Morgunblaðið - 07.02.2009, Síða 42
42 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2009
LISTAVERKASALAR og lista-
verkakaupendur virðast vera að ná
áttum í verðlagningu verka á upp-
boðum, að því er kemur fram í
grein Souren Melikian í Int-
ernational Herald Tribune í gær.
Sala í uppboðshúsunum Christie’s
og Southeby’s í vikunni hefur verið
með besta móti, en verðlagið raun-
særra en áður. Í fréttinni segir:
„Amatörar fyrri ára, sem voru til-
búnir til að kasta peningum í lista-
verk í upphæðum sem „sérfræð-
ingar“ höfðu stungið uppá eru á bak
og brott. Þegar yfirverðlögð með-
almennska er boðin upp, dettur hún
niður dauð. En hógvær gæðaverk
rata enn til kaupenda fyrir sann-
gjarnt verð og það er traust vís-
bending um bjartsýni á mark-
aðnum.“
Souren segir söluna hafa verið
mikla og því ljóst að áhugi á mynd-
listinni hafi ekkert dvínað, þótt fólki
með ótakmörkuð fjárráð hafi fækk-
að í röðum kaupenda. Á uppboði hjá
Christie’s á fimmtudag seldust verk
fyrir andvirði 3,2 milljarða króna,
sem þó var um fjórðungi minna en
upphafleg söluáætlun fyrirtækisins
gerði ráð fyrir á uppboðinu.
Souren segir að nú standi yfir
„leiðréttingarverðmyndun“ á mynd-
list og nemi hún 30-50 prósentum af
því verði sem hafi verið skrúfað upp
í öfgar í uppboðsbransanum síðustu
15 ár. Þótt einstaka verk hafi selst
fyrir mun hærri upphæðir í vikunni
en ráð var fyrir gert hafi minni
verk selst á betra verði og mark-
aðurinn hafi sannað heilbrigði sitt
með miklum ákafa kaupenda á upp-
boðunum.
Myndlist á
betra verði
Uppsprengt verð
liðinna ára leiðrétt
Kona með tvær hálsfestar Þetta
verk Kees Van Dongen seldist á
andvirði 22 milljóna króna.
SÖNG- og leik-
konan Beyoncé á
ekki sjö dagana
sæla eftir að
stóra átrún-
aðargoðið henn-
ar, blúsdívan
Etta James, op-
inberaði hvað
henni fannst um
söng örlaga-
barnsins á setningarballi Obama
forseta í janúarlok. Þar söng
Beyoncé eitt frægasta lag Ettu, „At
last“.
„Ég þoli ekki Beyoncé,“ sagði
hún á tónleikum í Kanada fáum
dögum eftir athöfnina. „Hún á ekk-
ert með að vaða uppi á degi forset-
ans að syngja lag sem ég er búin að
syngja alla mína ævi,“ sagði Etta.
Í fyrra lék Beyoncé Ettu í kvik-
myndinni Cadillac Records og kann
það að skýra ónot blúsdívunnar.
Etta er ókát
Etta James
ÞVERSKURÐUR er
heitið á sýningu Text-
ílfélagsins sem opnuð
verður í Gerðarsafni í
dag kl. 16. Sýningin er
þrískipt og fjölbreytt
og spannar ríflega 60
ár í textílsögunni. Á
henni getur að líta ný-
leg verk félagskvenna, verk heiðursfélaga og verk
fjögurra kvenna sem á síðustu öld vörðuðu veg-
ferð íslenskrar þráðlistar inn í nútímann.
Textílfélagið fagnar 35 ára afmæli á ári sem
markast af endurmati á ýmsum gildum og verð-
mætum þjóðarinnar. Gerðarsafn er opið alla daga
nema mánudag frá 11 til 17. Boðið verður upp á
leiðsögn um sýninguna alla sunnudaga kl. 15.
Hönnun
Íslenskt textíl í sex-
tíu ár í Gerðarsafni
Eitt verkanna á sýningunni
KVIKMYNDASAFN Ís-
lands sýnir mynd Woo-
dys Allen, The Purple
Rose of Cairo í Bæjarbíói
í Hafnarfirði kl. 16 í dag.
Í myndinni kannar
Woody Allen mörkin
milli skáldskapar og
veruleika. Kvikmyndin
gerist í kreppunni miklu og greinir frá misheppn-
aðri gengilbeinu, Ceciliu (Mia Farrow) sem situr
dag einn í kvikmyndasal og verður ástfangin af
aðalpersónu myndarinnar Tom Baxter (Jeff Dani-
els). Þvert á lögmál raunveruleikans ber hann líka
ástarhug til hennar og stígur niður af tjaldinu.
Allt fer í upplausn og ekki annað hægt en að lifa
sig inn í örlög Ceciliu – gæti hún stigið niður?
Kvikmyndir
Kaírórós Woody
Allens í Bæjarbíói
Úr kvikmyndinni The
Purple Rose of Cairo
ÓPERUKÓRINN Í Reykja-
vík, heldur tónleika til heiðurs
Giacomo Puccini í Aðventkirkj-
unni á morgun kl. 17, en 22.
desember hefði Puccini orðið
150 ára. Flutt verða tvö verk
tónskáldsins, Missa di Gloria
og Requiem. Flytjendur eru
auk Óperukórsins einsöngv-
ararnir Garðar Thór Cortes
tenór, Aron Axel Cortes bari-
tón, Julian Hewlett píanó og
orgel. Í frétt frá kórnum segir að líklega sé um
frumflutning Requiems á Íslandi að ræða.
Giacomo Puccini samdi Missa di Gloria 18 ára
gamall, en Requiem árið 1904, til að minnast þess
að fjögur ár voru þá frá dauða Verdis.
Tónlist
Óperukórinn
minnist Puccinis
Giacomo Puccini
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÉG held að það verði skemmtilegt
fyrir fólk að sjá og heyra að í raun
og veru er fólk að fást við það sama,
hvort sem er í Tékklandi eða á Ís-
landi,“ segir Rut Ingólfsdóttir, list-
rænn stjórnandi Kammersveitar
Reykjavíkur, en sveitin verður með
tónleika á Myrkum músíkdögum
annað kvöld kl. 20 í Listasafni Ís-
lands. Og eins og Rut nefnir verður
tónlistin öll íslensk og tékknesk, en
Kammersveitin kynnir tékkneska
tónlist sérstaklega á tónleikum sín-
um í vetur.
„Tvö tékknesku tónskáldanna,
Pavel Zemek og Peter Graham, eru
fædd 1952 og ’57 og eru því í námi á
kommúnistatímanum, eftir innrás
Rússa 1968. Þeir hafa því kynnst
því andrúmslofti sem þá var í land-
inu og því sem það hafði að segja.
Ef verkalisti þeirra er skoðaður
kemur í ljós, að það er ekki fyrr en
um 1990 að þeir fara að skila af sér
verkum í einhverjum mæli.“
Íslensku tónskáldin á efnis-
skránni eru Jónas Tómasson með
verkið Diaphane fyrir flautu og
kammerhóp og Atli Ingólfsson með
Is Anybody There? fyrir basset-
klarinettu og strengi, en bæði verk-
in verða frumflutt á Íslandi á tón-
leikunum.
Zemek á trúarlegum nótum
„Ég hef ekki enn heyrt verkið
eftir Pavel Zemek, en hef lesið að
hann leiti gjarnan eftir hljómi mið-
aldakirkna í verkum sínum. Þá
dettur manni auðvitað í hug Arvo
Pärt og það gæti verið að Zemek sé
í svipuðum hugleiðingum. Hann er
enn að semja mikla röð af verkum
sem eru lofgjörð til Jesú. Verkið
sem við spilum er það fyrsta í þeirri
röð. Hann hefur líka fengið verð-
laun fyrir Jóhannesarpassíu sem
hann samdi, þannig að hann virðist
vera á mjög trúarlegum nótum.
Einleikari í verki Zemeks er Matt-
hías Birgir Nardeau.“
Rut segir að það hafi ekki verið
auðvelt að velja tékknesk sam-
tímaverk til að flytja á tónleikunum,
enda heyrast þau sjaldan hér á
landi. „En ég heyrði þó frá Tékk-
nesku tónverkamiðstöðinni að ég
hefði valið vel og það er ánægju-
legt.“
Verkið eftir Peter Graham heitir
Der erste, og er kantata við texta
eftir Franz Kafka, fyrir sópran og
stóran kammerhóp. Og ekki heyrir
maður oft sunginn Kafka. „Peter
Graham er sérstakt tónskáld. Hann
hefur miklar skoðanir á því hvernig
við eigum að spila verkið og hvernig
tónninn á að vera hjá hverju ein-
stöku hljóðfæri. Það er því gaman
að hann skuli geta komið og verið
með okkur. Textinn eftir Kafka er
ljóð úr bréfi og við verðum með
þýðinguna í prógramminu. Ingi-
björg Guðjónsdóttir syngur með
okkur, og á frummálinu, þýsku.“
Rut segir að vegferð Kamm-
ersveitarinnar með tékkneskri tón-
list í vetur hafi gengið ákaflega vel.
Í haust voru Dvorák og Smetana á
dagskránni; Jan Dismas Zelenka á
jólatónleikunum og samtíma-
tónskáldin nú. „ Mér finnst við í
gegnum þetta hafa fengið betri
mynd af tónlistarsögu Tékklands. Í
mars verðum við svo með tónleika
með verkum eftir Martinu, Janacek
og Gideon Klein sem lifði mjög
stutt. Um hann er talað þannig að
það hefði mikið orðið úr honum,
hefði hann ekki látist í lok stríðsins.
Það ótrúlega er, að í vetur hefur
Sinfóníuhljómsveitin líka verið með
talsvert af tónlist frá Tékklandi.
Um þetta var ekki samstarf, en það
styður hvað annað.“ Einleikarar á
tónleikum Kammersveitar Reykja-
víkur annað kvöld, verða Áshildur
Haraldsdóttir, Rúnar Óskarsson,
Matthías Birgir Nardeau, Hrafnkell
Orri Egilsson og Ingibjörg Guð-
jónsdóttir sem syngur. Stjórnandi
er Bernharður Wilkinson.
Kafka hjá Kammersveitinni
Morgunblaðið/Kristinn
Kammersveitin Rúnar Óskarsson leikur einleik í verki Atla Ingólfssonar en stjórnandi er Bernharður Wilkinsson.
Myrkir músíkdagar eru hafnir með úrvali þess besta í tónlist samtímans
„Ætli þetta sé ekki bara dans-
vænsti fiðlukonsert sem saminn
hefur verið á Íslandi,“ segir Rík-
arður Örn Pálsson, en á tónleikum
Myrkra músíkdaga í Langholts-
kirkju kl. 20 á þriðjudagskvöld
frumflytur Jón Leifs Camerata
fiðlukonsertinn Dansa og stemm-
ur, sem Ríkarður samdi fyrir ein-
leikarann, Hjörleif Valsson. „Hjör-
leif vantaði alltaf nýjar
útsetningar, og ég var orðinn svo
leiður á þeim, að ég sneri þessu
upp í fiðlukonsert með etnískum
undirtónum. Ég vissi að Hjörleifur
hafði verið í þjóðlegri músík, en
svo bætti ég við þjóðlegheitin
þegar Haukur Gröndal kom í spilið
sem expert í balkönskum rytm-
um.“
Ríkarður segir að sig hafi lang-
að að spanna pólana milli klass-
ískrar tónlistar og popptónlistar
með því að semja millimúsík, og
þannig er konsertinn. „Það er auð-
vitað erfitt að skilgreina þetta, en
oft er það þannig að það sem er
ekki popp og ekki heldur fram-
úrstefna, er millimúsík“
Konsertinn er fjórþættur að
sögn Ríkarðs, og hefst á stuttu
Pastorale, búlgarskri hjarðsælu í
tatarasamleik einleiksfiðlu og
balkneskrar smalapípu i gervi
klarínettsins. Við tekur Klezmer-
iana, glettin brúðkaupsmúsík gyð-
inga, rofin
innskotum frá
ímyndaðri
búlgarskri fót-
mennt af svip-
uðu tilefni.
Þá kemur
að Klakanum í
Stemmum, og
í tremólerandi
Aust-
fjarðaþoku
strengjanna undir flaututóna-
lagboða einleiksfiðlunnar rísa upp
kvæðalögin Morgunsólar geisla-
glóð og Fann ég fyrrum þyt á þök-
um – ásamt frumsömdu þjóðlagi
höfundar við gamla róðrarvísu.
Þokuhjúpaður niðurlagshlutinn
boðar undirmeðvitundinni con-
certo grosso stef IV. þáttar, Gígju,
undir dansvænum 9/8 barokkhryn
– er fær þó ekki, frekar en Klez-
merþátturinn, að vera í friði fyrir
trylltum búlgörskum innskotum
fyrr en hnígur að kunnuglegu nið-
urlagi í anda hárkollualdar.
Á tónleikum Jón Leifs Camerata
á þriðjudagskvöldið heyrast einnig
tvö önnur verk í fyrsta sinn á Ís-
landi, Hr. Z eftir Egil Ólafsson og
La prière eftir Gunnar Þórðarson.
Einsöngvari í verki Gunnars er
Sigrún Hjálmtýsdóttir en stjórn-
andi á tónleikunum er Hákon
Leifsson.
Þjóðlegur og dansvænn fiðlukonsert
Ríkarður Örn
Pálsson
ÖLL verkin á tón-
leikum Tinnu Þor-
steinsdóttur píanó-
leikara og Franks
Aarninks slag-
verksleikara í
Hafnarborg í dag
kl. 17 munu heyrast í fyrsta sinn á Ís-
landi og sum eru samin sérstaklega
fyrir þau. Verkið Tókastaðir eftir
Pál Ivan Pálsson vekur forvitni en
um það segir tónskáldið: Sveitarfé-
lag: Austur-Hérað, Landshluti: Aust-
urland, Landsnúmer: 158101, Heild-
arstærð: 955 ha, Paddi: 4 lappir,
Hljóð: Klikk klúkk krrr.
Klikk klúkk krrr
Tinna
Þorsteinsdóttir
Í dag:
Kl. 14 Kammerkór Suðurlands í
Neskirkju.
Kl. 17 Tinna Þorsteinsdóttir píanó-
leikari og Frank Aarnink slag-
verksleikari í Hafnarborg.
Kl. 20 Caput og Pilippe Manoury í
Guðríðarkirkju
Á morgun:
Kl. 14 Martial Nardeau, Guðrún
Birgisdóttir og Snorri Sigfús Birg-
isson í Salnum.
Kl. 17 Rannveig Fríða Bragadóttir í
Hafnarborg.
Kl. 20 Kammersveit Reykjavíkur í
Listasafni Íslands.
Á mánudag:
Kl. 12.15 Anna Guðný Guðmunds-
dóttir og Snorri Sigfús Birgisson í
Norræna húsinu.
Kl. 20 Ragnhildur Gísladóttir og
Hilmar Örn Hilmarsson í Salnum.
www.listir.is/myrkir
Íslenskir karlmenn
eru langbestir og hún
ætti bara að fara að láta
kíkja á sig, ég hugsa að hún
sé bara með Alzheimer. 44
»