Morgunblaðið - 07.02.2009, Blaðsíða 41
Velvakandi 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HVAÐ SEGIR ÞÚ
UM AÐ FARA Í
GÖNGUTÚR?
ÞÚ VEIST AÐ
ÉG ÞOLI EKKI
ÞETTA AUGNARÁÐ
ÞÚ VEIST AÐ
ÉG ÞOLI EKKI
AÐ FARA Í
GÖNGUTÚR
ÚFF! ÞETTA
ER ÓTRÚLEGA
ERFITT...
EF ÉG VÆRI LAX ÞÁ ÞÆTTI
MÉR NÓGU ERFITT AÐ
SYNDA MEÐ STRAUMNUM!
ÉG ER SJÓNVARPSSTJARNAN,
KALVIN! MIG LANGAR AÐ
SEGJA YKKUR FRÁ „SYKUR-
HÚÐUÐUM SYKURSPRENGJUM“!
ÉG ELSKA ÞÆR!
ÞÆR ERU STÖKKAR AÐ UTAN
OG MJÚKAR AÐ INNAN! Í
ÞEIM ER EKKI EITT EINASTA
VÍTAMÍN! EKKERT TIL
AÐ ÞVÆLAST FYRIR
SYKURSÆTU BRAGÐINU!
JÁ, KRAKKAR! ÞÆR ERU SVO
ÆÐISLEGAR AÐ ÞIÐ EIGIÐ
EKKI EFTIR AÐ GETA SITIÐ
KYRR! MUNIÐ AÐ ÉG FÆ
BORGAÐ FYRIR AÐ SEGJA
ÞETTA ALLT SAMAN...
ÞVÍ ÉG ER FRÆGUR!
HVAÐ FINNST ÞÉR? LANGAR
ÞIG AÐ HERMA EFTIR MÉR
OG BORÐA VÖRUNA SEM ÉG
VAR AÐ KYNNA? EF EKKI ÞÁ
ENDURTEK ÉG
ÞETTA Á TÍU
MÍNÚTNA
FRESTI
EKKI VOGA
ÞÉR AÐ
HÓTA MÉR
HVERNIG
FINNST ÞÉR AÐ
BÚA Í HOLLANDI?
ÞAÐ ER ANSI FÍNT...
EN MAÐUR VERÐUR AÐ
FÆRA ÝMSAR FÓRNIR...
TIL DÆMIS ER MJÖG
ERFITT AÐ RÆKTA
GRÆNMETI HÉRNA
ÞETTA ER SVO
SORGLEGT...
HÚN VAR FYRSTA
TRÉÐ SEM ÉG
MERKTI MÉR
NÚMER 3 ER
SIGURVEGARI!
3 ÞAÐ ÞURFTI NOKKRARTILRAUNIR EN ÞÉR TÓKST
ÞETTA Á ENDANUM!
ERTU BÚIN MEÐ
PENINGINN? VARSTU EKKI
MEÐ FIMMÞÚSUNDKALL?
VIÐ ERUM
ÖRUGG... EN HVAR
ER SHOCKER?
HANN
ER HÉRNA
HANDAN VIÐ
HORNIÐ!
VIÐ ÆTTUM
AÐ FARA OG
NÁ MYNDUM
AF HONUM
ANSI GÓÐ
HUGMYND
ÞÚ ERT
BÚINN AÐ
VERA!
VERTU
EKKI SVO
VISS
SVANURINN sýnist dreyminn á svip þar sem hann líður áfram á vatninu í
þeim eindæma vetrarstillum sem ríkt hafa á landinu að undanförnu.
Morgunblaðið/Ómar
Vetrarstillur
Gott smyrsl
við slitgigt
ÉG veit að margir þjást
mikið af slitliðagigt í
fingrum og víðar, og
því vil ég segja frá því
hvað ég hef fengið góða
hjálp hjá konu sem
stundar grasalækn-
ingar. Hún heitir Ást-
hildur Einarsdóttir og
býr í Garðabæ og er
lærður fegrunarfræð-
ingur. Ekki spillir það
að hún er dóttir Ástu
Erlingsdóttur grasa-
læknis, sem flestir
kannast við og hefur sú
vísindagrein gengið í ættina mann
fram af manni frá Grasa-Þórunni
sem var landsfræg í þeirri grein,
einkum á Austurlandi, en hún var
langamma Ásthildar. Ég hef í mörg
ár liðið af slitliðagigt í fingrum og
hafa þeir smátt og smátt verið að
bogna. Ég hef stundum fengið
sprautur inn á liðina hjá lækni og
lagast um tíma en jafnan sótt í sam-
an farið aftur. Ég leitaði til Ásthildar
og fékk hjá henni smyrsl, sem ég
nudda hendurnar vel uppúr kvölds
og morgna og hefur mér batnað al-
veg ótrúlega, ég hef ekki lengur
verki. Einnig fékk ég smyrsl við
þurrkblettum á húð sem eru svolítið
pirrandi, en ég finn ekki fyrir því
lengur, þótt þeir hverfi ekki alveg
ennþá. Ég fékk líka grasamixtúru,
sem virkar mjög vel gagnvart melt-
ingu og magaónotum. Fyrir nokkr-
um árum leitaði maðurinn minn, sem
nú er látinn, til Ásthildar, hann hafði
þá gengið undir liðskipta aðgerð á
mjöðm, en var svo óheppinn að fá fó-
tasár á hælinn. Þetta sár greri ekki,
þrátt fyrir sex vikna dvöl á heilsu-
stofnun og síðan kom hjúkrunarkona
daglega heim til okkar í fleiri mánuði
en ekki greri sárið. Þá leituðum við
til Ásthildar, fengum smyrsl, sem ég
bar á 4 sinnum á dag og þremur vik-
um síðar var sárið gróið og kom aldr-
ei aftur. Ég veit einnig um brunasár
sem hafa gróið svo vel að kraftaverki
líkist. Mig langar bara að fólk fái að
vita af þessari hjálp. Gangi ykkur vel
og takk fyrir birtinguna.
Ragna S. Gunnarsdóttir.
Breytum lögunum
Tíu þingmenn Samfylkingarinnar
vilja breyta kosningalögunum til að
meirhluti kjósenda geti knúið fram
kosningar. þetta lýðræði hefur verið
virkt í Hafnarfirði og að minnsta
kosti einu sinni notað í bænum.
Og af hverju ekki? Hvað mælir
gegn þessu í landi sem alla tíð hefur
viljað merkja sig við lýðræð-
ishugsun. Háttvirt Al-
þingi bara drífi sig í og
breyti þessum lögum
til að emnn geti farið af
stað og safnað nægi-
lega mörgum undir-
skriftum. þá kemur
líka í ljós hvað þjóðn
vill í þesum efnum.
Sjálfur hef ég engan
áhuga á kosningum nú
og vill gefa þessu meiri
tíma í því ljósi að tím-
inn vinnur með okkur
og ríkisstjórnin er á
réttri leið miðað við
kringumstæður og ein-
kennielgar aðstæður
sem hún starfar í.
Eithvað verður að gera sem slær á
ólguna og betra er að efna til kos-
nigna ef merihluti kjósenda óskar
eftir þeim en að hleypa öllu í bál og
brand með afleiðingum sem engin
hér vill horfa upp á en gæti vel gerst
haldi áfram sem horfi.
Að hugsa svona er engin eftirgjöf
heldur skynsamleg hugsun sem
menn þurfa stundum að taka fram
yfir annað, jafn brýnt og verk rík-
istjórnarinar eru við núverandi að-
stæður. Betra er nenfnilega að
breyta lögunum að þessu leiti og
leyfa fólkinu að fara í þá vinnu sem
er því samfara að safna nægjanlega
mörgum undirskriftum á sína lista
og vera fljótur að heldur en að láta
hrópin af götunum knýja fram
eitthva sem svo kannski meirihluti
þjóðarinnar vill ekki.
Vinna sú arna mundi einfaldlega
skera úr um vilja þjóðarinnar að
þessu leiti. Það skildi vera að ekki
næðist meirihluti.
Íslendingar hafa ekki áður lent í
viðlíka aðstæðum. Jafn flókið og illt
viðureignar sem það er.
Skoðum tillögu Samfylkingarfólks
í fullri alvöru. Gerum eitthvað sem
höfðar beint til fólksins. Kosningar
nú eru engin heimsendir þótt að-
stæður séu erfiðar í samfélaginu.
Guð blessi háttvirta ríkisstjórn og
allan almenning í landinu.
„Þá sagði Jesús aftur við þá: Frið-
ur sé með yður. Eins og faðirinn hef-
ur sent mig, eins sendi ég yður.“
(Jóh 20:21)
Konráð Rúnar Friðfinnsson.
Óskar eftir bók
Ef einhver á bókina Um sumarkvöld
eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson og vill
losna við hana vinsamlega hafið sam-
band við Helgu í s. 487 8262 eftir kl.
17.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Félag kennara á eftirlaunum | Fræðslu-
og skemmtifundur í Stangarhyl 4 kl.
13.30.
Félagsstarf Gerðubergi | Menningar og
listahátíð eldri borgara í Breiðholti verð-
ur dagana 11.-15. feb. M.a. íþróttadagur,
kynslóðir saman, og hátíðardagskrá í
Ráðhúsinu laugard. 14. sept kl. 14.30-17.
Í Menningarsal Hrafnistu í Hafnarfirði er
málverkasýning Erlu Ásmundsóttir. Uppl.
í síma 575-7720 og breidholt.is
Hraunbær 105 | Þorrablót verður haldið
í Félagsmiðstöðinni Hraunbæ föstudag-
inn 13. febrúar, húsið opnar kl 18. Ólafur
B. Ólafsson leikur fyrir söng og dansi.
Verð 3.600 kr., skráning á skrifstofu eða
í síma 411-2730 fyrir mánudaginn 9.
febrúar.
Hraunsel | Sparidagar á Hótel Örk verða
8.-13. mars. Skráning og nánari upplýs-
ingar í síma 555-0142. Opið hús fimmtu-
dag 12. febrúar, Vesturheimar ferðaskrif-
stofa verður með kynningu, Jónas Þór
kynnir. Sjáið vef félagsins: www.febh.is
Íþróttafélagið Glóð | Ringó verður í
Snælandsskóla við Víðigrund kl. 9.30-
10.30. Uppl. í síma 564-1490, 554-5330
og 554-2780.