Morgunblaðið - 07.02.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
og Helga Bjarnason
MAÐURINN sem handtekinn var í fyrrinótt vegna
gruns um aðild að andláti sambýliskonu sinnar var í gær
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 20. febrúar. Hin látna
fannst klæðlítil í dúfnahúsi í Kapelluhrauni á sjötta tím-
anum í fyrrakvöld. Minniháttar áverkar voru á líkinu, að
sögn lögreglu. Hinn handtekni hefur áður komið við
sögu hjá lögreglu.
Í hrauninu er húsaklasi þar sem dúfur eru haldnar og
var það eigandi eins dúfnahússins sem fann lík kon-
unnar þegar hann kom til að fóðra dúfurnar sínar. Dúf-
unum er gefið annan hvern dag og þess vegna er óljóst
hversu lengi líkið hefur verið í húsinu.
Að sögn Þorvaldar Rúnarssonar, formanns Skraut-
dúfufélags Hafnarfjarðar, voru rúður í dúfnahúsinu þar
sem líkið fannst brotnar. „Það skrýtna við þetta er að
það var ekkert átt við útidyrahurðina sem var læst utan
frá. Það virðist hafa verið farið inn um gluggann.“
Lögreglan kvaðst í gær ekki geta greint frá því hvern-
ig þessu var háttað. Hún vildi heldur ekki greina frá því
hvort hinn handtekni hefði við yfirheyrslu í gær játað
aðild að andláti sambýliskonu sinnar.
„Ég get ekkert gefið upp um það hvað kom fram við
yfirheyrslu. Það er ekki hægt að gefa upp meira en það
sem komið hefur fram á meðan rannsóknin er á þessu
stigi,“ sagði Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Að sögn Friðriks Smára er vonast eftir bráðabirgða-
niðurstöðu krufningar fljótlega eftir helgina. „En svo
tekur alltaf lengri tíma að fá endanlega niðurstöðu. Það
getur tekið einhverjar vikur.“
Fjölmennt lið rannsóknarlögreglumanna og tækni-
manna auk réttarmeinafræðings var kvatt á vettvang í
fyrrakvöld og unnu þeir að rannsókn málsins fram á
nótt. Í fréttatilkynningu frá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu í gær sagði að rannsókn á vettvangi væri ekki
lokið. Þess var jafnframt getið að um íslenskt sambýlis-
fólk væri að ræða.
Gæsluvarðhald í 2 vikur
Grunaður um aðild að andláti sambýliskonu sinnar Lík konunnar fannst í
dúfnahúsi í Kapelluhrauni Bráðabirgðaniðurstaða krufningar eftir helgina
ÞESSI leikskólabörn í Kópavogi komu með vasa-
ljós að heiman til þess að lýsa upp umhverfi sitt
með þeim á Degi leikskólans í gær. Börn í öllum
leikskólum bæjarins gerðu sér ýmislegt til há-
tíðabrigða. Þau fóru í ljósagöngu, tóku á móti
gestum, héldu leik- og myndasýningar, frömdu
ljósgjörning, sungu saman og fyrir aðra, sýndu
dans, heilsuðu upp á álfa og huldufólk og fóru í
fjársjóðsleit.
Leikskólabörn í Kópavogi í ljósaleiðangri
Morgunblaðið/Heiddi
HAUKUR Halldórsson, varaformaður bankaráðs Lands-
bankans, segir að ákveðið hafi verið að fresta því að aug-
lýsa stöðu bankastjóra þar sem efnahagsreikningur hafi
ekki legið fyrir. „Það var ekki talið forsvaranlegt að aug-
lýsa áður en hann lægi fyrir. Það var okkar mat að við
þyrftum að sjá aðeins betur til lands.“
Haukur segir menn vona að efnahagsreikningurinn
muni kannski liggja fyrir seint í apríl. „Ég sé ekkert því til
fyrirstöðu að það verði auglýst fljótlega upp úr því. Það
getur hins vegar dregist fram á haust að nýr maður komi
inn.“
Í tilkynningu á vef Landsbankans hinn 13. janúar síð-
astliðinn sagði að staðan yrði auglýst á næstu dögum.
Haukur segir að endurmats hafi verið þörf. „Menn gerðu
sér í fyrstu vonir um að efnahagsreikningurinn myndi
liggja fyrir fyrr.“
Ásmundur Stefánsson, formaður bankaráðs Lands-
bankans, er nú á mánaðarferðalagi um Indland en hann
verður kominn heim áður en Elín Sigfúsdóttir bankastjóri
lætur af störfum um næstu mánaðamót, að því er Haukur
greinir frá. „Ásmundur varð við ósk bankaráðs um að brúa
bilið þar til nýr aðili verður ráðinn,“ segir Haukur sem
mun taka við formennsku bankaráðs af Ásmundi.
ingibjorg@mbl.is
Auglýst þegar efnahags-
reikningur liggur fyrir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsbankinn Bankaráðið ákvað að fresta því að aug-
lýsa stöðu bankastjóra sem losnar hinn 1. mars.
BANKAKREPPUNA á Íslandi má
skýra með samspili ólíkra þátta.
Þeirra á meðal eru óheft nýfrjáls-
hyggja, einka-
væðing allra rík-
isbankanna á
sama tíma og sú
staðreynd að
nýju eigendur
bankanna voru
ungir auðmenn
sem voru uppfull-
ir af testosteróni
og viljugir til
þess að taka
áhættu.
Þetta var meðal þess sem fram
kom í viðtali við Össur Skarphéð-
insson utanríkisráðherra í þættin-
um Frost over the world sem sýnt
var á sjónvarpsstöðinni Al Jazeera í
gær.
Í viðtalinu ítrekaði Össur þá
skoðun sína að besta leiðin fyrir Ís-
lendinga til þess að vinna sig út úr
kreppunni væri ef landið gerðist að-
ili að Evrópusambandinu (ESB) og
tæki upp evruna. Tók hann fram að
hann væri þeirrar skoðunar að hefði
Ísland gerst aðili að ESB fyrir ein-
hverjum árum hefði mátt afstýra
verstu afleiðingum fjármálakrepp-
unnar hérlendis.
Össur var afar bjartsýnn fyrir
hönd Íslendinga í viðtalinu. Benti
hann á að þrátt fyrir bankahrunið
væru innviðir samfélagsins sterkir,
s.s. heilbrigðis- og menntakerfið,
fiskiðnaðurinn öflugur og að nýverið
hefði verið gefið út leyfi til olíuleitar
á Drekasvæðinu sem talið væri ein
stærsta ónýtta olíuauðlind heims.
ESB fram-
tíðin fyrir
Ísland
Össur
Skarphéðinsson
Össur Skarphéð-
insson á Al Jazeera
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs-
dóms Reykjavíkur yfir grunuðum of-
beldismanni. Hinn meinti ofbeldis-
maður mun, á grundvelli rann-
sóknarhagsmuna, verða í gæslu-
varðhaldi til kl. 16 nk. þriðjudag.
Maðurinn er grunaður um að hafa
hinn 29. janúar sl. tekið þátt í meiri-
háttar líkamsárás þar sem beitt var
sérstaklega hættulegri aðferð, að
kýla mann í andlit með hnúajárni og
sparka í liggjandi mann með þeim af-
leiðingum að fórnarlambið nef-,
kinnbeins-, fingur- og tannbrotnaði.
Úr umferð
vegna árásar
INGIMUNDUR Friðriksson, einn
þriggja bankastjóra Seðlabanka Ís-
lands, baðst í gær lausnar frá emb-
ætti.
Ingimundur og Eiríkur Guðnason
svöruðu síðdegis bréfi Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra, en
hún fór í vikunni fram á að allir þrír
bankastjórar Seðlabankans bæðust
lausnar og semdu um starfslok.
Ráðherra fór fram á að bréfinu
yrði svarað eigi síðar en 5. febrúar
eða á fimmtudag en bankastjórarnir
báðu um frest til föstudags, þar sem
Davíð Oddsson, formaður banka-
stjórnar, var væntanlegur til lands-
ins á fimmtudagskvöld.
Með bréfi sem Ingimundur Frið-
riksson sendi forsætisráðherra síð-
degis í gær, baðst hann lausnar úr
embætti frá og með næstkomandi
mánudegi og hef-
ur ráðherra fallist
á beiðnina.
Ekki fengust
upplýsingar um
innihald bréfs Ei-
ríks Guðnasonar,
að öðru leyti en
því að hann baðst
ekki lausnar frá
embætti.
Ekkert svar
hafði í gærkvöld borist frá Davíð
Oddssyni, formanni bankastjórnar
Seðlabankans.
Þær upplýsingar fengust úr for-
sætisráðuneytinu að ráðherra myndi
nú íhuga stöðu málsins og hvernig
brugðist yrði við gagnvart þeim Ei-
ríki Guðnasyni og Davíð Oddssyni.
the@mbl.is
Ingimundur
baðst lausnar
Ingimundur
Friðriksson