mbl.is Auratal ÞETTA er eins og kammer- tónlist; þú getur ímyndað þér pí- anó með strengjatríói, nema strengirnir hafa verið leystir af hólmi af mis- munandi rafræn- um hljóðum.“ Franska tónskáldið Philipe Man- oury er að lýsa einu tónverka sinna, en hann er kunnur sem frum- kvöðull í raftónlist. Manoury, sem kennir við Kaliforníuháskóla, kynn- ir eina óperu sína, K …, í Íslensku óperunni á morgun. Þá verður hann með masterklassa í vikunni og tekur þátt í flutningi á einu verka sinna um næstu helgi. | 24 Frumkvöðull í raftónlist Philippe Manoury Á SJÓNUM geta himinn og haf tekið á sig ýmsar mynd- ir. Blíðskaparveður hefur verið við Snæfellsnes, nær sléttur sjór og fallegt skýjafar. Vöggur Ingvarsson, skipstjóri á Kóna SH, naut veðurblíðunnar og útsýn- isins til hins ýtrasta en mjög góð aflabrögð hafa verið hjá bátum sem róa frá Snæfellsnesi frá áramótum. Á skaki undir rauðum skýjum Góð aflabrögð við Snæfellsnes og nóg að gera Morgunblaðið/Alfons „ÞAÐ verður að hafa góða loftþétt- ingu,“ segir Ásgrímur Stefánsson, en hann er framleiðslustjóri einu tóbaksverksmiðju landsins. Hann mælir svo um framleiðslu neftóbaks, um hana gildi sömu lögmál og um verkun súrheys. Þessi eina tóbaksverksmiðja á Ís- landi er rekin í tveimur herbergjum í lágreistri byggingu á lóð Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins við Stuðla- háls í Reykjavík. Þar er neftóbak unnið eftir gamalli uppskrift. Kryddað og hrært Uppskrift og verkunaraðferð nef- tóbaksins hefur haldist nær óbreytt frá því framleiðslan hófst hér á landi. Hráefnið kemur til landsins malað í 200 kílóa kössum frá tóbaksfyrirtæki í Svíþjóð. Hrátóbakið er blandað með vatni, pottösku og salti í ákveðnum hlutföllum í gamalli hrærivél og eftir góða hræringu er blandan sett í eikartunnu. Lokað er vel yfir með plasti og síðan er eik- arlokið spennt á áður en tunnurnar eru færðar til geymslu á lagernum. Þar standa númeraðar tunnurnar í röðum í allt að átta mánuði á meðan þess er beðið að tóbakið verkist. | 15 Í tóbaksfylltu herbergi  Í einu tóbaksverksmiðju landsins er framleitt neftóbak  Framleiðslan fer fram í tveimur herbergjum í lágri byggingu Morgunblaðið/RAX Hrátt Ásgrímur Stefánsson og Egg- ert Ó. Bogason við óunnið tóbakið. Í HNOTSKURN »Fyllt er í hverja dós í hönd-unum, vanur maður fyllir um þúsund 50 gramma dósir á dag. »Sérsmíðuð vél fyllir á tób-akshornin og hún hristir í hvert horn á 22 sekúndum. »Dósirnar og hornin eru úrplasti og steypt í Mos- fellsbæ. Skagamaðurinn Stefán Þór Þórð- arson er hættur við að leggja knattspyrnus- kóna á hilluna og mun að öllum líkindum skrifa undir fimm mán- aða atvinnu- mannasamning við lið FC Vaduz frá Liechtenstein í dag. Fyrir er hjá félaginu markakóngurinn Guðmundur Steinarsson og því ljóst að Vaduz mun geta teflt fram íslensku sóknarpari í svissnesku úrvalsdeildinni, þar sem liðið leik- ur. | Íþróttir Verður aftur atvinnumaður Stefán Þór Þórðarson ÞETTA HELST» Ný ríkisstjórn tekur við  Ný ríkisstjórn undir forystu Jó- hönnu Sigurðardóttur tók við í gær. Hún verður fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra. Fyrsti ríkisráðsfundurinn var á Bessastöðum og lyklaskipti fóru fram í ráðuneytunum. »Forsíða Bjarni býður sig fram  Bjarni Benediktsson ætlar að bjóða sig fram til formanns á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins sem fram fer dagana 26.-29. mars. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru a.m.k. þrír aðrir að kanna hljóm- grunn fyrir framboði til formanns eða varaformanns. »6 Félög á Tortola-eyju  Fjögur félög sem skráð eru á Tortola-eyju voru stórir eigendur í Landsbanka Íslands. Félögin eru Porteus Global Holding S.A., Kar- gile Portfolio Inc, Peko Investment Company Ltd. og Marcus Capital Ltd og deila öll sama heimilisfangi á eyjunni. Eignarhaldsfélög sem þar eru skráð þurfa ekki að greiða neinn skatt af eignum sínum. »13 Mannvit sækir út fyrir landsteinana  Vegna stöðunnar í efnahagslífinu hér á landi sækir verkfræði- og ráð- gjafarfyrirtækið Mannvit nú frekar um erlend verkefni. Áhersla er lögð á verkfræðiráðgjöf og hönnun við jarðhita- og vatnsaflsvirkjanir í Mið- Evrópu, Bandaríkjunum, Indlandi og Suður-Ameríku. »11 Brown verst gagnrýni  Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hefur vísað á bug um- mælum þess efnis að London sé „Reykjavík á bökkum Thames“ og að Bretland sé að komast í þrot. »14 Oft var þörf en nú er nauðsyn Gegn atvinnuleysinu Auðlindina heim Eru þetta réttar áherslur? UMRÆÐAN»

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.